Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.2021, Side 15
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í september 2021
http://www.ætt.is aett@aett.is15
Samkvæmt Íslendingabók átti hann 18 börn með sín-
um tveim konum, aðrar heimildir segja 32 börn, þar á
meðal Nesjavalla-Grím. Hann var elsta barn Þorleifs.
Forfeður Þorleifs höfðu búið í Öndverðarnesi og
Norðurkoti í fjóra ættliði, eða frá því um 1600.
Brandur, afi Þorleifs, var talinn tveggja manna maki,
til hvers er taka skyldi, og þar með útsjónarsamur
og hagvirkur. Guðmundur faðir Þorleifs og Guðni
Jónsson „gamli“, ættfaðir Reykjakotsættarinnar í
Ölfusi, voru bræðrasynir.
Grímsnafnið á Nesjavalla-Grími kom frá móð-
urafa Þorleifs litla, Grími Jónssyni, sem var fæddur í
Öndverðarnesi og bóndi í Norðurkoti, og langalang-
afa hans sem fæddur var um 1610. Grímsnafnið er enn
við lýði víða í ættinni, m.a. á Grími Fannari Karlssyni,
ungum dóttursyni Ólafs Ragnars Grímssonar, f.v.
forseta Íslands. Sá litli er fæddur 2012, um 400 árum
og ellefu kynslóðum á eftir forföður sínum, Grími,
sem fæddur var um 1610. Sá litli fær nafnið eftir lang-
afa sínum sem fær nafnið eftir langafa sínum sem fær
nafnið eftir langafa sínum sem fær það eftir afa sín-
um, fæddum eins og áður sagði um 1610!!
Afkomendur Þorleifs og barna hans hafa lagt
drjúgt í genabanka Grímsnesinga, Grafningsmanna,
Laugdælinga og Þingvellinga því þeir hafa búið á alls
42 bæjum í þessum sveitum. Og enn býr barnabarna-
barnabarnabarnabarn hans, Sigrún Jóna Jónsdóttir á
Stóra-Hálsi í Grafningi. Samkvæmt Íslendingabók
eru afkomendur Þorleifs tæplega 17 þúsund og þar af
eru tæplega 15 þúsund á lífi.
Helvítis hyrnan
Hvítá er þriðja áin sem afmarkar Grímsnesið. Hún á
upptök sín í Hvítárvatni. Hún hefur sameinast bæði
Brúará og Tungufljóti þegar hún sameinast Soginu.
Eftir það heita þær Ölfusá, sem þá verður vatnsmesta
á landsins. Landnám Ingólfs Arnarsonar nær að vest-
an og austur að Sogi og Ölfusá.
Svo er það að lokum ein uppáhalds sagan mín, þar
sem Hvítá kemur við sögu, Hvítá á ís!!!
Síðasti biskupinn í Skálholti var Hannes Finnsson,
sem lést 1796. Hannes var giftur Valgerði Jónsdóttur,
tvöfaldri biskupsfrú, sem varð ein ríkasta kona lands-
ins. Hún var 32 árum yngri en hann. Hann var fæddur
1739, hún 1771.
Valgerður blessunin vildi gera Hannesi manni
sínum, síðasta Skálholtsbiskupnum, veglegan leg-
stein og pantaði hann frá Danmörku. Hann kom með
Bakkaskipi til Eyrarbakka árið 1802. Steinninn vó 19
skipspund eða um 2500 kg. Hann var ferjaður á ís upp
Ölfusá og svo Hvítá upp að Kiðjabergi. Þar var hann
dreginn yfir eiðið yfir á Hestvatn, svo niður Slauku
og aftur út á Hvítá. Allar árnar voru á ís. Neðan við
bæinn Hamra rakst steinninn í frægan klett, sem
Ullarklettur nefnist, og þá brotnaði eitt hornið af stein-
inum. „Þar hrökk af honum helvítis hyrnan“, sagði þá
Jón Guðmundsson ráðsmaður á Hömrum, sem hafði
umsjón með flutningnum.
Þar sem mönnum var mjög brugðið við þetta voru
allir drifnir heim að Hömrum þar sem þeir fengu
brennivín til þess að hressa sig. Steinninn var svo
fluttur upp að Skálholti og þar er hann enn til sýnis í
kjallara kirkjunnar, með hornið límt á!
Já, þannig fléttast saman jarðfræðin, sagan, ætt-
fræðin og mannlífið í okkar líflega landi.
Helstu heimildir:
Grímsnes búendur og saga Mál og mynd, 2002
Árbók Ferðafélags Íslands 1961
Fréttabréf Ættfræðifélagsins 4. tbl 2012
Landnám Gríms vesturhluti Grímsness bæklingur
Hollvinir Grímsness 2013
Ættir og eyðibýli bæklingur Hollvinir Grímsness
2015
Espólín
Íslendingbók
Auður Gunnarsdóttir, bóndi á Hömrum í Grímsnesi
er 28. liður frá landnámsmanninum Ketilbirni gamla.
(Ljósmynd Gunnar Kristinn Gunnarsson)
Kristján Jóhannsson
Kt. 040151-7619
Grandavegur 42 C íbúð 903, 107 Reykjavík
Netfang: kristjan@icepharma.is
Elín Vilhelmsdóttir
Kt. 170150-4069
Grenimelur 45, 107 Reykjavík
Netfang: elinvilhelms@gmail.com
Áhugasvið: Rekja eigin ættir, m.a danskan hluta
ættarinnar
Einar Helgi Hallfreðsson
Kt. 140546-4619
Dísarási 2, 110 Reykjavík
Bjarni Thor Kristinsson
Kt: 020567-2959
Óperusöngvari
Garðabæ
NýIR FéLAGAR