Bændablaðið - 26.08.2021, Side 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
LÍF&STARF
Sjálfbærni og sköpun er heiti
á námi sem boðið er upp á við
Hallormsstaðaskóla. Bryndís
Fiona Ford skólameistari segir að
um sé að ræða algjörlega einstakt
nám hér á landi og þótt víðar væri
leitað. Þetta er í þriðja sinn sem
námið er í boði og hafa viðtökur
verið góðar.
Í náminu verði blandað saman
fræðilegri og verklegri nálgun á sjálf-
bærni með áherslu á sköpunargleði
og nýsköpun. Námið henti þeim vel
sem áhuga hafa á skapandi sjálf-
bærni. Námið er á 4. hæfniþrepi og
flokkast sem viðbótarnám við fram-
haldsskóla og er samsvarandi fyrsta
hæfniþrepi við háskóla. Haustönn
hefst innan tíðar.
Bryndís Fiona segir námið skipt-
ast upp til helminga í verklegt nám
og fræðilegt. Í verklega hlutanum
læra nemendur ýmiss konar hand-
verk og tækni til að nýta auðlindir
náttúrunnar með sjálfbærni að leiðar-
ljósi. Námið er lotuskipt og hefur
hver lota sitt þema þar sem kafað
er ofan í ákveðna þætti mannlegs
lífs, þá sem mestu máli skipta fyrir
sjálfbærni.
„Veturinn hefst á lotu sem kallast
Uppskera og náttúrulegt heilbrigði,
en heilbrigði er undirstaða alls annars
sem við gerum í lífinu. Heilsufræðin
er skoðuð frá ýmsum sjónarhorn-
um og tilraunir gerðar með náttúru-
legar og sjálfbærar leiðir til að bæta
heilsu,“ segir Bryndís Fiona.
Lotunni er, eins og náminu öllu,
skipt upp í verklegan og fræðilegan
áfanga, en í þeim síðarnefnda verður
m.a. farið yfir sögu og umhverfis-
áhrif mismunandi lækningaaðferða.
Lota tekur einnig mið af árstím-
anum, hefðbundinn uppskerutími
stendur yfir og munu nemar tína og
safna saman ýmsu sem náttúran og
matarkista Austurlands hefur upp
á að bjóða.
Matvælaframleiðsla, nytjahlutir,
peningar og listsköpun
Næsta lota fjallar um mat og læra
nemarnir m.a. ýmsar aðferðir til að
verka og varðveita matvæli, kjöt,
mjólk, korn, grænmeti og ávexti.
Fræðilegi hlutinn snýst m.a. um um-
hverfisáhrif matvælaframleiðslu auk
heilsufarslegra áhrifa mismunandi
fæðutegunda. Þá verða nytjahlutir
teknir fyrir í einn lotunni og læra
nemar að búa til gagnlega hluti úr
afurðum náttúrunnar auk þess að
rannsaka umhverfisáhrif þeirra hluta
sem mest eru notaðir og menn telja
sig þurfa.
„Við gefum sérstakan gaum að
þeim áhrifum sem framleiðsla hefur
á heilsu fólks og vistkerfi, ekki síst
með tilliti til ýmissa efna sem safnast
geta upp við framleiðsluna,“ segir
Bryndís Fiona.
Fjármálalota tekur síðan við og
fjallar um peninga og rekstur, m.a.
heimilis, fyrirtækja, jafnvel sveitar-
félaga sem og jarðarinnar allrar. Ein
lota er tileinkuð listsköpun og áhersla
lögð á að nemendur finni sköpunar-
gleði sinni farveg með einhverjum
hætti, en þeirri lotu lýkur með bað-
stofukvöldi þar sem nemar skemmta
hver öðrum.
Orkan er mikilvæg í
sjálfbærniumræðunni
„Við tökum orku líka fyrir í þessu
námi, en hún er eitt mikilvægasta
atriðið í allri sjálfbærniumræðunni.
Í þeirri lotu ætlum við að horfa
sérstaklega til sjálfbærra leiða til
virkjunar, leggja áherslu á smærri
einingar og nemendur munu læra
hvernig bera á sig að við að virkja
lind, vatn og jarðvarma,“ segir
Bryndís Fiona og nefnir einnig að
umhverfisáhrif þessara orkukosta
verði einnig skoðuð, sem og einnig
annarra, m.a. olíu.
„Húsnæði er einnig mikilvægur
þáttur fyrir sjálfbærni og við munum
fara yfir umhverfisáhrif byggingar-
iðnaðarins ásamt því að skoða gamlar
aðferðir og þá verður handbragð við
torf- og grjóthleðslu kennt,“ segir hún.
Náminu lýkur með lokaverkefni
sem nemendur velja sjálfir, en því
er ætlað að samþætta hina ólíku
þræði námsins í eitt verkefni sem
leggur grunn að áframhaldandi starfi
til framtíðar. Skólameistari segir
að nemendur séu hvattir til að láta
áhugasvið sín leiða sig áfram við val
á lokaverkefni.
Lánshæft nám
„Rökræður skipa stóran sess í náminu
en til þess er ætlast að nemendur nái
tökum á rökræðum og virkri hlustun,
geti lagt tilfinningaviðbrögð og fyrir-
fram gefnar skoðanir til hliðar í sam-
skiptum,“ segir hún og bætir við að
áhersla sé líka lögð á lestur vísinda-
greina og undirstöðuatriði í skrifum
þeirra kennd. Einnig nefnir hún að
meðan á náminu stendur verði farið
í heimsóknir og vettvangsferðir um
Austurland. Námið er lánshæft hjá
Menntasjóði námsmanna og það er
einnig hluti af úrræði stjórnvalda og
Vinnumálastofnunar, „Nám er tæki-
færi“, sem gefur atvinnuleitendum
kost á að stunda nám á atvinnuleysis-
bótum. /MÞÞ
Hallormsstaðaskóli býður upp á nám í sjálfbærni og sköpun:
Hentar öllum sem áhuga hafa
á skapandi sjálfbærni
Bryndís Fiona Ford, skólameistari Hallormsstaðaskóla.
Ein lota námsins í Hallormsstaðaskóla fjallar um mat og læra nemarnir m.a. ýmsar aðferðir til að verka og varðveita
matvæli, kjöt, mjólk, korn, grænmeti og ávexti.
Farið er í heimsóknir og vettvangsferðir um Austurland þar sem
margt er að sjá og skoða.
Nám í Sjálfbærni og sköpun er í boði við Hallormsstaðaskóla, en
þar er blandað saman fræðilegri og verklegri nálgun á sjálfbærni
með áherslu á sköpunargleði og nýsköpun.