Bændablaðið - 26.08.2021, Qupperneq 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
Skrifað hefur verið undir verk-
samning vegna byggingar brúa
yfir Hverfisfljót og Núpsvötn og
er hann á milli Vegagerðarinnar
og ÞG Verks sem átti lægsta tilboð
í verkið, 1.425 milljónir króna,
nánast sama upphæð og áætlaður
verktakakostnaður var. Ljúka á
verkinu um miðjan nóvember á
næsta ári.
Brúin yfir Hverfisfljót verður
74 metra löng en einnig verður
byggður nýr vegur til að tengja hana
vegakerfinu. Þá verður byggður
nýr áningarstaður við Hverfisfljót
í stað núverandi áningarstaðar sem
hverfur undir nýjan veg. Brúin yfir
Núpsvötn verður 138 metra löng
auk tengivega og þá verður nýr
áningastaður einnig gerður við
brúna.
Einbreiðum brúm fækkar
Báðar brýrnar leysa af hólmi
einbreiðar brýr og mun því slíkum
fækka um tvær á Hringveginum,
sunnan Vatnajökuls, við þessa
framkvæmd. Tilgangurinn
með byggingunni er einmitt að
fækka einbreiðum brúm og auka
umferðaröryggi sem og að stuðla
að greiðari samgöngum, en í báðum
tilvikum mun umferðaröryggi
aukast til muna að því er fram
kemur á vefsíðu Vegagerðarinnar.
ÞG Verk er einnig að smíða nýja
brú yfir Jökulsá á Sólheimasandi
og kom fram hjá Þorvaldi
Gissurarsyni, forstjóra ÞG Verks,
að heilmikil samlegðaráhrif og
hagræðing sé af því að vinna þessi
verk saman. Bergþóra Þorkelsdóttir,
forstjóri Vegagerðarinnar, segir
fagnaðarefni að fækka einbreiðum
brúm á Hringvegi og víðar þar sem
umferð er mikil. Áhersla væri hjá
Vegagerðinni að fækka einbreiðum
brúm á stærri köflum þannig að ekki
væri ein og ein slík á stangli þegar
kæmi að umferðarmiklum vegum.
Við þessa framkvæmd og með
brúnni á Sólheimasandi, sem var
ein af þessum stöku brúm, mun
einbreiðum brúm á Hringveginum
fækka úr 32 í 29. Einbreiðum brúm
hefur fækkað hratt síðustu ár þótt
mikið átak sé enn eftir, sérstaklega
á Suðausturlandi. /MÞÞ
Vatnshæð í Þórisvatni hefur
aldrei mælst lægri en í sumar
og er staðan á vatninu áminning
um mikilvægi þess að geta flutt
raforku á milli landshluta hverju
sinni. Á sama tíma og vatnshæð
er óvenju lág í Þórisvatni er
staða miðlunarlóna á Norður- og
Austurlandi ágæt. Staðan veldur
gríðarlegu álagi á byggðalínuna
sem komin er að þolmörkum að
því er fram kemur í frétt á vefsíðu
Landsnets.
Guðmundur Ingi Ásmundsson,
forstjóri Landsnets, segir þar að
rekstur byggðalínunnar hafi verið
þungur í sumar en orkuflutningar á
milli landshluta þar sem lónstaðan
er góð og þangað sem hún er verri
hafi valdið því að flutningur hafi
verið við öryggismörk í allt sumar.
Við slíkar aðstæður megi lítið út
af bregða til að raforkunotendur
verði fyrir truflunum. Mikið álag
eða fullnýting lína auki flutningstöp
og leiði til verri nýtingar virkjana.
Það hafi svo í för með sér lakari
árangur í umhverfis- og loftslags-
málum, auk þess sem kostnaður við
orkukaup vegna flutninga aukist
verulega.
Nauðsynlegt að endurnýja
40 ára gamla byggðalínu
Veðurlag á Suður- og Vesturlandi
er gjarnan frábrugðið því sem er á
Norður- og Austurlandi og birtist
það greinilega nú í mismunandi
stöðu miðlunarlóna í hverjum
landshluta. „Sú staða sem nú er
uppi sýnir hversu brýn uppbygging
flutningakerfis raforku er, sérstak-
lega tenging landshlutanna. Við
hjá Landsneti höfum lengi bent á
nauðsynlega endurnýjun byggða-
línunnar, sem nú er yfir 40 ára
gömul, þannig að við getum mætt
betur áskorunum framtíðarinnar
vegna loftslagsbreytinga og raf-
væðingar,“ segir Guðmundur Ingi.
