Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.2021, Page 12
12http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í september 2021
aett@aett.is
inni, Heiðarjarðir, sem liggja að Lyngdalsheiðinni og
Mýrajarðir sem liggja að ánum austan til í sveitinni.
Hraunajarðirnar kallast jarðirnar milli Sogs
og Hvítár. Þær eru flestar á eldbrunnu, kjarri vöxnu
hrauni. Það eru Öndverðarnes, Miðengi, Vaðnes
og hluti Klausturhóla, Hæðarenda og Ásgarðs, auk
bæjanna Norðurkots, Suðurkots, Snæfoksstaða,
Hraunkots og Foss, sem eru allir löngu komnir í eyði.
Á hraunajörðunum er víða góð beit og skjólsælt í
hraununum, en erfitt með slægjur og léleg ræktunar-
skilyrði.
Heiðarjarðirnar þóttu alltaf bestu sauðfjárjarðirn-
ar. Þær eru tíu og raða sér umhverfis Lyngdalsheiðina,
en hún er dyngja eins og Skjaldbreiður, og myndaðist
á síðasta hlýskeiði ísaldarinnar fyrir um 130 000 árum.
Heiðarjarðirnar eru Neðra-Apavatn, Þóroddsstaðir,
Svínavatn, Björk, Hallkelshólar, Klausturhólar,
Hæðarendi, Búrfell, Efri-Brú og Kaldárhöfði.
Lyngdalsheiðin er eins og stór terta þar sem bæirnir
eiga allir hver sína sneiðina, misstórar þó.
Svo eru það mýrajarðirnar sem raða sér meðfram
Brúará og Hvítá austan og sunnan í Grímsnesinu.
Þar erum við að tala um Sólheimahringinn, með
Bjarnastöðum, Kringlu, Hömrum, Sólheimum,
Vatnsnesi, Ormsstöðum, Eyvík, Stærri-Bæ, Brjáns-
staði og Minni-Bæ, sem kominn er í eyði, sömuleið-
is Reykjanes. Að hluta einnig Hagi, Mosfell, Minna-
Mosfell og Sel.
Mýrajarðirnar eru grösugastar og þar eru miklar
slægjur. Þar hafa löngum verið kostamestu býli sveit-
arinnar.
Við sjáum á þessu að jarðfræðin hefur haft afger-
andi áhrif á búskaparhættina, og skapað mönnum
mismunandi skilyrði til ræktunar og beitar. Það er
góð beit á hrauna- og heiðajörðunum, en erfitt með
slægjur og léleg ræktunarskilyrði á hraunajörðunum.
Bændur þar þurftu margir að sækja heyskap suður
yfir Hvítá. Það var mjög erfitt, og margir drukknuðu
í slíkum ferðum.
Það dylst þó engum að Grímsnesið er gjöf-
ult, hverrar gerðar sem jarðirnar eru. Hér er vatns-
orka og jarðhiti, stöðuvötn og ár með lax og silungi.
Kjarrivaxin hraun með mestu sumarhúsabyggðir
landsins, rauðamöl og malarnámur í gömlum gígum
og fornum sjávarhjöllum.
Landnámið
Þá er það mannfólkið og landnámið. Í Landnámu
er getið um tvö landnám í Grímsnesinu, sem fékk
nafn sitt af Grími landnámsmanni sem bjó fyrst í
Öndverðarnesi, síðan á Búrfelli og var heygður í
Klausturhólum. Hann er sagður Rögnvaldsson af
Jamtalandi. Hann var víkingur og herjaði „fyrir vest-
an haf“ ásamt bræðrum sínum og frændum. Kona
hans var Álöf dóttir Þórðar vaggagða, en hún hafði
áður verið kona Ásbjarnar jarls á Suðureyjum, en
hann drap Grímur. Grímur nam Grímsnes vestanvert,
frá Soginu upp að Svínavatni og voru Klausturhólar í
landnámi Gríms.
Ketilbjörn gamli nam um svipað leyti Laugardalinn
allan, Biskupstungurnar og Grímsnesið austanvert
niður að Höskuldslæk. Ketilbjörn bjó á Mosfelli.
Hann á að vera heygður í flæðarmáli Hestvatns, undir
Hestfjalli, í landi Eyvíkur.
Við megum ekki gleyma því að fortíð og nútíð flétt-
ast alltaf saman. Það er gaman að segja frá því að á
Hömrum í Grímsnesi hefur sama ættin setið í yfir 300
ár, eða frá því um 1700, og Auður Gunnarsdóttir sem
er bóndi á Hömrum, er 28. ættliðurinn frá Ketilbirni
gamla, landnámsmanni í Grímsnesinu!
En víkjum aftur að landnáminu.
Höskuldslækur er örlagalækur í sögu Grímsness
því landnám þeirra Gríms og Ketilbjarnar sköruðust
um heila sex km. Þeir eignuðu sér báðir spilduna frá
Höskuldslæk upp að Svínavatni. Þessir 6 km ollu
deilum og svæðið var kallað þrætuspilda.
Um svipað leyti kemur til Íslands hálfbróðir
Ketilbjarnar, Hallkell að nafni. Þeir voru sammæðra.
Hallkel langaði í jörð líka og Ketilbjörn, sem bjó á
Mosfelli, og hafði af nógu að taka, vildi gefa hon-
um land. Það vildi Hallkell ekki þiggja og sagði að
það væri best að útkljá deiluna um þrætuspilduna og
skoraði Grím á hólm. Þeir börðust þar sem nú eru
Klausturhólar. Grímur féll og Hallkell tók þá staðinn,
bjó þar síðan og gaf nafnið Hallkelshólar. Hólanafnið
er að öllum líkindum dregið af þeim hólum sem við í
dag þekkjum sem Seyðishóla.
Grímur er sagður heygður í túninu undir hólunum
við bæinn, og heitir þar Grímsleiði. Einhverntíma
snemma á miðöldum fellur Hallkelshólanafnið út og
farið er að kalla bæinn Hóla.
Mosfell í Grímsnesi. Á Mosfelli bjó Ketilbjörn gamli,
annar tveggja landnámsmanna í Grímsnesinu. Hann
nam Laugardalinn allan, Biskupstungurnar og Gríms-
nesið austanvert niður að Höskuldslæk. Ketilbjörn er
forfaðir greinarhöfundar í 28. lið. (Ljósmynd Guðfinna
Ragnarsdóttir)