Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 25

Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 25
Umfang veittra stofnframlaga frá 2016 Akraneskaupstaður Sveitarfélagið Árborg Sveitarfélagið Ölfus Hella Reykjanesbær Suðurnesjabær Sandgerði Mýrdalshreppur Sveitarfélagið Hornafjörður Kópavogur MosfellsbærReykjavíkurborg Garðabær Hafnarfjarðarkaupstaður Blönduós Sveitarfélagið Skagafjörður Dalvíkurbyggð Sveitarfélagið Norðurþing Dalabyggð Reykhólahreppur Ísafjarðarbær Tálknafjarðarhreppur Húnaþing vestra Borgarfjarðarhreppur Vopnafjarðarhreppur Fljótsdalshérað Akureyrarbær Þingeyjarsveit Vestmannaeyjabær Múlaþing Rangárþing ytra Seltjarnarnes Snæfellsbær Strandarbyggð Vesturbyggð Fjölgum íbúðum Stofnframlög Opið fyrir umsóknir um stofnframlög hms.isBorgartúni 21, 105 Rvk - Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki Auglýst er eftir umsóknum í fyrri úthlutun fyrir árið 2022 um stofnframlög ríkisins til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum skv. lögum nr. 52/2016 og reglugerð nr. 183/2020. Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta húsnæðisöryggi þeirra sem eru undir tekju- og eignamörkum við upphaf leigu. Stofnframlög eru veitt til byggingar og kaupa á almennum íbúðum. Við mat á umsóknum er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi þætti: • Nýbyggingar og fjölgun leiguíbúða. • Íbúðir á svæðum þar sem þörf er fyrir leiguíbúðir fyrir leigjendur undir tekju- og eignamörkum. Auk þess verður lögð áhersla á: • Hagkvæmar íbúðir hvað stærð og herbergjafjölda varðar. • Hagkvæmar aðferðir við íbúðabyggingar í því skyni að lækka byggingarkostnað. • Íbúðir sem uppfylla mismunandi þarfir ólíkra hópa á hverju svæði. • Að stuðla að fjölbreyttri samsetningu íbúa og félagslegri blöndun. Umsóknarfrestur til 21. mars 2022 Umsóknum skal skila inn á rafrænu formi á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Til þess að hægt sé að meta umsókn þurfa öll gögn skv. 14. gr. reglugerðar nr. 183/2020 að skila sér innan umsóknarfrests. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, www.hms.is. Stofnframlögum þegar úthlutað vegna 2.981 almennrar íbúðar Húsnæðis- og mannvirkjastofnun úthlutar stofnframlögum til samfélagssinnaðra leigusala til að kaupa eða byggja almennar íbúðir. Markmiðið er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum og bæta húsnæðisöryggi eignalítilla og tekjulágra. Húsnæðiskostnaður á að vera í samræmi við greiðslugetu og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna. Almenna íbúðakerfið var sett á stofn árið 2016 og hefur nú þegar 18 milljörðum króna verið úthlutað til byggingar og kaupa á 2.981 íbúð víðsvegar um landið. Heildarfjárfesting í uppbyggingu nemur um 93 milljörðum króna. Sveitarfélög þar sem veitt hefur verið stofnframlag

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.