Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 29
Ragnhildur Sigurðardóttir
golfkennari segist hafa
kynnst Smoother SKIN &
HAIR frá Eylíf í gegnum
vinkonu sína, en hún hafði
þjáðst af hárlosi og líf-
lausu hári. Hún segist finna
mikinn mun á sér.
Ragnhildur segist hafa kynnst
Smoother SKIN & HAIR frá Eylíf í
gegnum vinkonu sína, Mjöll Daní-
elsdóttur. „Hún ber ábyrgð á hárinu
á mér. Henni leist ekki á blikuna
þegar hún sá hvernig hárið á mér
var orðið en ég var þá búin að vera
á lágkolvetna/ketó mataræði í
töluverðan tíma. Á ketó mataræði
er manni ráðlagt að halda sig frá
ávöxtum vegna ávaxtasykursins og
ég gætti ekki að því að passa upp á
vítamínbúskap líkamans,“ upplýsir
Ragnhildur og bætir við:
„Hárið á mér var orðið stamt, það
var erfitt að greiða það og það var
mikið hárlos. Fljótlega eftir að ég
byrjaði að nota Smoother SKIN &
HAIR frá Eylíf fór ég að finna mun
og mér finnst hárið á mér verða
heilbrigðara og heilbrigðara með
hverjum deginum sem líður. Nú er
ég búin að vera að taka það inn í um
það bil 4 mánuði.“
„Ég mun halda áfram að fylgja
ketó/lágkolvetna mataræðinu
því ég fann mikinn mun á líðan
og heilsu eftir að ég byrjaði á því,
fyrir utan ástandið á hárinu á mér.
Ég er ekki frá því að ég finni mun
á húðinni, en munur á liðum og
meltingu var svo mikill eftir að ég
byrjaði á ketó að ég get ekki alveg
sagt með vissu um áhrif Smoother
SKIN & HAIR frá Eylíf á þá þætti,“
segir hún.
Velur íslensk bætiefni
„Íslensk bætiefni eru ofarlega á
vinsældalistanum mínum enda
er uppruni innihaldsefna yfirleitt
fyrsta flokks. Í leiðinni er ekki
ónýtt að geta stutt við og styrkt
íslenskt hugvit og framtakssemi
okkar hæfasta fólks. Heilsan okkar
er mikilvæg og án hennar erum
við fátækari, sama hversu rík við
erum á veraldlegum mælikvarða.
Vilji maður ná árangri í íþróttum,
leik og starfi er mikilvægt að
huga að því sem okkur er nauð-
synlegt til þess að líkaminn virki.
Hraðinn á okkur er oft svo mikill
að við gefum okkur ekki tíma til
þess að gæta þess að líkaminn fái
öll þau næringarefni og bætiefni
sem hann þarf og þá er stórkost-
legt að geta leitað til snillinganna
sem sjá um að safna þeim saman
fyrir okkur í litlar meðfærilegar
krukkur,“ segir Ragnhildur. n
Smoother SKIN & HAIR
frá Eylíf inniheldur:
n Kollagen
n Smáþörunga (Astaxanthin)
n GeoSilica
n Vítamín A, B2, B6, C, D3
n Bíótín
n Níasín
n Kopar
n Zink
n Joð
n Selen
Eylíf vörurnar fást í öllum apótek
um, Fjarðarkaupum, Hagkaupum,
Nettó, Heilsuhúsinu, Krónunni
og Melabúðinni. Ókeypis heim
sending ef keypt er á eylif.is.
Eftir að hafa lengi verið
með verki í líkamanum og
prófað ýmis fæðubótar-
efni og verkjalyf í gegnum
tíðina, ákvað Árni Pétur
að prófa Active JOINTS frá
Eylíf. Hann segist í dag vera
nánast verkjalaus og þakkar
það Active JOINTS.
Árni Pétur Aðalsteinsson hafði
lengi þjáðst af verkjum í líkam-
anum. „Ég var alveg sérstaklega
slæmur í hnjánum og ég fann
mjög mikið til þegar ég steig upp
úr rúminu eða gekk upp tröppur.
