Bændablaðið - 26.08.2021, Page 54

Bændablaðið - 26.08.2021, Page 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021 54 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Þegar Vallarbraut bauð mér að prófa nýtt rússneskt fjórhjól þá stakk ég upp á að fá að prófa litlu 26 hestafla Solis dráttar- vélina með flaghefli. Jón Valur í Vallarbraut færði mér vélina upp í litla æfingabraut fyrir motocross sem þurfti að laga. Þegar hann færði mér vélina spurði ég út í helstu kostina og hann svaraði: HST stendur fyrir hydrostatic, sem er vökvaskipt- ing svo aðeins þarf að stíga á pedala fyrir áfram og afturábak. Helsti munurinn á þessari og þeirri beinskiptu (sem þú mokaðir snjó á fyrir nokkrum árum) eru skiptingin, stærri dekk, stærra og betra sæti með örmum, tvö aflúr­ tök, eitt að aftan og eitt undir kvið sem býður upp á að hægt er að setja t.d. sláttuvél undir miðja vél. Þessi vél er einnig með rafmagns­ kúplingu fyrir aflúrtak og svo að sjálfsögðu cruise control. Glussadrifin skiptingin algjör snilld Jón hafði sett 150 cm flaghefil á vélina (sem fæst líka í Vallarbraut og hægt að snúa 360 gráður og er nú á tilboði á 130.000). Með þessum útbúnaði hugðist ég laga þvottabretti sem voru í æfinga­ brautinni. Solis vélin fór létt með að draga flaghefilinn í brautinni með mikið af efni í heflinum og eftir þrjár heflanir fram og til baka var brautin orðin rennislétt. Galdurinn var að fara nógu hægt, en það er auðvelt að stjórna hrað­ anum með glussadrifinni skipt­ ingunni og þegar réttum hraða er náð var ýtt á „cruise control“ takk­ ann og þá bara að sitja og bíða þar til hringurinn var heflaður, snúa við og hefla til baka. Hentug dráttarvél við smærri verkefni Fyrir nokkrum árum mokaði ég innkeyrsluna hjá mér á eins vél, en nú með þessari nýju glussadrifnu skiptingu er mun betra að vinna á vélinni. Hávaðinn frá mótornum er ekki mikill þrátt fyrir að vélin sé húslaus. Grunnverð á 26 hestafla Solis er 1.865.000, en hægt er að fá ýmsan búnað og t.d. þá kostar vélin með 420 kg ámoksturstækjum 2.445.000. Á þessari vél var búið að setja frambúnað fyrir snjótönn eða sláttuvél, þessi frambúnaður lyft­ ir 600 kg. Hægt er að fá misgróf dekk undir vélinni, en þessi vél var á dekkjum sem henta vel á golfvelli, mér fannst þau grípa vel þarna í mölinni og engin þörf á dekkjum með hefðbundnu dráttarvélamunstri. Nánari upplýs­ ingar um vélina og önnur tæki frá Vallarbraut má nálgast á vefsíðunni www.vallarbraut.is. VÉLABÁSINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Jón Valur hjá Vallarbraut færði mér lítinn Solis til að prófa. Myndir /HLJ Jón prófaði líka, en mér fannst mest um koma hvað vélin fór létt áfram með mikið efni í flagheflinum. Glussastjórnunin, áfram eða aftur­ á bak. Bráðnauðsynlegur takki, hraða­ stillirinn (cruise control), við svona hefilvinnu. rússneskt fjórhjól Fyrir nokkru bauðst mér að prófa 800cc rússneskt fjórhjól sem Vallarbraut flytur inn og heit- ir RM og stendur fyrir Russka Mekanica (þýðir víst rússnesk- ir vélvirkjar), hjólið er meðal annars framleitt fyrir rússneska herinn. Hjólið er með dráttarvéla­ skráningu og fæst nú á það sem þeir í Vallarbraut kalla gámatilboði á 1.700.000 sem er til 1.9. (eru að safna í gáma sem eru væntanlegir 17.9.). Tók léttan prufurúnt í ósléttri crossbraut Ég tók hjólið á kerru út fyrir bæ­ inn og keyrði nokkra hringi í mjög ósléttri motocrossbraut. Þó að hjólið væri innsiglað á 60 km hraða nægði það mér alveg í þessari þröngu og ósléttu braut. Fjöðrunin var góð, krafturinn og snerpan miklu meiri en minn skrokkur þolir. Það var þægilegt að keyra það á hefðbundnum malarvegi, kom mér í ógöngur og festi mig, en þá var bara að setja í fjórhjóladrifið og lægsta hraða og hjólið lék sér upp úr festunni. Vel útbúið og auðvelt að komast að öllu til viðhalds Oft hefur mér fundist erfitt að kom­ ast að ýmsum hlutum sem þurfa viðhald á fjórhjólum, s.s. rafgeymi, olíuskipti og fleiru. Á þessu fjór­ hjóli virðist hugsað fyrir því og sem dæmi þá eru smurkoppar á flestum liðum og slitflötum sem gott er að komast að. Rafgeymirinn er fremst undir farangursgrindinni undir loki sem þar er og því mjög auðvelt að ná sér í 12 volta rafmagn. Flestir sem nota mikið fjórhjól kaupa í þau búnað sem er með hita í handföngum á stýrinu og á inn­ gjöf inni, en á RM 800 er hiti í gjöf og handföngum staðal­ búnaður. Fjórhjólið kemur á mjög gripmiklum dekkjum. Raf magns ­ spil er staðal búnaður, 24,5 lítra bensín­ tankur. Við þessi litlu kynni mín af hjólinu þá er þetta fínt fjórhjól á lítinn pening. Gott fjórhjól á fínu tilboðsverði. Myndir / HLJ Gott aðgengi að rafhlöðunni. Aldrei séð áður svona marga smurkoppa á helstu slitflötum á fjórhjóli. Með stærri bremsudælum sem ég hef séð í fjórhjóli, en þetta virkar fínt. Þyngd 398 kg Hæð 1.480 mm Breidd 1.210 mm Lengd 2.340 mm Helstu mál og upplýsingar

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.