Bændablaðið - 26.08.2021, Síða 51

Bændablaðið - 26.08.2021, Síða 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 51Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Ekki var það illa meint er úrval ljóða og lausavísa eftir Hjálmar Freysteinsson, heimilislæknis við Heilsugæslustöðina á Akureyri. Hjálmar, sem á unga aldri hóf að setja saman vísur og ljóð, var fyrst og fremst þekktur sem skáld gleðinnar og hláturs. Hjálmar hafði frá fyrstu tíð lag á að sjá veröldina í spauglegu ljósi og setja það sem fyrir bar á spaugilegan hátt án þess að að vera rætinn eða orðljótur. Hann orti einnig ljóð sem voru alvarlegs eðlis og tjáðu á tilfinningar hans fyrir samtíð sinni, samferðafólki og náttúrunni. Með pálmann í höndunum! Veg það eykur valdamanns Að verður honum allt að fé. Nú skilst mér í höndum hans Hafi vaxið pálmatré. Yfir 700 lausavísur Í bókinni Ekki var það illa meint sem Bókaútgáfan Hólar sendi nýverið frá sér er að finna yfir 700 lausavísur og 40 ljóð eftir Hjálmar í samantekt Höskuldar Þráinssonar og Ragnars Inga Aðalsteinsonar, auk nótna að tveimur lögum sem samin hafa verið við ljóð hans ./VH HAFÐU ÖRYGGIÐ Í FYRIRRÚMI Gott úrval af vottuðum hífi- og festingabúnaði Ísfell ehf., er fullgildur meðlimur að Lifting Equipment Engineers Association sem eru leiðandi samtök hvað varðar vottun fyrirtækja sem nota og framleiða hífibúnað. Þekking og þjónusta isfell.is Sími 5200 500 LÍF&STARF Í huga fólks er fyrsta skóflustungan ætíð visst merki um upphaf; eitthvað nýtt er í sjónmáli, verk til hins betra er hafið. Erlendur auðjöfur reisir kísilver í afskekkta þorpinu Selvík. Af hverju er ekki íbúafundur til þess að upplýsa fólkið betur? Býr eitthvað meira að baki? Hvað með hættumat vegna jarðskjálfta? Selvík er á einu virkasta jarð­ skjálftasvæði landsins. Ingibjörg Hjartardóttir höfundur fetar glæpsamlegar slóðir í Jarðvísindakona deyr og gerir stór samtímaleg málefni að yrkisefni sínu. Undir niðri kveður þó við glettinn tón enda ekki á hverjum degi sem konur á besta aldri lenda í hringiðu sakamála. Útgefandi er Salka. Í sögunni er forvitni Margrétar Guðmundardóttur, sjálfskapaðs spæjara, vakin þegar ung jarðvísindakona finnst látin í bíl sínum á heiðinni og óvæntir atburðir eiga sér stað í þessu friðsæla þorpi. Margrét rekur hvern þráð sem á vegi hennar verður og unir sér engrar hvíldar fyrr en sannleikurinn lítur dagsins ljós. /VH Ljóð og lausavísur: Skáld hláturs og gleðinnar kom aftur fyrir Alþingi 1879 en varð ekki útrætt vegna tímaskorts. Árið 1881 tók Alþingi frumvarpið fyrir og samþykkti það árið eftir sem lög eftir áratuga umfjöllun. Til samanburðar var frumvarp til þjóðlendulaga kynnt Alþingi 1996 en ekki mælt fyrir því. Það var gert á löggjafarþinginu 1997­ 98 og samþykkt eftir umræður sem endurspegluðu ekki mikilvægi og áhrifa laganna. Með landamerkjalögum 1882 er, líkt og áður sagði, fyrst berum orðum lögskipað að landeigendur skuli gera merki um lönd sín og halda þeim merkjum við, og að gerð skuli landamerkjaskrá fyrir hverja jörð sem afhent er sýslu­ manni. Með lögunum var veittur 5 ára frestur til að lýsa landamerkj­ um. Fresturinn var lengdur um 2 ár með lagabreytingu 1887. Í nefndaráliti um frumvarpið sem varð að landamerkjalögum nr. 5/1882 segir að þeim sé ætlað að eyða þeirri miklu óvissu um landamerki jarða sem víða á sér stað í landinu og breyta réttarfari í landaþrætumálum. Í álitinu segir „að reynslan er nógsamlega búin að sýna, að með lögum þeim og rjettarfari, sem nú gildir, er næsta erfitt, ef ekki ókleyft, að fá slík mál útkljáð þannig, að óvissan um þrætuefnið hverfi.