Bændablaðið - 26.08.2021, Page 10

Bændablaðið - 26.08.2021, Page 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 10 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 FRÉTTIR Hreinsuðu hluta strandlengjunnar við Langanesbyggð: Um 4 tonn af rusli söfnuðust í 12 áburðarsekki Hreinsun strandlengjunnar í Langanesbyggð, sem fram fór nýverið, skilaði um fjórum tonnum af rusli af ýmsum toga. Töluvert bar á veiðarfærum og plasti eins og brúsum, flöskum og forhlöðum, en inn á milli mátti finna fatnað og glundur í glerflöskum. Alls fylltust 12 áburðarsekkir auk þess sem sett­ ar voru upp hrúgur hér og hvar af drasli sem ekki þótti við hæfi að sóa sekkjum undir. Þó svo að 4 tonn liggi í valnum eftir hreinsunina er ógrynni eftir af drasli í fjörum við Langanes að sögn Tómasar Knútssonar hjá Bláa hernum, en hann tók þátt í hreinsuninni ásamt vöskum hópi sjálfboðaliða, 22 að tölu. Verkefnið er samstarfsverkefni Langanesbyggðar og umhverfis­ samtakanna Ocean Missions auk Veraldarvina og Bláa hersins, en hershöfðinginn Tómas var óvænt staddur í nærliggjandi sveitarfélagi þegar hreinsun fór fram. Hann dreif sig milli fjarða til að taka þátt. Blái herinn hefur unnið að hreinsun strandlengjunnar í 25 ár og í sumar hafa Tómas og félagar unnið ötullega að því að hreinsa fjörur á Reykjanesi með góðum árangri. Hann segir að verkefnin séu yfir 30 talsins þar um slóðir. Allt hrá­ efnið sem hreinsað hefur verið var viktað og er það geymt. Vel yfir 10 tonn eru komin í geymslu og segir Tómas að farið verði yfir allt saman, það rannsakað og uppruna þess gerð góð skil. „Reykjanesið verður plast­ hreinasta strandlengja Íslands,“ segir hann. Enn mikið eftir Hreinsunin á Langanesi hófst við fuglaskoðunarskýlið á Ytra­Lóni og unnust að þessu sinni um tveir kílómetrar norður eftir nesinu. „Það er gríðarlegt magn eftir af rusli í fjörum við Langanes,“ segir Tómas en hann fór óformlega vettvangsferð um svæðið með dróna. „Það er rík þörf á að taka þráðinn upp að nýju og halda áfram, því augljóslega rekur mikið af rusli af öllu tagi á land við Langanes,“ segir hann. Almennt telur Tómas að um eitt tonn af rusli sé á hverjum kílómetra í íslenskum fjörum og því blasi ærin verkefni við í hreinsunarstörfum. Þörf á þjóðarátaki Tómas segir að brýn þörf sé á þjóðar­ átaki í þessum efnum, almenningi sé vandinn vel kunnur og það sama megi segja um stjórnkerfið, þar sem peningarnir eru og ekki alltaf nægur vilji að sögn til að deila þeim út í verkefni af þessu tagi. „Það yrði algjörlega frábært ef við Íslendingar tækjum af skarið og gerðum eitthvað stórt sem eftir yrði tekið. Framtíðin öskrar á lausnir, við verðum að hlúa eins vel að jörðinni okkar og kostur er, það er alveg ótækt að við höldum áfram að sýna henni þá óvirðingu sem við höfum gert fram til þessa,“ segir Tómas. Komandi kynslóðir vilja hreinna og sjálfbærara umhverfi Hann segir að sér hafi komið á óvart við hreinsun á Langanesi að þar stóð til að brenna öllu hráefni sem safnað var í fjörunni til húshitunar, enda felist í því verulegur sparnaður að brenna t.d. rekavið og plast. „Ég velti fyrir mér hvort land­ eigendur séu með viðurkennda brennsluofna til húshitunar, að mínu mati kallar þetta á umræðu um slík­ ar brennslur. Við höfum um tíðina rætt hvað verður um allt ruslið og stundum er einhver feluleikur í gangi í þeim efnum. Staðreyndin er sú að með réttum hugsanagangi er hægt að endurvinna