Bændablaðið - 26.08.2021, Page 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
21Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
Vísindamenn við Háskólann í Leicester hafa uppgötvað byltingarkennda aðferð við endurvinnslu:
Hljóðbylgjutækni nýtt við endurvinnslu á bílarafhlöðum
– Svipuð tækni er notuð við tannlækningar og er sögð 100 sinnum fljótlegri og vistvænni en eldri endurvinnsluaðferðir
Vísindamenn við Háskólann í
Leicester hafa þróað nýja og
snjalla aðferð til að endurvinna
rafhlöður rafknúinna ökutækja
með nýrri nálgun sem margir
hafa kynnst í tannlæknastólnum.
Það voru vísindamenn Faraday
stofnunarinnar sem unnu að verk
efni um endurvinnslu liþíumjónaraf
hlöðu (ReLiB) undir forystu Andy
Abbott, prófessors við
Háskólann í Leicester,
sem uppgötvuðu
þessa nýju en samt
þrautreyndu aðferð.
Hún felur í sér að
nýta hljóðbylgjur til
að aðskilja dýrmæt
efni frá rafskautum
svo að hægt er að
endurheimta efnið
að fullu úr rafhlöð
um að loknum líf
tíma þeirra. Greint
var frá þessu á vef
síðu ScienceDaily
29. júní síðast
liðinn.
Núverandi endurvinnslu að ferðir
við endur nýtingu litíumjónaða raf
hlöðu væri að setja venjulega raf
geyma í tætara eða í háhitaofn. Síðan
er þörf á flóknu eðlis og efnafræði
legu ferli til að ná úr þessu nothæf
efni. Þessar endur vinnsluleiðir eru
orkufrekar og óhagkvæmar.
Sýnt hefur verið fram á að
með nýju aðferð vísindamanna í
Leicester háskóla er hægt að endur
heimta um 80% af því liþíum sem
var í upprunalegu rafhlöðunum og í
hreinna ástandi en mögulegt er með
eldri aðferðum.
Vandinn snerist um að
aðskilja dýrmæt efni
Áskorun vísindamannanna snerist
um hvernig ætti að aðskilja mikil
væg efni, svo sem liþíum, nikkel,
mangan og kóbalt úr notuðum raf
hlöðum á fljótlegan, hagkvæman
og umhverfisvænan hátt. Hafa
þeir dottið niður á nýja aðferð sem
aðlagar tækni sem þegar er í mik
illi notkun í matvælaiðnaðinum
og m.a. í tannlækningum. Það er
„Ultrasonic delamination“ tækni
sem sprengir í raun virku efnin
sem sóst er eftir úr rafskautunum
og skilur eftir ál eða kopar. Ferlið
hefur reynst mjög árangursríkt við
að fjarlægja grafít og liþíum nikkel,
mangan og kóbalt oxíð úr rafhlöð
unum sem almennt er þekkt sem
NMC. Rannsóknirnar hafa verið
birtar í Green Chemistry og rann
sóknarteymið undir forystu prófess
ors Abbott hefur sótt um einkaleyfi
á tækninni.
100 sinnum fljótlegri og vist-
vænni endurvinnsluaðferð
„Þessi nýja aðferð er 100 sinnum
fljótlegri og vistvænni en hefð
bundin tækni til að endurvinna
rafhlöður. Þá leiðir hún til meiri
hreinleika endurheimtra efna.
Það virkar í meginatriðum á
sama hátt og afkölkunartæki tann
læknis og brýtur niður límbönd
milli húðarlagsins og undirlagsins.
Það er líklegt að upphafleg
notkun þessarar tækni muni færa
endurunnið efni beint aftur í fram
leiðslu línunnar fyrir rafhlöður.
Þetta er raunverulegt skref sem
gjörbreytir endurvinnsluferli raf
geymanna,“ segir Andy Abbott.
„Til að hámarka notagildi raf
hlöðutækninnar og innleiðingu
hennar í Bretland verðum við að
horfa á allt ferlið, frá námuvinnslu
mikilvægra efna til framleiðslu
rafgeyma og endurvinnslu þeirra.
Þannig verðum við að skapa
hringrás í hagkerfi sem er bæði
sjálfbær fyrir jörðina og arðbært
fyrir iðnaðinn,“ segir Pam Thomas,
prófessor og forstjóri Faraday
stofnunarinnar.
„Rannsóknarhópurinn er
í frumviðræðum við nokkra
rafhlöðu framleiðendur og endur
vinnslufyrirtæki um að setja upp
tæknibúnað á þeirra iðnaðar
svæðum á yfirstandandi ári með
það að markmiði að veita leyfi fyrir
nýtingu tækninnar til lengri tíma.
Rannsóknarteymið hefur prófað
tæknina frekar á fjórum algengustu
rafhlöðutegundunum og komist að
því að hún skilar sömu afköstum í
öllum tilvikum.“ /HKr.
Ónýtar bílarafhlöður
eru þegar farnar að
skapa vandamál víða
um heim þar sem
mjög kostnaðarsamt,
óvistvænt og orkufrekt
er að endurvinna málm
efnin í þeim.
Vísindamenn við Leicesterháskóla gætu hafa dottið í lukkupottinn, ef
tækni sem þeir hafa kynnt reynist hagkvæm við endurvinnslu málmefna
úr bílarafhlöðum.
Hljóðbylgjutækni sem notuð hefur
verið til að hreinsa tannstein af
tönnum fólks er talin geta nýst
m.a. við endurvinnslu á liþíum Ion
rafhlöðum.
Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • 577-1515 • Nýtt! vefverslun: www.skorri.is
Finnsk gæði sem henta vel
fyrir íslenskar aðstæður
VETRARBÚNAÐUR
HILLTIP
Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík
551 5464 / wendel.is