Bændablaðið - 26.08.2021, Page 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
Samkvæmt tölum Global Carbon
fyrir árið 2019 er kolefnislosun
einstakra landa í heiminum vegna
notkunar jarðefnaeldsneytis
ákaflega misjöfn og er Kína þar
langstærst, 10,2 milljarða tonna
af CO2. Næst koma Bandaríkin
sem eru rétt hálfdrættingar með
um 5,3 milljarða tonna.
Losun um allan heim dróst síðan
nokkuð saman á árinu 2020 í Covid-
19 faraldrinum, eða um 7%, en hlut-
fallslega mest í Bandaríkjunum, eða
um 12,1%.
Samdráttur í losun stórveldanna
á koltvísýringi skiptir öllu máli fyrir
heildarlosun heimsbyggðarinnar. Án
samdráttar í öflugustu iðnríkjunum
skiptir brölt smærri ríkja harla litlu
máli. Þar eru 15 öflugustu iðnríkin
að losa ríflega 72% af heildarlosun
koltvísýrings út í andrúmsloftið í
heiminum.
Þetta er mjög heitt pólitískt
átaka mál þar sem samdráttur í
notkun jarðefnaeldsneytis hefur
gríðarleg áhrif á hagvaxtarþróun
stórþjóðanna. Í það minnsta þar til
ný tækni hefur leyst notkun jarð-
efnaneldsneytis af hólmi.
Þá er líka ljóst að mesta losun-
in stafar af framleiðslu á raforku
þar sem eftirspurnin hefur verið að
stóraukast, m.a. með orkuskiptum
í öllum greinum og aukinni notk-
un rafbíla. Virðist stóra spurningin
því snúast um hvernig menn ætli
að draga úr kolefnislosun vegna
aukinnar raforkuframleiðslu auk
þess sem stóraukin áhersla hefur
verið lögð á framleiðslu á vetni sem
orkumiðils, en það er líka framleitt
með raforku. Sólar- og vindorka
dugar þar ekki til eins og t.d. hefur
verið upplýst varðandi Þýskaland.
Vandséð er að þetta verði leyst í
bráð nema með stóraukinni raf-
orkuframleiðslu með kjarnorku sem
umhverfissinnuð stjórnmálaöfl hafa
barist mjög á móti. Þar breyta upp-
hrópanir og heimsendaspár harla
litlu.
Íslendingar eru peð í
heildarsamhenginu og númer 143
á lista yfir losun þjóða á CO2
Kínverjar eru að losa ríflega þrjú
þúsund sinnum meira af koltvísýr-
ingi út í andrúmsloftið en Ísland
vegna brennslu á jarðefnaeldsneyti
sam kvæmt tölum GC. Losun Íslands
er því um 0,031% af losun Kína. Ef
tekið er mið af losun Þýskalands,
sem er öflugasti losandinn í Evrópu,
þá losar það nær 213 sinnum meira
af koltvísýringi en Ísland. Enda er
Ísland númer 143 á lista yfir losun
CO2 af 221 landi samkvæmt Global
Carbon.
Heildarlosun þjóða heims vegna
brennslu jarðefnaeldsneytis var á
árinu 2019 samkvæmt tölum GC
rúmlega 36,4 milljarðar tonna að
meðtaldri losun frá flugi og skipum.
Þessi tala lækkaði í 34,1 milljarð
tonna árið 2020.
Af heildarlosuninni voru 15 þjóðir
með 26,1 milljarðs tonns, eða 72,2%
af heildarlosun heims byggðarinnar
á árinu 2019. Af þessum fimmtán
voru Kína, Banda ríkin og Indland
langstærst með samtals 17,6 milljarða
tonna. Eftir samdrátt í losun á síðasta
ári og fyrrihluta árs 2021, er losun
CO2 nú tekin að stíga á ný.
Sérkennileg umræða
Í umhverfisumræðunni á Íslandi
er oft fullyrt að Íslendingar séu
einhverjir mestu umhverfissóðar
í heimi og alverstir Evrópuþjóða.
Þar þykir sæma að deila bæði stað-
festum og óstaðfestum losunar-
tölum af öllu tagi hér á landi og
deila þeim á íbúafjölda þessarar
örþjóðar. Inni í því dæmi taka
menn gjarnan óstaðfestar tölur
án vísindalegra mælinga um
losun úr framræstu landi. Einnig
er nefnd stóriðja, sem er samt
ekki inni í dæminu varðandi
Parísarsamkomulagið margfræga.
Þannig fá menn út að Íslendingar
mengi t.d. mun meira en stóriðnað-
arríkið Þýskaland.
