Bændablaðið - 26.08.2021, Qupperneq 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. apríl 2021
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021 Bændablaðið | Fimmtudagur 26. ágúst 2021
Jóhann Páll er mikill vinnumaður
sem elskar að vera úti. Hefur
mikinn áhuga á öllum tækjum og
tólum. Ætlar sér að vinna við Cat
gröfur og verða bóndi þegar hann
verður stór.
Nafn: Jóhann Páll Stefánsson.
Aldur: 8 að verða 9 ára.
Stjörnumerki: Sporðdreki.
Búseta: Neskaupstað.
Skóli: Nesskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Tölvutímar.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hestar.
Uppáhaldsmatur: Rif.
Uppáhaldshljómsveit: Herra
Hnetusmjör.
Fyrsta minning þín? Vera í gröfunni
með Ragga.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Æfi fótbolta og spila á
bassa.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Bóndi.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Pissað í páskaeggið hjá
stóra bróður mínum.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt
í sumar? Æskulýðsdagar Hesta
mannafélags Blæ, fara á hestbak á
Roða og brasa fullt úti.
Næst » Jóhann Páll skorar á
Bentínu Marín Bárudóttur að
svara næst.
Þessi fallega peysa er frábær
viðbót í fataskápinn fyrir veturinn.
Peysan er prjónuð ofan frá og niður
með gatamynstri á ermum. Létt
og mjúk úr hinu dásamlega Drops
Air garni.
DROPS Design: Mynstur ai-314
Stærðir: S (M) L (XL) XXL (XXXL)
- Yfirvídd: 88 (96) 104 (112) 128 (138) cm
Garn: Drops Air (fæst hjá Handverkskúnst)
- 300 (350) 400 (400) 450 (500) g litur á mynd nr
02, hveiti
Prjónar: Hringprjónn 40 og 60-80 cm nr 4 og 5.
Sokkaprjónar nr 4 og 5 eða sú stærð sem þarf til
að fá 17 lykkjur = 10 cm í sléttprjóni. Kaðalprjónn.
Laskalína: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 1
lykkju í sléttprjóni (lykkja með prjónamerki) í hverri
skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8
lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með
því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er
uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki
myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.
ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju
hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3
lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur
slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr
á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og
prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni
yfir lykkjuna sem var prjónuð.
AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að
affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er
hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er
enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á
eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af
(uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).
PEYSA – stutt útskýring á stykki:
Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá
miðju að aftan, ofan frá og niður. JAFNFRAMT er
aukið út fyrir laskalínu. Berustykkið skiptist í fram- og
bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað
í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru
prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón,
ofan frá og niður.
BERUSTYKKI: Fitjið upp 90 (94) 98 (102) 106
(110) lykkjur á hringprjón nr 4 með Air. Tengið í
hring og setjið prjónamerki sem markar upphaf
umferðar. Prjónið 1 umferð slétt og síðan stroff (1L
slétt, 1L brugðið) þar til sykkið mælist 3 cm. Skiptið
yfir á hringprjón nr 5 (héaðn er nú mælt) Setjið 4
prjónamerki í stykkið þannig (þetta er gert án þess
að prjóna lykkjurnar): Teljið 11 (12) 13 (14) 15 (16)
lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki
í næstu lykkju, teljið 21 lykkjur (= ermi), setjið 1
prjónamerki í næstu lykkju, teljið 22 (24) 26 (28)
30 (32) lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki
í næstu lykkju, teljið 21 lykkjur (= ermi), setjið 1
prjónamerki í næstu lykkju, það eru 11 (12) 13 (14)
15 (16) lykkjur í umferð á eftir síðasta prjónamerki
(= hálft bakstykki).
Prjónið síðan sléttprjón yfir lykkjurnar á framstykki
og bakstykki og A.1 (= 21 lykkjur) yfir lykkjur á hvorri
ermi, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning
fyrir LASKALÍNu í hverri skiptingu á milli fram- og
bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan.
Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri
hverri umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni
á hæðina eru 122 (126) 130 (134) 138 (142) lykkjur
á prjóninum. Prjónið síðan A.2 (= 25 lykkjur) yfir
lykkjur í A.1, sléttprjón yfir framstykki og bakstykki
eins og áður og haldið er áfram með útaukningu
fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið
hefur verið út alls 22 (25) 27 (29) 33 (36) sinnum
hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki = 274
(302) 322 (342) 378 (406). Eftir síðustu útaukningu
fyrir laskalínu er prjónað áfram án útaukningar þar
til stykkið mælist 20 (23) 25 (27) 31 (34) cm, mælt
frá stroffi á hálsmáli.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 34
(38) 41 (44) 49 (53) lykkjur (= hálft bakstykki), setjið
næstu 69 (75) 79 (83) 91 (97) lykkjur á þráð fyrir ermi,
fitjið upp 6 (6) 6 (8) 10 (12) nýjar lykkjur á prjóninn
(= í hlið undir ermi), prjónið næstu 68 (76) 82 (88) 98
(106) lykkjur (= framstykki), setjið næstu 69 (75) 79
(83) 91 (97) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 (6)
6 (8) 10 (12) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir
ermi) og prjónið þær 34 (38) 41 (44) 49 (53) lykkjur
sem eftir eru (= framstykki). Héðan er nú mælt.
FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 148 (164) 176 (192) 216 (236) lykkjur. Haldið áfram
í sléttprjóni þar til stykkið mælist 27 (26) 26 (26)
24 (23) frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón nr 4.
Prjónið stroff (1L brugðið, 1L slétt) yfir allar lykkjur
þar til stroff mælist 4 cm. Fellið laust af með sléttum
lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir
brugðnar lykkjur, sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56
(58) 60 (62) 64 (66) cm frá öxl.
ERMI:
Setjið 69 (75) 79 (83) 91 (97lykkjur af þræði í annarri
hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna nr 5
og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6
(6) 6 (8) 10 (12) lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið
undir ermi = 75 (81) 85 (91) 101 (109) lykkjur. Setjið
1 prjónamerki mitt í 6 (6) 6 (8) 10 (12) lykkjur undir
ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það
á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum. Byrjið
umferð við prjónamerkið og haldið áfram með A.2
og sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm
frá skiptingu fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi
– sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3½ (3)
2 (1½) 1 (1) cm millibili alls 10 (11) 13 (16) 19 (21)
sinnum = 55 (59) 59 (59) 63 (67) lykkjur. Prjónið
áfram þar til stykkið mælist 38 (36) 34 (33) 29 (26)
cm frá skiptingu – eða að óskaðri lengd (styttra mál
í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið
1 umferð þar sem fækkað er um 11 lykkjur jafnt yfir
lykkjur í A.2 = 44 (48) 48 (48) 52 (56) lykkjur. Skiptið
yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið stroff 4 cm. Fellið
laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og
brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að
koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur,
er hægt að fella af með sokkaprjónum nr 5. Prjónið
hina ermina alveg eins.
Gangið frá endum, þvoið flíkina og leggið í mál.
Prjónakveðja, mæðgurnar í Handverkskúnst
www.garn.is vt
Brons-peysa
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
9 8 6
9 4
1 6 2
5 1 4 6 9
2 5 7 8
5
6 7 8
6 9 3 2
Þyngst
1 5 8
6 1
4 6 3 7
2 5 9
8
4 5 1
5 8
1 4 3
2 3 7 5
4 9 5
8 2 1
7 8
9 2 3
6 2
7 4 5
5 7
2 6 5
6 5 4
1 2
8 3
5 4 2 6 8
4 7 8
9 8 6
3 6 7 5 9
7 5
1 2
Pissað í páskaegg
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