Bændablaðið - 26.08.2021, Síða 14

Bændablaðið - 26.08.2021, Síða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 14 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 FRÉTTIR Stjórn 860+ ljósmyndaklúbbsins, sem sá meðal annars um að koma sýningunni upp, en hún var opnuð formlega 16. júní af Lilju Einarsdóttur, sveitarstjóra Rangárþings eystra. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Baldur Ólafsson, Anna Björk Magnúsdóttir, Þorsteinn Valsson, Sveinbjörn Jónsson, Björn Á. Guðlaugsson og Snorri Sævarsson. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson Ljósmyndaklúbburinn 860+ í Rangárþingi: Með útiljósmyndasýningu í allt sumar Ljósmyndaklúbburinn 860+ í Rangárþingi hefur opnað glæsilega útiljósmyndasýningu á miðbæjartúninu á Hvolsvelli ellefta árið í röð. Það eru áhugaljósmyndarar úr sveitarfélaginu og nálægum sveitum sem standa að sýningunni og setur sýningin mikinn svip á Hvolsvöll. Myndirnar tengjast allar sveitarfélaginu, fólkinu og náttúrunni á einhvern hátt og gefur gestum oft nýja sýn á svæðið og vekur áhuga. „Sýningarnar okkar hafa alltaf vakið athygli heimamanna og ferðamanna enda frábært að geta farið um miðbæinn og skoðað sýningu á nóttu eða degi, hún er jú opinn allan sólarhringinn. Sýningin í sumar er mjög glæsileg með fjölbreyttum myndum úr Rangárvallasýslu þó ég segi sjálfur frá. Ég hvet fólk til að koma og skoða sýninguna, það verður enginn svikin af því,“ segir Baldur Ólafsson, einn af forsvarsmönnum sýningarinnar. /MHH Myndirnar eru teknar víða um land af áhugaljósmyndurum í klúbbnum. Stefnt er að því að byggja við núverandi húsnæði Pharmarctica á Grenivík næsta vor. Hlutafjáraukning hjá Pharmarctica á Grenivík: Fyrirhugað að stækka framleiðsluhúsnæðið Unnið hefur verið að því undanfarið að auka hlutafé í félag inu Pharmarctica á Greni vík í Grýtubakkahreppi. Ráðist var í hlutafjáraukningu til að unnt væri að stækka framleiðslu að stöðu félagsins. Tveir nýir hluthafar bættust í hluthafahóp Phar­ marctica við þessar breyting ar, Kjálkanes ehf. og Fjárfestingar­ félagið Fjörður ehf. Verkefninu er að ljúka um þessar mundir Unnið verður við að fullhanna nýja húsnæðið á komandi vetri og eru vonir bundnar við að hægt verði að hefjast handa við byggingu þess næsta vor. Stefnt er að því að húsnæðið verði um 710 fermetrar að grunnfleti og 910 fermetra gólfflötur. Pharmarctica hefur nú til umráða um 560 fermetra húsnæði. Starfsmenn eru 13 talsins. Aðstaða batnar til muna Sigurbjörn Þór Jakobsson fram­ kvæmdastjóri segir að viðbótar­ húsnæðið verði gríðarleg bót á aðstöðu félagsins. Ekki sé nokkur vafi á því að Pharmarctica muni halda áfram að eflast bæði sem lyfja­ og snyrtivöruframleiðandi og verði góður kostur fyrir vörumerkjaeigendur þegar litið sé til umhverfis­ og gæðamála. Pharmarctica sérhæfir sig í framleiðslu á snyrtivörum, fæðu­ bótarefnum, hár­ og líkams­ sáp um, smyrslum, mixtúrum og sótthreinsandi lausnum, en fram­ leiðslan er í verktakavinnu bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Pharmarctica, sem var stofnað árið 2002, hefur byggt upp mikla þekkingu á sínu sviði og er eina fyrirtækið á landinu sem býður upp á heildarþjónustu í þessum geira. Fyrirtækið býr yfir mannauði og tækjabúnaði sem gerir því kleift að þjónusta mjög breitt svið fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Pharmarctica er vottað GMP (e. good manufacturing practice) og hefur einnig leyfi til framleiðslu á lífrænum snyrtivörum. /MÞÞ Sigurbjörn Þór Jakobsson fram­ kvæmda stjóri Pharmarctica. Frá undirritun samningsins, frá vinstri eru Atli Gunnar Arnórsson frá Stoð, Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri, Ásmundur Pálmason frá Steypustöð Skagafjarðar, Steinn Leó Sveinsson, sviðsstjóri veitu­ og framkvæmdasviðs, og Ingvar Páll Ingvarsson tæknifræðingur. Framkvæmdir við nýja götu á Sauðárkróki: Nýjar lóðir við Nestún auglýstar í haust Sveitarfélagið Skagafjörður hefur samið við Steypustöð Skagafjarðar að undangengnu útboði um