allt hráefni og þangað eigum við að mínu mati að stefna. Komandi kynslóðir vilja hreinna og sjálfbærara umhverfi og það eru bullandi tækifæri í að endurvinna fjörugóssið,“ segir Tómas. Rúlluplast í mörgum litum Þá bendir hann á að margir möguleikar séu fyrir hendi þegar kemur að endurvinnslu á plasti og nefnir sem dæmi rúlluplastið sem fáist í fjölmörgum litum. Einfaldara væri upp á endurvinnslu að hafa einn lit í boði og þykir sá hvíti langbestur að sögn kunnugra. „Ég myndi vilja sjá þvotta/flokk­ unarstöð sem myndi gera allan plast­ úrgang meðfærilegri til að hann gæti öðlast betra endur vinnsluferli,“segir Tómas. /MÞÞ Tómas Knútsson fer fyrir Bláa hernum en hann tók þátt í hreinsun strandlengjunnar við Langanes fyrr í þessum mánuði. Blái herinn hefur tekið þátt í yfir 30 verkefnum sem tengjast hreinsun strandlengju við Reykjanes. Myndin er tekin á Merkinesi á samnorræna strandhreinsideginum en Blái herinn sér um það samstarfsverkefni hér á landi. Töluvert bar á veiðarfærum og plasti eins og brúsum, flöskum og forhlöðum, en inn á milli mátti finna fatnað og glundur í glerflöskum. Tilraunir með hafra: Eiturefni af völdum sveppa nánast óþekkt í íslenskum höfrum Í verkefninu Mannakorn, þar sem könnuð var uppskera á mismun­ andi yrkjum hafra, voru einnig gerðar mælingar á sveppaeitur­ efnum í höfrum úr tilraunum Jarðræktar miðstöðvar innar á Hvanneyri við Land búnaðar­ háskóla Íslands. Hrannar Smári Hilmarsson, tilraunastjóri í jarðrækt við LbhÍ á Hvanneyri, segir að ásamt upp­ skerumælingum hafi aðrir gæða­ þættir verið metnir í verkefninu, meðal annars efnagreiningar og mælingar á sveppaeiturefnum fram­ kvæmdum af MATÍS, sem eru alltaf mæld í ræktunum erlendis. Mýkótoxín „Sveppaeiturefni, öðru nafni mýkó­ toxín, getur myndast í sumum myglu sveppum í náttúr unni eða fóðurgeymslum þegar umhverfis­ aðstæður, einkum raki og hiti, eru fullnægjandi. Sveppaeiturefni eru aðskotaefni sem geta skaðað heilsu búfjár og fólks. Sum sveppaeitur­ efni eru mjög öflug eiturefni,“ segir Hrannar. Mælingar voru gerðar á ellefu sveppaeiturefnum í sex sýnum og var aðeins eitt efnið í nægu magni til að það væri mælanlegt en það var langt undir hámarksgildi í reglu­ gerð. Hrannar segir mjög athyglis­ verðar niðurstöður að tíu sveppaeit­ urefni hafi ekki verið mælanleg í sex hafrasýnum með nokkrum fjölda myglusveppa og einnig vegna þess að tími leið fram að þurrkun við lágan hita. Hafra sáð til þroska Hrannar segir að nokkrum mis­ munandi hafrayrkjum hafi verið sáð til þroska í þremur tilraunum árið 2020. Uppskorið var um haustið og sýni tekin til frekari greininga. „Niðurstöður úr uppskeru­ mælingum og tengdum mældum eigin leikum sýndu að talsverður breytileiki er á milli yrkja og í kjöl­ farið var flutt inn nýtt hafrayrki til ræktunar á Íslandi vorið 2021, það var finnska yrkið Perttu. Vorið 2021 voru tilraunirnar endurteknar og stefnt er að skurði seinna í haust. Tilraunirnar voru lagðar út á Hvanneyri og í Meðallandi. Ásamt því eru gerðar prófanir með hafra í Skagafirði en veðurblíðan sem leikið hefur um Norðlendinga í sumar hefur gert það að verk­ um að hafrarnir líta mjög vel út í Skagafirði og verða tilbúnir til þreskingar mikið fyrr en fyrir vestan á Hvanneyri. Áfram verð­ ur fylgst með sveppaeiturefnum í korni.“ /VH Hafrayrkið Perttu á Vindheimamelum í Skagafirði 22. ágúst 2021.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.