Aflátsbréfin spila stóra rullu
fyrir Ísland en eru samt utan
sviga
Samkvæmt tölum Orkustofn unar
voru Íslendingar vegna sölu afláts-
bréfa íslenskra raforku fyrirtækja
(upprunavottorða) að losa 7,2
milljónir tonna vegna raforkufram-
leiðslu á síðasta ári. Það er fyrir
utan alla aðra „raunverulega“
koltvísýringslosun í landinu vegna
bruna á jarðefnaeldsneyti. Þessi
losun, sem við tökum á okkur á
pappírunum til að þóknast við-
skiptamódeli kolefnishagkerfisins,
þýðir þá líka að við séum að taka
á okkur ábyrgð á hluta af losun
Þjóðverja og annarra Evrópuríkja.
Reikningskúnstir af þess um toga
sýna glöggt í hverslags ógöngur
kolefnisumræðan á Íslandi er
komin.
Í tölum Global Carbon er
breytilegs mannfjölda hvers lands
vissulega getið, en þar á bæ dettur
ekki nokkrum lifandi manni í hug
að deila losun viðkomandi landa
niður á einstaka íbúa eins og
íslenskum „loftslagssérfræðing-
um“ þykir best henta sínum mál-
stað. Nær væri að deila losuninni
niður á flatarmál lands.
Ísland með 0,47% hlutfall
af losun Þjóðverja, en 1,49%
ef aflátsbréfin eru talin með
Í tölum GC kemur fram að
kolefnis losun Íslands á árinu 2019
vegna brennslu jarðefnaeldsneytis
hafi verið 3,3 milljónir tonna, en á
sama tíma var Þýskaland að losa
702 milljónir tonna. Samkvæmt
þessu var Ísland að losa 0,47%
hlutfall af heildarlosun Þjóðverja
vegna brennslu jarðefna eldsneytis.
Ísland er um 103 þúsund ferkíló-
metrar en Þýskland um 357 þús-
und ferkílómetrar. Ef aflátsbréfin
eru tekin inn í myndina hafa
Íslendingar verið að losa um 10,5
milljónir tonna af CO2 árið 2019,
eða 1,49% af heildarlosun Þjóð-
verja vegna brennslu jarðefna-
eldsneytis.
ESB-ríkin þriðju stærstu
losendur CO2 í heimi
Evrópusambandsríkin 27 eru
þriðju öflugustu losendur á CO2
í heiminum. Þannig voru þau að
losa um 2,9 milljarða tonna af CO2
á árinu 2019, en sú losun lækkaði
í 2,6 milljarða á árinu 2020, eða
um 11,3%. Þá losaði Indland 2,6
milljarða tonna á árinu 2019 sem
dróst saman í 2,4 milljarða tonna,
eða um 9,1%.
Eins og fyrr segir minnkaði
losun CO2 í Bandaríkjunum úr 5,3
milljörðum tonna á árinu 2019 í
4,7 milljarða tonna, eða um 12,6%.
Reyndar var líka um 2,6% sam-
dráttur á kolefnislosun þar í landi
á milli áranna 2018 og 2019.
Þá var Kína að losa 10,2 millj-
arða tonna á árinu 2019 sem var
aukning frá fyrra ári um 2,2%. Á
árinu 2020 dróst losunin í Kína
saman um 1,7% og var þá 10 millj-
arðar tonna.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Ísland losar 0,47% af heildarlosun Þjóðverja af CO2 vegna brennslu á jarðefnaeldsneyti samkvæmt tölum Global Carbon:
Kína er öflugast og losar um þrjú
þúsund sinnum meira en Ísland
– Fimmtán þjóðir með 72,2% af heildarlosun heimsbyggðarinnar og Ísland er númer 143 af 221 þjóð á listanum
Heimshlutar/Lönd 2019 2019 2020 2020
Kína 10,2 2.2% -1.7% 10.0
Bandaríkin (BNA) 5,3 -2.6% -12.2% 4,7
ESB 27 2,9 -4.5% -11.3% 2,6
Indland 2,6 1.0% -9.1% 2,4
Svíþjóð nr. 60 á lista af 221 landi 0,043
Noregur nr. 61 0,042
Finnland nr. 63 0,042
Danmörk nr. 77 0,032
Ísland nr. 143 0,0033
Færeyjar nr. 171 0,0007
Grænland nr. 180 0,0005
Öll lönd heims* Samtals: 36.4 0.1% -6.7% 34.1
Heimildir: Friedlingstein et al 2020; Global Carbon Budget 2020
* Innifalið í þessum tölum er losun á CO2 vegna alþjóðaflugs og skipasiglinga sem venjulega er ekki talið með í alþjóðatölum.