Betri staða blasir við á
Norðaustur- og Austurlandi
Nú er unnið við tvo stóra áfanga
uppfærslu nýrrar kynslóðar
byggðalínunnar. Fyrst er að nefna
tengingu á milli Kröfluvirkjunar og
Fljótsdalsvirkjunar, um Hólasand,
til Akureyrar. Þessar framkvæmdir
ganga vel og þegar þeim lýkur
verður staðan önnur og betri á
Norðaustur- og Austurlandi, þar
sem litlir möguleikar hafa verið
á að auka raforkunotkun. Um leið
verður raforkukerfið stöðugra og
þolnara gagnvart áföllum.
Tengja Blönduvirkjun
inn á Eyjafjarðarsvæðið
Seinni hluti uppfærslu byggða-
línunnar er einnig hafinn, en þar er um
að ræða tengingu Blönduvirkjunar
við Eyjafjarðarsvæðið og línu frá
Hvalfirði yfir Holtavörðuheiði
að Blönduvirkjun. Vinna við
mat á umhverfisáhrifum þessara
framkvæmda er hafin ásamt
umfangsmiklu samráðsferli
vegna þeirra þar sem þátt taka
hagaðilar, sveitarstjórnir, náttúru-
verndarsamtök og landeigendur.
Væntir Landsnet þess að vandaður
undirbúningur leiði til betri sáttar
um framkvæmdir líkt og var um þær
stóru framkvæmdir sem í gangi eru
nú. /MÞÞ
LÍF&STARFSMÖLUN&RÉTTIR
Nauðsynlegt er að endurnýja byggðalínu sem er yfir 40 ára gömul svo
hægt sé að mæta betur áskorunum framtíðar vegna loftslagsbreytinga og
rafvæðingar. Unnið er um þessar mundir við tvo stóra áfanga í uppfærslu
nýrrar kynslóðar byggðalínu. Mynd / Landsnet
Vatnshæð í Þórisvatni aldrei lægri en í sumar:
Mikið álag á byggðalínu sem
komin er að þolmörkum
Nýjar brýr yfir Hverfisfljót og Núpsvötn:
Leysa einbreiðar brýr af hólmi
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Þorvaldur Gissurarson,
forstjóri ÞG Verks, skrifa undir verksamning vegna byggingar brúa yfir
Hverfisfljót og Núpsvötn.
Stóðréttir haustið 2021
Stóðréttir verða með öðrum brag
en fyrri ár vegna kórónu veiru-
faraldursins.
Vegna smitvarna og fjölda-
takmarkana eru allir hvattir til að
kynna sér vinnulag á hverjum stað
áður en haldið er til rétta.
Sjá upplýsingar um fjárréttir á
bls. 32-33.
/TB
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún. laugardaginn 25. sept. kl. 16.00
Árhólarétt (Unadalsrétt) við Hofsós, Skag. föstudaginn 24. sept.
Deildardalsrétt í Deildardal, Skag. föstudaginn 24. sept.
Flókadalsrétt, Fljótum, Skag. Upplýsingar vantar.
Fossárrétt á Skaga, A.-Hún. laugardaginn 18. sept.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún. sunnudaginn 19. sept. kl. 16.00
Kjalarlandsrétt, A.-Hún. laugardaginn 18. sept.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugardaginn 25. sept.
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 2. okt. kl. 13.00
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V. - Hún. laugardaginn 4. sept. kl. 7.00
Selnesrétt á Skaga, Skag. laugardaginn 18. sept.
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugardaginn 18. sept. kl. 14.00
Skrapatungurétt í A.-Hún. sunnudaginn 19. sept. kl. 11.00
Staðarrétt í Skagafirði laugardaginn 18. sept.
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf. laugardaginn 2. okt. kl. 13.00
Unadalsrétt (Árhólarétt) við Hofsós, Skag. föstudaginn 24. sept.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. laugardaginn 25. sept. kl. 9.00
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardaginn 2. okt. kl. 11.00
Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 2. okt. kl. 10.00
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardaginn 25. sept. kl. 12.30