Læknirinn var búinn að gefa það
út að lítið væri í þessu að gera
annað en að fara í liðskiptaaðgerð á
hnjám. Það var þá sem mér var bent
á að prófa Active JOINTS frá Eylíf,“
segir Árni Pétur.
Hafði engu að tapa
Árni ákvað að slá til og prófa
Active JOINTS frá Eylíf. Í besta
falli myndi það koma í staðinn
fyrir liðskiptaaðgerð á hnjánum.
Áhrifin komu honum töluvert á
óvart. „Þegar ég hafði tekið Active
JOINTS inn í þrjár vikur fór ég að
finna verulegan mun á mér. Ég átti
skyndilega mun auðveldara með að
stíga fram úr rúminu og ganga upp
tröppur. En áður hafði það valdið
mér miklum verkjum.“
Fann strax mun
Árni segir líka að hann finni fyrir
því fljótt ef hann gleymir að taka
Active JOINTS. „Ég fór til dæmis
erlendis í tvær vikur og gleymdi að
taka Active JOINTS með mér. Ég
fann strax verulegan mun á mér.
Þegar ég kom heim hóf ég inntök-
una aftur. Það tók um tvær vikur
fyrir mig að vera orðinn betri aftur.“
Nánast verkjalaus í dag
„Það er ótrúlegt í dag að finna
hversu mikið Active JOINTS hefur
gert fyrir mig. Ég er nánast verkja-
laus og með vellíðunartilfinningu
innra með mér sem ég hef ekki
fundið fyrir lengi. Ég er sann-
færður um að Active JOINTS er að
gera mikið gagn fyrir mig. Ég mæli
svo sannarlega með Active JOINTS
frá Eylíf.“
Heilsan er dýrmætust
Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar
frábærar heilsuvörur sem reynst
hafa fólki vel. Þær eru Active
JOINTS, Stronger BONES, Smoot-
her SKIN & HAIR, Happier GUTS,
og Stronger LIVER er nýjasta
varan. Vörurnar eru framleiddar
á Íslandi úr hreinum, íslenskum
Sannfærður
um virkni
Active JOINTS
Árni Pétur hafði lengi þjáðst af verkjum í líkamanum áður en hann byrjaði að
taka inn Active JOINTS frá Eylíf. MYND/AÐSEND
Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar frábærar heilsuvörur.
Ragnhildur
Sigurðardóttir
segir Smoother
SKIN & HAIR
frá Eylíf hafa
bjargað hárinu á
sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Hárið heilbrigðara og hárlosið minnkaði
hráefnum og engum aukefnum er
bætt við.
Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofn-
andi Eylíf. „Hugmyndin að vöru-
línunni kom til vegna þess að mig
langaði að setja saman þau frábæru
hráefni sem framleidd eru á Íslandi
á sjálfbæran hátt úr íslenskum,
náttúrulegum auðlindum og auka
þannig aðgengi fólks að þessum
hráefnum,“ upplýsir Ólöf.
Framleiðslan fer fram á Grenivík
og þróun varanna er í samstarfi við
sérfræðinga frá Matís. „Vinsælasta
varan okkar er Active JOINTS sem
inniheldur fjögur íslensk næringar-
efni og sýna margra ára rannsóknir
fram á jákvæð áhrif þeirra,“ segir
Ólöf Rún. „Við vöndum til verka,
sækjum í sjálfbærar auðlindir úr
sjó og af landi, og notum hreina,
íslenska náttúruafurð og hrein
hráefni sem eru framleidd af
viðurkenndum íslenskum fram-
leiðendum.“
Hráefni sem notuð eru í bæti-
efnin frá Eylíf eru ekki erfða-
breytt. „Þau stuðla að heilbrigði og
sveigjanlegri líkama því þá erum
við færari um að takast á við verk-
efnin í dagsins önn. Við vitum öll
að heilsan er okkur dýrmætust og
því er svo mikilvægt að gæta vel að
henni og fyrirbyggja ýmis heilsu-
farsvandamál. Heilbrigð melting
er grunnur að góðri heilsu og þess
vegna vildum við hjá Eylíf bjóða
upp á hágæðavöru fyrir melting-
una,“ segir Ólöf Rún. n
Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til.
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 19. febrúar 2022