Bændablaðið - 26.08.2021, Page 44

Bændablaðið - 26.08.2021, Page 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 44 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Á því tímabili sem pistlar mínir fjalla um var ýmislegt farið að gerast sem kalla má hagræðingu við hirðingu búfjár. Gerð og innréttingar gripahúsa tóku breytingum, sumar eftir erlend- um fyrirmyndum, aðrar byggð- ar á lögun að þjóðlegum hefðum. Verkfæri og vélar komu til ýmissa hirðingarverka. Æ fleiri bú væddust mjaltavélum, einkum eftir 1960. Búnaðurinn var ekki flókinn: Sogkerfi lofts leitt um fjósið sem vélföturnar voru tengdar við og hver kýr mjólkuð á sínum bás. Að fenginni fullri fötu var hún tæmd í brúsa sem komið var fyrir í vatnskæli mjólkurhúss. Brúsarnir urðu síðan sendlar á milli bænda og mjólkurbús. Meðhöndlun brúsanna var mikið verk, létt hraustari mönn- um en smáum og veikburða ok ef líkama var ekki beitt rétt. Það var því ekki að ástæðulausu að Magnús Óskarsson kenndi þau vinnubrögð í Bændaskólanum á Hvanneyri og efndi til Íslandsmóts í mjólkurbrúsa- burði að kennslu lokinni. Haustið 1965 kom til próf- unar hjá Verkfæranefnd ríkisins mjólkurtankur með kælibúnaði – þá nefndur mjólkurgeymir – frá Landteknikk A/L í Noregi. Þá voru fyrstu rörmjaltakerfin komin í fjós hérlendis, m.a. Hvanneyrarfjósið, svo renna mátti mjólkinni rak- leitt frá kú í tank. Frumstæður og smár þætti sá búnaður í dag; tankurinn tók aðeins 600 lítra. Hann kældi mjólkina vel en hræri- spjald hans þótti leika mjólkina full harka- lega. Nýir tímar voru í nánd: Rörmjaltakerfin breiddust út, mjólk- ur- tönkum fjölgaði og flutningakerfi mjólkur frá kúabúi til mjólkursamlags var gerbreytt, m.a. með fjárstuðningi frá nýstofnuðum Framleiðnisjóði landbúnaðarins. Tankbíllinn tók við af „Bjössa á mjólkurbílnum“. Með tímanum þróaðist og varð til sú magnaða tækni mjalta og mjólkurmeðferðar sem við þekkjum í dag. Ullin var næst mjólkinni mikil- vægasta afurð búanna. Aftekt var erfiði og hátíð í blöndu; sjálfur rúningurinn aldagróið handverk. Árið 1946 fékk SÍS „eina sam- stæðu af vélklippum Alfa Laval frá Svíþjóð“, skrifaði Árni G. Eylands um landnám þeirrar tækni hérlendis. Runólfur Sveinsson tók þátt í vorrúningi á Hvanneyri um Jónsmessuna 1947, þá nýstað- inn upp af stóli skólastjóra þar: „Notaðar vélklippur og reyndust þær vel.“ skrifaði Guðmundur Jónsson í dagbók sína. Sennilega hafa það verið sauðaklippurnar áðurnefndu frá Alfa Laval og verk Runólfs því ein fyrsta, ef ekki fyrsta, tilraunin til vélrúnings sauðfjár hérlendis. Áratug síðar hóf Búnaðarfélag Íslands að efna til rúningsnámskeiða víða um land þar sem erlendir kunnáttumenn kenndu nýstárleg vinnubrögð við rúning sauðfjár og kynntu framandi rúningsáhöld. Um sama leyti gerði Verkfæranefnd rík- isins mælingar á vinnu(tíma) við vorrúning á allmörgum bæjum í Borgarfirði þar sem beitt var mismunandi áhöldum við verkið. Hnífurinn, og þá helst vasahnífur- inn, hafði gagnast rúningsfólki lengi og vel. Nú komu til sögu sérstakar handklippur til verksins auk vél- klippanna sem með tímanum urðu ráðandi rúningsáhald. Stór varð líka breytingin þegar haustrúningur sauðfjár tók við af vorrúningi svo aðeins séu nefndar slitrur úr afar merkilegri verkháttasögu. Bjarni Guðmundsson LÍF&STARF Með sýnikennslu og námskeiðum voru nýstárleg handbrögð og ný tæki við rúning sauðfjár kynnt bændum. Hér er rúið með sauðaklippum, millistig vasahnífsins og rafknúinna rúningsklippa nútímans. Mynd / Ólafur Guðmundsson. Mjólkað í vélfötu í Hvanneyrarfjósi. Mynd / Ólafur Guðmundsson. Mjólkurtankurinn frá Landteknik. LESENDAGREINAR Er erfitt að skilja réttlæti? Réttlæti hefur verið gert að bann- orði í íslenskri pólitík. Það er talið of „gildishlaðið“ orð sem erfitt er að skilgreina. En er það svo? Alþingismaður hefur sagt mér að ekkert þýði að ræða „réttlæti“ inni á Alþingi. Þannig orðræða sé alltaf skotin í kaf. Einnig sagði