Bændablaðið - 26.08.2021, Page 38

Bændablaðið - 26.08.2021, Page 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 38 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 LÍF&STARF Sjálfbærni og sköpun er heiti á námi sem boðið er upp á við Hallormsstaðaskóla. Bryndís Fiona Ford skólameistari segir að um sé að ræða algjörlega einstakt nám hér á landi og þótt víðar væri leitað. Þetta er í þriðja sinn sem námið er í boði og hafa viðtökur verið góðar. Í náminu verði blandað saman fræðilegri og verklegri nálgun á sjálf- bærni með áherslu á sköpunargleði og nýsköpun. Námið henti þeim vel sem áhuga hafa á skapandi sjálf- bærni. Námið er á 4. hæfniþrepi og flokkast sem viðbótarnám við fram- haldsskóla og er samsvarandi fyrsta hæfniþrepi við háskóla. Haustönn hefst innan tíðar. Bryndís Fiona segir námið skipt- ast upp til helminga í verklegt nám og fræðilegt. Í verklega hlutanum læra nemendur ýmiss konar hand- verk og tækni til að nýta auðlindir náttúrunnar með sjálfbærni að leiðar- ljósi. Námið er lotuskipt og hefur hver lota sitt þema þar sem kafað er ofan í ákveðna þætti mannlegs lífs, þá sem mestu máli skipta fyrir sjálfbærni. „Veturinn hefst á lotu sem kallast Uppskera og náttúrulegt heilbrigði, en heilbrigði er undirstaða alls annars sem við gerum í lífinu. Heilsufræðin er skoðuð frá ýmsum sjónarhorn- um og tilraunir gerðar með náttúru- legar og sjálfbærar leiðir til að bæta heilsu,“ segir Bryndís Fiona. Lotunni er, eins og náminu öllu, skipt upp í verklegan og fræðilegan áfanga, en í þeim síðarnefnda verður m.a. farið yfir sögu og umhverfis- áhrif mismunandi lækningaaðferða. Lota tekur einnig mið af árstím- anum, hefðbundinn uppskerutími stendur yfir og munu nemar tína og safna saman ýmsu sem náttúran og matarkista Austurlands hefur upp á að bjóða. Matvælaframleiðsla, nytjahlutir, peningar og listsköpun Næsta lota fjallar um mat og læra nemarnir m.a. ýmsar aðferðir til að verka og varðveita matvæli, kjöt, mjólk, korn, grænmeti og ávexti. Fræðilegi hlutinn snýst m.a. um um- hverfisáhrif matvælaframleiðslu auk heilsufarslegra áhrifa mismunandi fæðutegunda. Þá verða nytjahlutir teknir fyrir í einn lotunni og læra nemar að búa til gagnlega hluti úr afurðum náttúrunnar auk þess að rannsaka umhverfisáhrif þeirra hluta sem mest eru notaðir og menn telja sig þurfa. „Við gefum sérstakan gaum að þeim áhrifum sem framleiðsla hefur á heilsu fólks og vistkerfi, ekki síst með tilliti til ýmissa efna sem safnast geta upp við framleiðsluna,“ segir Bryndís Fiona. Fjármálalota tekur síðan við og fjallar um peninga og rekstur, m.a. heimilis, fyrirtækja, jafnvel sveitar- félaga sem og jarðarinnar allrar. Ein lota er tileinkuð listsköpun og áhersla lögð á að nemendur finni sköpunar- gleði sinni farveg með einhverjum hætti, en þeirri lotu lýkur með bað- stofukvöldi þar sem nemar skemmta hver öðrum. Orkan er mikilvæg í sjálfbærniumræðunni „Við tökum orku líka fyrir í þessu námi, en hún er eitt mikilvægasta atriðið í allri sjálfbærniumræðunni. Í þeirri lotu ætlum við að horfa sérstaklega til sjálfbærra leiða til virkjunar, leggja áherslu á smærri einingar og nemendur munu læra hvernig bera á sig að við að virkja lind, vatn og jarðvarma,“ segir Bryndís Fiona og nefnir einnig að umhverfisáhrif þessara orkukosta verði einnig skoðuð, sem og einnig annarra, m.a. olíu. „Húsnæði er einnig mikilvægur þáttur fyrir sjálfbærni og við munum fara yfir umhverfisáhrif byggingar- iðnaðarins ásamt því að skoða gamlar aðferðir og þá verður handbragð við torf- og grjóthleðslu kennt,“ segir hún. Náminu lýkur með lokaverkefni sem nemendur velja sjálfir, en því er ætlað að samþætta hina ólíku þræði námsins í eitt verkefni sem leggur grunn að áframhaldandi starfi til framtíðar. Skólameistari segir að nemendur séu hvattir til að láta áhugasvið sín leiða sig áfram við val á lokaverkefni. Lánshæft nám „Rökræður skipa stóran sess í náminu en til þess er ætlast að nemendur nái tökum á rökræðum og virkri hlustun, geti lagt tilfinningaviðbrögð og fyrir- fram gefnar skoðanir til hliðar í sam- skiptum,“ segir hún og bætir við að áhersla sé líka lögð á lestur vísinda- greina og undirstöðuatriði í skrifum þeirra kennd. Einnig nefnir hún að meðan á náminu stendur verði farið í heimsóknir og vettvangsferðir um Austurland. Námið er lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna og það er einnig hluti af úrræði stjórnvalda og Vinnumálastofnunar, „Nám er tæki- færi“, sem gefur atvinnuleitendum kost á að stunda nám á atvinnuleysis- bótum. /MÞÞ Hallormsstaðaskóli býður upp á nám í sjálfbærni og sköpun: Hentar öllum sem áhuga hafa á skapandi sjálfbærni Bryndís Fiona Ford, skólameistari Hallormsstaðaskóla. Ein lota námsins í Hallormsstaðaskóla fjallar um mat og læra nemarnir m.a. ýmsar aðferðir til að verka og varðveita matvæli, kjöt, mjólk, korn, grænmeti og ávexti. Farið er í heimsóknir og vettvangsferðir um Austurland þar sem margt er að sjá og skoða. Nám í Sjálfbærni og sköpun er í boði við Hallormsstaðaskóla, en þar er blandað saman fræðilegri og verklegri nálgun á sjálfbærni með áherslu á sköpunargleði og nýsköpun.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.