“ Landamerkjalögum var því ætlað að bæta úr brýnni þörf og koma í veg fyrir og leysa deilur á milli landeigenda, sem höfðu verið mjög tíðar hér á landi, bæði að fornu og nýju. Það hefur verið tilgangur landamerkjalaga frá öndverðu. Tilgangurinn var ekki að sanna fyrir stjórnvöldum eignarhald sitt á landi, þó landa­ merkjaskrár væru í vörslum yfir­ valda, sýslumanna. Ekki þarf að lesa margar landa­ merkjalýsingar frá Vestfjörðum, sem gerðar voru innan hins skamma frests eftir gildistöku landamerkjalaga 1882, til að sjá að þar eru nágrannabændur aðliggj­ andi jarða við strandlínuna, þar sem Vestfirðingar búa og hafa búið frá landnámi, að koma saman til að lýsa mörkum jarða sinna gagnvart hvor öðrum, alls óvanir skjalagerð en búið að aldagamalli þekkingu bændasamfélagsins á ákvæð­ um Jónsbókar um mörk jarða; um netlög til sjávar og vatnaskil til fjalla enda er hvorugs getið í landamerkjalýsingum. Ef bændur treysta gildi aldagamallar lagareglu Jónsbókar um merki jarða til fjalla er óþarfi að skrifa hana upp í landa­ merkjalýsingum. Frumvarp til landamerkjalaga 1917 og rannsókn Reynslan af landamerkja­ lögum 1882 var mjög misjöfn. Framkvæmd þeirra þótti ófullnægj­ andi og tími sá er gefin var til lýsa merkjum of skammur. Leiddi það til þess að árið 1917 er borið fram á Alþingi frumvarp til nýrra landa­ merkjalaga. Aðalstefna frumvarpsins var að öll landamerki skyld að nýju rannsökuð, að landamerkjaskrár skyldu allar af nýju gerðar og að sýslumenn skyldu, eftir að þetta hafði farið fram, ótilkvaddir stefna aðiljum fyrir dóm, þeim er eigi urðu á merki sáttir. Málinu var frestað til næsta þings að tillögu forsætisráðherra sem óskað eftir að málið yrði skoð­ að nánar. Samþykkti Alþingi 1917 því að taka málið af dagskrá: „Í því trausti, að stjórnin fram til næsta reglulega þings rannsaki nauðsyn á endursamningu landamerkjalaga, og leggi fram frumvarp um það efni fyrir þingið, ef nauðsyn virð­ ist á.“ Líkt og rannsóknar var þörf árið 1917 á framkvæmd landa­ merkjalaga 1882 er í dag þörf á rannsókn á framkvæmd þjóðlendu­ laga nr. 58/1998, sem og áhrifum Jónsbókar á landamerkjalýsingar og gildi hennar almennt. Jónsbók er einstök þjóðargersemi sem veit­ ir lagalega tengingu til miðalda og upphaf byggðar í landinu og hefur enn mikið gildi þegar kemur að umfjöllun um eignarhald og umgengni á landi á Íslandi. Megi svo verða áfram. Frumvarpið 1917 er merki­ legt, og mikilvægur undanfari og ástæða setningar núgildandi laga um landamerki o.fl. frá 1919. Meira um það og fleira í næstu grein. Eyjólfur Ármannsson Höfundur er lögfræðing- ur LL.M. og fyrrum smali frá Hrafnabjörgum í Lokinhamradal og gætir hags- muna jarða í Arnarfirði og Dýrafirði fyrir Óbyggðanefnd. eyjolfur@yahoo.com BÆKUR&MENNING Fyrsta skóflustungan merki upphafs SVIÐSSTJÓRI RANNSÓKNA, NÝSKÖPUNAR OG KENNSLU Erum við að leita að þér? HÁSKÓLINN Á HÓLUM Yfirumsjón með sviði rannsókna, nýsköpunar og kennslu. Leiðir teymi sviðsins með faglegum hætti . Leiðir vinnu við endurskoðun á stefnu og áætlunum á sviði rannsókna, nýsköpunar og kennslu og fylgir eftir . Vinnur að efl ingu tengslanets skólans á sviði rannsókna, nýsköpunar og kennslu. Vinnur að mótun og framkvæmd nýsköpunarverkefna fyrir hönd skólans. Vinnur að efl ingu og þróun kennsluhátta í skólanum. Háskólapróf, MA/MS sem nýtist í starfi . Þekking og reynsla af stefnumótun, rannsóknum, nýsköpun og kennslu á háskólastigi . Drifkraftur, leiðtogafærni og greiningarhæfni . Góð íslensku og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli . Miki l samskipta- og samstarfshæfni . Færni í kynningu hugmynda ti l mögulegra samstarfsaðila. Reynsla af öflun styrkja er æskileg. Góð almenn tölvukunnátta. Laust er t i l umsóknar starf sviðsst jóra rannsókna, nýsköpunar og kennslu við Háskólann á Hólum. Ábyrgð og helstu verkefni Menntunar- og hæfnikröfur Um 100 % stöðu er að ræða og er umsóknafrestur til og með 3. september 2021. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru skv. kjarasamningi f jármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Um starfskjör, réttindi og skyldur gi lda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Umsókn skal fylgja ítarleg feri lskrá og kynningarbréf sem rökstyður áhuga og færni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veit ir Erla Björk Örnólfsdóttir , rektor Háskólans á Hólum. Umsóknir og fyrirspurnir sendist á netfangið erlabjork@holar. is Um skólann Háskólinn á Hólum er elsta menntastofnun landsins, staðsett á Hólum í Hjaltadal . Við skólann er boðið upp á gæðanám á grunn- og framhaldsnámsstigi sem og öflugt rannsóknastarf . Háskólinn er miðstöð þekkingar á þremur fræðasviðum: hestafræði, ferðamálafræði og fiskeldis-, s jávar– og vatnalíffræði. Fagmennska Virðing Sköpun

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.