lögfræðingur orðrétt þegar ég var ekki sátt við hvernig brotið var á mér: „Þú verður að átta þig á að þetta snýst ekkert um réttlæti“ og var þá m.a. að vísa í lög og dómstóla. Þetta er eitt af því sorglegasta sem ég hef heyrt. Því ég hreinlega skil ekki hvað stjórnmál, störf Alþingis, lög, réttur, dómstólar og bara „kerfið“ allt á að snúast um, ef ekki réttlæti. Réttlæti er ekki flókið Það er hagur „kerfisins“ og allt of margra stjórnmálamanna, að gera einföld mál flókin. Jú, réttlæti er gildishlaðið hugtak en það er ein- faldlega af því það felur í sér gildi. Það felur í sér þau grundvallargildi sem öll samfélög eiga að byggjast á. Ég held að fæstum lesendum finnist erfitt að þekkja eða skilja réttlæti. Það þarf sérstaka „hæfni“ sem sprettur af margra ára sam- sömun með óréttlátu kerfi fyrir slíkt uppgerðar skilningsleysi. Það eru þeir sem þrífast og hagnast á óréttlæti sem vilja gera hugtakið flókið og óskiljanlegt. Staðreyndin er hins vegar sú að almennt spáum við ekkert mikið í réttlætið fyrr en við horfumst í augu við óréttlætið, en þá er fjar- vera réttlætisins líka svo augljós að hún er næstum því líkamlega sár. Þess vegna verður ákall um réttlæti oft tilfinningaþrungið sem passar illa í tilfinningalausa stjórnmálaumræðu. Sjálfsagðar og réttlátar kröfur Flokkur fólksins berst gegn órétt- læti. Kröfur okkar eru svo sjálf- sagðar að fyrir þeim ætti enginn að þurfa að berjast. Krafan um að allir geti lifað hófsömu og mannsæmandi lífi er bæði sjálfsögð og réttlát. Krafan um að fólk fái að eld- ast með reisn og geti notið efri áranna eftir því sem heilsan leyfir, er bæði sjálfsögð og réttlát. Krafan um að allir eigi kost á góðri heilbrigðisþjónustu er bæði sjálfsögð og réttlát. Krafan um að börn upplifi ekki mismunun á grundvelli efnahags er bæði sjálfsögð og réttlát. Krafan um að arðurinn af auð- lindum þjóðarinnar skili sér til þjóðarinnar í stað þess hlaðast í fárra hendur, er bæði sjálfsögð og réttlát. Krafan um að þeir sem urðu fyrir óréttlæti og jafnvel misstu heimili sín í kjölfar bankahrunsins fái upp- reist æru, er bæði sjálfsögð og réttlát. Málsvarar réttlætis fyrir alla Lífið á Íslandi er mörgum mjög gott. Margir geta leyft sér ýmislegt og notið þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Það er gott og þannig á það að vera. Gallinn er bara sá að það eru allt of margir sem hafa það alls ekki gott. Stór hluti þess hóps er fólk sem lent hefur í áföllum, slysum eða veikindum sem gerðu engin boð á undan sér og ekki má gleyma þeim hluta aldraðra sem hefur lítið sem ekkert handanna á milli, þrátt fyrir að hafa aldrei fallið verk úr hendi á starfsævinni. Við erum öll sammála um að það er alveg nóg að takast á við erfiða sjúkdóma án þess að búa í ofaná- lag við stöðugar fjárhagsáhyggjur. Fólk í þessari stöðu hefur alvöru fjárhagsáhyggjur. Ekki áhyggj- ur af því að hafa eytt aðeins um efni fram í útlöndum eða keypt sér nýjan bíl. Nei, þeirra áhyggjur snúast um næstu máltíð, að hafa efni á nauðsynlegum lyfjum, að halda húsnæði sínu. Það er ekkert réttlæti í því að sumir veikjast og aðrir ekki. Við getum ekkert gert í því en við getum sleppt því að gera slæmt ástand verra. Við getum séð til þess að „kerfið“ okkar takið utan um þetta fólk í stað þess að hrinda því frá sér til fátæktar. 350.000 skatta- og skerðingalaust Flokkur fólksins vill að lágmarks- tekjur almennings hér á landi verði 350.000 kr. á mánuði, skatta og skerðingalaust. Þó það myndi breyta lífi þessara einstaklinga, sjáum við öll að þessi tala er engin ofrausn, hún er algert lágmark til að fólk fái lifað mannsæmandi lífi Getum við ekki að minnsta kosti staðið saman um þessa kröfu? Ásthildur Lóa Þórsdóttir formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og í 1. sæti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi Ásthildur Lóa Þórsdóttir. Bænda 9. september

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.