Losun landa heims á koltvísýringi CO2 vegna brennslu jarðefnaeldsneytis
Losun CO2 í milljörðum
tonna á ári
aukning/minnkun í
prósentum
aukning/minnkun í
prósentum
Losun CO2 í milljörðum
tonna á ári
Kol eru enn undirstaðan í raforkuframleiðslu heimsins
– Vesturlandabúar firra sig ábyrgð með því að láta Kínverja framleiða fyrir sig iðnvarning eins og skip, strætisvagna og rafhlöður í bíla
Brennsla kola til að knýja raf-
orkuver er gríðarleg í heim inum
og virðist lítið lát vera á þrátt fyrir
fallegt hjal á alþjóða ráðstefnum
sem helst virðist stefnt að því
að koma inn sam visku biti hjá
almenningi. Stórframleið endur
raforku halda samt ótrauð ir
áfram að nota kol. Á síðasta ári
var kolefnisútblástur vegna raf-
orkuframleiðslu í heim inum meiri
en þegar Parísar sam komulagið
var undirritað 2015.
Á árinu 2020 var 61% af raf-
orkuframleiðslu heimsins búin til
með jarðefnaeldsneyti og þá aðal-
lega kolum. Raforkueftirspurn dróst
lítillega saman í heiminum á árinu
2020, eða um 0,1% samkvæmt
tölum EMBER. Það var í fyrsta
sinn síðan 2009 að samdráttur var
mælanlegur í raforkunotkun. Það
stóð þó ekki lengi Því í desember
2020 var eftirspurnin orðin meiri en
í desember 2019. Á Indlandi hafði
eftirspurnin þá aukist um 5%, um
2% í Evrópusambandsríkjunum, um
3% í Japan, um 2% í Suður-Kóreu,
um 3% í Tyrklandi og um 2% í
Bandaríkjunum (BNA).
Aukin eftirspurn eftir raforku
í Kína á árinu 2020 leiddi til 2%
aukningar á framleiðslu raforku
með kolum þar í landi. Þannig var
raforkueftirspurnin í Kína um 33%
meiri á árinu 2020 en á árinu 2015.
Aukningin nam meiru en öll eft-
irspurnin á Indlandi á árinu 2020.
Kína ber nú ábyrgð á 53% af allri
raforku sem framleidd er með kolum
á heimsvísu, en það hlutfall var 44%
árið 2015.
Kínverjar taka á sig
skömmina fyrir aðrar þjóðir
Þessi raforkuframleiðsla með kolum
í Kína er þó langt í frá til að þókn-
ast eingöngu aukinni eftirspurn
Kínverja sjálfra. Mjög drjúgan
skerf af þessari auknu eftirspurn
má rekja til iðnaðarframleiðslu fyrir
aðra jarðarbúa. Þannig geta aðrar
þjóðir sagst minnka sinn útblástur á
CO2 með því að láta Kínverja fram-
leiða fyrir sig hluti eins og sólorku-
spegla, bílarafhlöður, rafmagnbíla,
vind myllur, farsíma, sjónvörp og
margvísleg önnur raftæki. Einnig
skip, strætisvagna og flugvélar. Svo
benda kaupendur þessara tækja víða
um heim, þar á meðal á Íslandi, yf-
irlætisfullir á Kínverja sem stærsta
sökudólginn í kolefnislosun.
Sautján ríki með yfir
2000 kolaorkuver
Á yfirstandandi ári eru 1.082 kola-
orkuver í rekstri í Kína samkvæmt
nýjustu tölum Statista yfir orku og
umhverfi og kolaorku í 17 löndum.
Þá eru 281 kolaorkuver á Indlandi
og 252 í Bandaríkjunum. Síðan
kemur Japan með 87 kolaorku-
ver, Rússland með 85, Indónesía
með 77, Þýskaland er í sjöunda
sæti með 74 og Pólland í því átt-
unda með 50. Þar á eftir kemur
Tyrkland með 32 kolaorkuver,
Tékkland með 29, Víetnam með
25 og Filippseyjar með 23. Suður-
Kórea er svo með 22 kolaorkuver,
Kasakstan er með 21, Úkraína er
með 21, Taívan er með 20 og
Ástralía er í sautjánda sæti með
19 kolaorkuver.
Aukin raforkuframleiðsla
með hreinni orku heldur
ekki í við eftirspurn
Þrátt fyrir mikla kolanotkun við
raforkuframleiðslu eru farin að
sjást teikn á lofti um einhvern
viðsnúning, allavega í sumum
ríkjum. Þannig dróst kolanotkun
við raforkuframleiðslu saman
um 4% á árinu 2020, eða um
346 Terawattstundir. Það stafar
að vísu að einhverju leyti af sam-
drætti í iðnaði. Jákvæði þáttur-
inn er að raforkuframleiðsla á
heimsvísu með sólar- og vind-
orku jókst á sama tíma um 314
Terawattstundir, eða um meira en
nemur heildarframleiðslu Breta
á raforku. Þetta er samt langt frá
samþykktum alþjóðlegum mark-
miðum um orkuskipti.
Kínverjum hefur verið legið á hálsi fyrir að losa mest allra þjóða af koltvísýringi vegna brennslu á jarðefnaeldsneyti.
Í raun er drjúgur hluti þeirrar losunar til komin vegna framleiðslu á iðnvarningi fyrir aðrar þjóðir.