Bændablaðið - 26.08.2021, Síða 41

Bændablaðið - 26.08.2021, Síða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 41Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Þegar líður á sumar verður maður alltaf þakklátari og þakklátari fyrir hvern bjartan sumardag sem okkur er gefinn. Þeir hafa verið margir góðir í sumar, líklega þó helst fyrir austan og norðan þaðan sem sólbrúnar og sælar myndir hafa flætt um samfélagsmiðla. Eftir heyskap breytist takturinn og eftirvæntingin eftir göngum og réttum tekur völdin. Síðasta haust var réttarstemningin önnur, enda hefur veiran lagst illa á hefðbundna viðburði og samkomur frá því hún heimsótti okkur fyrir einu og hálfu ári síðan. Við verðum að líta til framtíðar, enda uppskeruhátíð lýðræðisins í vændum þar sem kosið verður um verk okkar sem störfum í stjórn­ málum og þá ekki síður þá fram­ tíðarsýn sem við höfum upp á að bjóða. Ég lít stoltur yfir síðustu ár á þau mál sem við í Framsókn höfum látið verða að veruleika. Eins og margir hafa orðið varir við þá hefur aldrei verið jafnmikill kraftur í uppbyggingu í samgöngum eins og nú. Mikilvægt er að sá kraftur haldi áfram á næstu árum því af nógu er að taka, bæði í nýjum vegum, höfnum og í viðhaldi á öllum svið­ um. Ísland ljóstengt, ljós í fjós, er verkefni sem klárast á þessu ári og við tekur nýtt metnaðarfullt ver­ kefni: Ísland fulltengt, átak í því að ljúka við ljósleiðaravæðingu þéttbýliskjarnanna út um landið. Samgöngur og fjarskipti eru stór byggðamál eins og við þekkjum öll sem búum utan höfuðborgar­ svæðisins. Þau eru mörg og brýn verkefnin sem þarf að vinna að í landbúnaði á næstu árum. Við í Framsókn höfum lagt áherslu á að nýsköpun í mat­ vælaframleiðslu og landnýtingu verði stórefld. Það er mikill kraftur í greininni þrátt fyrir að umræð­ ur lendi alltof oft í skotgröfunum. Þær skotgrafir þarf að moka ofan í því þær eru beinlínis skaðlegar greininni. Bændur hafa um aldir verið vörslumenn landsins. Þeir taka ástand landsins og heimsins alvarlega enda eru uppsprettur lífsins að mörgu leyti í þeirra höndum því ekki vaxa lærissneiðarnar í kjötborðum stór­ markaðanna. Íslenskur landbúnaður hefur algjöra sérstöðu þegar kemur að heilnæmi og sýklalyfjagjöf. Þá sérstöðu verður að vernda og einnig nýta við markaðssókn erlendis. Þau málefni landbúnaðar sem við í Framsókn setjum á oddinn í kosn­ ingabaráttunni eru einkum: • Að landnýting og ræktun sjá sjálfbær. • Að nýsköpun í matvæla­ framleiðslu og landnýtingu verði stórefld. • Að stuðningur verði aukinn til að stuðla að fjölbreyttri rækt­ un og landnýtingu og kolefn­ isbindingu. • Að frumframleiðendum verði heimilað samstarf eins og þekk­ ist í öllum löndum Evrópu. • Að afurðastöðvum í kjöti verði heimilað samstarf með samb­ ærilegum hætti og í mjólkur­ framleiðslu. • Að bændum verði heimiluð slátrun og vinnsla að undan­ gengnu áhættumati og kennslu. • Að tollasamningi við ESB verði sagt upp og hann endurnýjaður vegna forsendubrests, til dæmis vegna útgöngu Breta úr sam­ bandinu. • Að tollaeftirlit verði hert til muna og gert sambærilegt því sem þekkist í samanburðarlönd­ um okkar. • Að stofnað verði nýtt ráðuneyti landbúnaðar og matvæla þar sem málefni skógræktar, land­ græðslu og eftirlitsstofnana matvæla og landbúnaðar verða undir. Ég vona að þú, lesandi góður, njótir þess sem lifir af sumri og haustsins með öllum sínum fallegu litum og ferskleika í lofti. Og minni um leið á það að framtíðin ræðst á miðjunni. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar og samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra. Lífræn hreinsistöð • Fyrirferðalítil fullkomin sambyggð skolphreinsistöð • Uppfyllir ýtrustu kröfur um gæði hreinsunar • Engin rotþró eða siturlögn 25 ára ábyrgð • Tæming seyru á þriggja til fimm ára fresti • Engir hreyfanlegir hlutir • Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík Sími 517 2220 - petur@idnver.is G ra fik a 19 LESENDARÝNI Öflugur landbúnaður er hagur okkar allra Sigurður Ingi Jóhannsson. Ekki fyrir alls löngu ritaði ég grein sem birt var á landsvísu. Þar fór ég stuttlega yfir sum af þeim vandamálum sem tengjast fiskeldi og þeirri mengun sem því fylgir. Klappstýrur fiskeldis voru fljótar að túlka grein mína á þann hátt að undirritaður væri á móti fiskeldi og vildi bara skella í lás sem fyrst á þeim stöðum sem stunda þá iðju núna. Ég er ekki andsnúinn fiskeldi, þvert á móti þá vil ég gjarnan styðja þá sem eru í þeim iðnaði að koma fiskeldi í betra horf hvað umhverfis­ mál og velferðarmál dýranna varðar. Það þýðir ekki að skella í lás, held­ ur búa til umhverfi sem stuðlar að bættri umhverfisvitund greinarinnar. Mér hefur verið sagt að landeldi geti ekki borgað sig á Íslandi og sé fullreynt. En á sama tíma er stór aðili í sjávarútvegi að skipuleggja 20.000 tonna landeldi. Það skal enginn segja mér að þetta fyrirtæki væri með þessi áform ef það væri ekki hagkvæmt. Fiskeldisstefna Pírata er mjög skýr hvað þetta varðar. Í henni segir meðal annars: Markmið okkar er að hagkvæmara verði að stunda fiskeldi á landi en í sjó. Við munum tryggja að löggjöf um fiskeldi á landi verði einföld og skilvirk. Ljóst er þó að afkoma fjölmargra Íslendinga byggir á því sjókvíeldi sem nú þegar hefur byggst upp við landið. Við hyggj- umst ekki kollvarpa þeim rekstri sem nú þegar er kominn á laggirnar, en gerum kröfu um að fiskeldið fari fram í lokuðum kvíum. Þetta gæti varla verið skýrara, við viljum að búið verði til umhverfi þar sem fiskeldið getur verið rekið í meiri sátt við umhverfið heldur en gert er í dag. Staðan í loftslagsmálum heimsins krefst þess að þessi iðnaður, líkt og aðrir, geri það sem hægt er til að minnka kolefnisfótspor sitt. Með því að færa eldið upp á land eða í lokaðar kvíar er hægt að koma í veg fyrir gríðarlega losun úrgangs í sjóinn, það hlýtur að vera þess virði að losna við þá mengun. Ég hvet kjósendur í komandi kosningum að velja Pírata og velja þar með fólk sem tilbúið er til aðgerða í þessum málaflokki. Rúnar Gunnarsson Höfundur skipar 3. sæti á lista Pírata í Norðausturkjördæmi við alþingiskosningarnar 25. september. Rúnar Gunnarsson. Enn um fiskeldi og um- hverfisvanda þess PDT300 PWP530 ZKP800 PDF300C PDT340 PDD830 Pronar heyvinnutæki tilbúin til afhendingar strax Sláttuvélar PWP900 Tætlur Rakstrarvélar Hafðu samband og fáðu verðtilboð

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.