Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 2

Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 2
Aðalsteinn Kjartans- son blaðamaður hefur óskað eftir því við Hér- aðsdóm Norðurlands eystra að úrskurðað verði um lögmæti rannsóknar lögreglu. Fjölmenni í Hlíðarfjalli Raðir mynduðust í stólalyftuna í Hlíðarfjalli í gær. Ljóst er að fjölmargir ætla að nýta skólafríið til að renna sér á skíðum á Akureyri um helgina. Ný stólalyfta verður tekin í notkun í dag sem gæti létt á álaginu. Lyftuna átti upphaflega að taka í notkun árið 2018 en tafir urðu á opnun hennar. SJÁ SÍÐU 4. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Íslendingur í London segir að fólk þar í borg hafi sjaldan upplifað annan eins vind og blés um borgina í gær. Hann segir að þetta hafi minnt sig á heimahagana á Vestfjörðum. Enska úrvalsdeildin íhugaði að fresta leikjum. benediktboas@frettabladid.is VEÐUR Stormurinn Eunice gekk yfir Bretland í gær. BBC sagði þetta versta veður í áratugi. Var rauð við­ vörun gefin út fyrir London meðal annars og fólk vinsamlegast beðið um að vera heima hjá sér. Rafmagn fór af víða um England en allt að 120 þúsund manns voru um tíma rafmagnslaus. Þá var um 400 flugum aflýst til og frá landinu og flestum skólum lokað. Rauðar viðvaranir eru afar sjald­ gæfar í London en kerfið var tekið upp árið 2008 og er þetta í fyrsta sinn sem slík viðvörun hefur verið gefin út vegna vinds. „Þetta minnti mig á stöku óveð­ ur frá því í gamla daga frá Vest­ fjörðum,“ segir Davíð Sighvatsson Rist, sem býr í London og vinnur sem garðyrkjumaður á daginn en plokkar svo gítarinn á kvöldin. Hann var einmitt með gigg í gær í Soho sem átti að hefjast klukkan 21.10 en viðvaranir giltu um London til 21. Hann vonaðist þó eftir að geta spilað fyrir borgarbúa. „Íbúar hér í London þekkja ekkert svona rosalegan vind. Þetta er keim­ líkt veðrinu sem er stundum heima á Íslandi. Giggið mitt er enn á áætlun. Rauða viðvörunin gilti til 15 en svo er appelsínugul til 21. Eins og er þá mun ég spila en kannski verður þetta bara kósí og skemmtilegt fyrir nokkrar hræður,“ segir hann. Davíð var líkt og margir aðrir sendur heim úr vinnu en einn af görðunum, sem fyrirtæki sem hann vinnur fyrir sér um, fór illa út úr veðurhamnum. „Við fórum af stað og kláruðum fyrsta verkefnið en klukkan 11 hringdi ég í yfirmann minn sem sagði að við ættum bara að taka til og halda heim,“ segir Davíð. Að sögn Davíðs rifnaði tré í einum garðinum sem hann annast upp með rótum og lítið væri hægt að gera. „Hlutir eru að fjúka til hérna og grindverkið fyrir utan húsið það er alveg á hliðinni og partur af grind­ verki nágrannans er fokinn burt,“ segir Davíð. Stormurinn hafði áhrif á undir­ búning liða í enska boltanum en Arsenal þurfti að æfa inni og Totten­ ham ferðast í rútu til Manchester fyrir stórleikinn gegn City. Ekki var þó búist við að leikjum í ensku úrvalsdeildinni yrði frestað. ■ Íslendingur í London segir rokið þar minna á Vestfirði Fólk í London var víða í vandræðum með að komast leiðar sinnar. Hér reynir fólk að komast yfir Millennium-brúna. Skólum var lokað, rafmagn fór af og hundruðum flugferða var aflýst vegna stormsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Íbúar hér í London þekkja ekkert svona rosalegan vind. Þetta er keimlíkt veðrinu sem er stundum heima á Íslandi. Davíð Sighvatsson Rist adalheidur@frettabladid.is LÖGREGLAN Lögreglan á höfuð­ borgarsvæðinu hefur tekið til rannsóknar tilkynningar f jöl­ miðlamanna um að þeir hafi orðið fyrir ónæði, umsáturseinelti og hótunum vegna starfa sinna. „Við höfum tekið slík mál strax til rann­ sóknar,“ segir Hulda Elsa Björgvins­ dóttir, yfirmaður ákærusviðs Lög­ reglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í svari við fyrirspurn blaðsins. Aðspurð nánar segir Hulda að slíkt mál sé enn til rannsóknar en ekki sé unnt að veita frekari upp­ lýsingar um stöðu hennar. Þá er enn til rannsóknar hjá emb­ ættinu innbrot á ritstjórnarskrif­ stofur Mannlífs og í bíl ritstjóra þess miðils. Hulda Elsa vill hvorki upplýsa hvort einhver hefur rétt­ arstöðu grunaðs manns, eða gefa frekari upplýsingar um stöðu rann­ sóknarinnar. Boðað hefur verið til mótmæla í dag bæði á Akureyri og í Reykjavík í tilefni af lögreglurannsókn Lög­ reglustjórans á Norðurlandi eystra á meintum brotum blaðamanna, í tengslum við umfjöllun þeirra um skæruliðadeild Samherja. Fjórir blaðamenn hafa réttar­ stöðu sakborninga í málinu. Einn þeirra, Aðalsteinn Kjartansson, hefur óskað eftir því við Héraðsdóm Norðurlands eystra að úrskurðað verði um lögmæti rannsóknarinnar. Hann greindi frá þessu á vef Stund­ arinnar í gær. ■ Rannsaka einelti og hótanir í garð fjölmiðlamanna Hulda Elsa Björvinsdóttir, ákærusviði Lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu. AÐALFUNDUR gar@frettabladid.is STJÓRNMÁL Samtök grænkera á Íslandi gera talsverðar athuga­ semdir við þingsályktunartillögu þingmanna Miðflokksins um stór­ eflingu innlendrar matvælafram­ leiðslu og rekstur landbúnaðar. „Sú framþróun sem lögð er til í nýsköpun, eins og kornrækt og þör­ ungarækt, hefur það að markmiði að fæða húsdýr í stað þess að fæða fólk,“ segir í umsögn grænkera. Þá segja grænkerar að ekki sé tekið tillit til þess að draga þurfi verulega úr losun gróðurhúsaloft­ tegunda því sú staðreynd sé hunsuð að dýr í landbúnaði mengi meira en samgöngur og flutningur matvæla. Þá sé markmiðið að minnka eftirlit með framleiðslunni og um leið eftir­ lit með velferð dýra. ■ Markmið að fæða dýr en ekki fólk 2 Fréttir 19. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.