framkvæmdir við nýja götu á Sauðárkróki sem mun bera nafnið Nestún. Framkvæmdirnar snúa að gatna­ gerð og fráveitu við Nestún og munu framkvæmdir hefjast á næstu dögum. Verklok eru í byrjun október og er áætlað að lóðir við Nestún verði aug­ lýstar með haustinu. Í Nestúni er gert ráð fyrir alls 14 nýjum byggingalóðum fyrir einbýlishús. Staðsetning götunnar er ofan við Laugatún og liggur samsíða henni, með aðkomu af Túngötu. Gert er ráð fyrir 7 lóðum hvort sínum megin. Austan götu er gert ráð fyrir tveggja hæða húsum, en einnar hæðar húsum vestan götu. Þetta kemur fram á vefsíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar. /MÞÞ Uppskeruhorfur víðast hvar góðar í útiræktun: Sala á íslenskum blómum hefur aukist mjög í farsóttarástandinu Uppkeruhorfur í útiræktun græn­ metis eru almennt góðar. Kalt síðasta vor setur þó strik í reikn­ inginn þar sem ýmsum tegundum seinkar talsvert hvað uppskeru varðar. Axel Sæland, blómaræktandi á Espiflöt og formaður Sambands garðyrkjubænda, segist hafa heyrt í allnokkrum bændum og það sé sam­ hljómur hjá þeim um að það stefni í ágætis uppskeru. Hann segir að far­ sóttarástandið í samfélaginu virð­ ist hafa breytt nokkuð landslaginu í ýmsum greinum garðyrkjunnar; meira sé selt af innlendum tegundum og ekki síst af afskornum blómum þar sem verið hefur mikil söluaukn­ ing. „Við seljum til dæmis allt sem við framleiðum og við erum nýbúin að stækka garðyrkjustöðina okkar um 20 prósent í afkastagetu,“ segir Axel. Aukning líka í sumarblómum og garðplöntum „Ég hef líka heyrt hjá öðrum garð­ yrkjustöðvum sem eru í blóma­ framleiðslu að síðustu tvö ár hafi salan rokið upp; til dæmis hjá þeim sem eru í sumarblóma­ og garðplöntuframleiðslu. Umræðan í samfélaginu hefur verið íslenskum garðyrkjubændum hagstæð á þessum tímum, þar sem það hefur verið hvatt til þess að innlendar vörur séu frekar keyptar, þar sem þær hafi mun minna kolefnisspor og mikilvægt sé að styðja við innlenda matvælaframleiðslu. Við finnum það líka greinilega að það er góð stemning fyrir íslenska grænmetinu, tala nú ekki um á þessum árstíma þar sem allar þessar fersku vörur úr útiræktuninni eru að koma inn á markað. Allt sem framleitt er af blómkáli og spergilkáli á Íslandi er selt um leið og það er uppskorið. Það vantar í raun mannskap víða til að anna eftirspurninni eftir nýrri uppskeru. Það var mjög kalt víðs vegar í vor, þannig að útiræktað grænmeti er nokkrum vikjum á eftir hvað varðar uppskerutíma í venjulegu árferði. Seinni partinn í júlí og allan ágúst hefur hins vegar verið mjög hlýtt og plönturnar hafa tekið mjög vel við sér. Ég heyri það á kartöflubændum að þeir eru aðeins uggandi yfir því hversu seint þeir gátu komið útsæðinu út – því ef það kemur næturfrost núna í haustbyrjun falla grösin og kartöflurnar hætta að vaxa. Það er hins vegar gott útlit með gulræturnar og rófurnar, þeirra aðaluppskerutími er í september og jafnvel fram í október.“ Nýliðunarvandi í garðyrkjunni Spurður út í stöðu og horfur varðandi íslenska garðyrkjufram­ leiðslu, segir Axel að eins og í öðrum greinum landbúnaðarins þá glími garðyrkjan við ákveðinn nýliðunarvanda. „Það hafa ekki orðið kynslóða­ skipti á þessum garðyrkjustöðvum og þær hafa verið að leggjast af frekar en að nýjar kynslóðir komi inn. Það er mjög erfitt fyrir nýja aðila að koma inn; bæði vegna skorts á þekkingu og svo geta fjárfestingar í tækjum verið þungar. Það eru reyndar komnir hærri styrkir inn í landgreiðsluhlutann, sumsé fyrir hvern ræktaðan hektara, sem er kærkomin viðbót fyrir okkar framleiðendur. En það virðist þurfa meira til að fá fleiri inn í greinina. Það er ljóst að það er mikið svigrúm á markaði fyrir fleiri íslenska garðyrkjuframleiðendur – bæði í úti­ og ylrækt,“segir Axel. Hann hvetur bændur í öðrum búgreinum til að gefa því gaum að blanda garðyrkjunni inn í þeirra búrekstur. /smh Axel Sæland, blómaræktandi á Espiflöt og formaður Sambands garðyrkju­ bænda. Mynd / smh

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.