Fréttablaðið - 19.02.2022, Qupperneq 30
Á morgun, sunnudag, kemur
hljómsveitin Brek fram á
tónleikum á Skuggabaldri.
Sveitin tvinnar saman hin
ýmsu áhrif mismunandi
stíla þjóðlaga- og dægurtón-
listar.
Hljómsveitin Brek heldur lang-
þráða tónleika á Skuggabaldri á
morgun, sunnudag. Þar mun hún
flytja lög af fyrstu plötu sinni
sem kom út síðasta sumar, í bland
við tökulög úr ólíkum áttum í
skemmtilegum búningi.
Hljómsveitina skipa þau Harpa
Þorvaldsdóttir (söngur og píanó),
Jóhann Ingi Benediktsson (gítar og
söngur), Guðmundur Atli Pétursson
(mandólín og bakraddir) og Sigmar
Þór Matthíasson (kontrabassi og
bakraddir). Sigmar segir meðlimi
Breks hlakka mikið til morgun-
dagsins enda lítið verið um tónleika
undanfarna mánuði. „Á tónleik-
unum á morgun munum við einnig
taka nokkur ný frumsamin lög og
verður gaman að sjá viðbrögð tón-
leikagesta. Við getum alveg lofað
góðri stemningu og vonumst að
sjálfsögðu til að sjá sem flesta.“
Áhrif úr ólíkum áttum
Hljómsveitin Brek var stofnuð
árið 2018 og leggur áherslu á að
tvinna saman hin ýmsu áhrif
mismunandi stíla þjóðlaga- og
dægurtónlistar, að sögn Sigmars.
„Upphafið má rekja til þess að þau
Harpa og Jóhann höfðu lengi ætlað
sér að gera eitthvert tónlistarverk-
efni saman, en þau eru sveitungar
af Hvammstanga. Þau hittust loks
um haustið 2018 og hófu æfingar
saman. Guðmundur Atli og Harpa
voru nýlega orðin par og þegar
hann kom að sækja Hörpu á þessa
fyrstu æfingu var honum boðið að
taka lagið með þeim. Fyrir algjöra
tilviljun var mandólínið með í
bílnum og þar með var kominn
grunnur að einhverju. Þau þrjú
unnu áfram og smátt og smátt
fundu þau farveg og sameiginlegt
sánd. Það var svo í byrjun árs 2020
að bassaleikarinn, ég sjálfur, bætt-
ist í hópinn og þannig er bandið
skipað í dag.“
Fjölbreyttur bakgrunnur
Á þessum tímapunkti var komin
þokkalega skýr hugmynd um
hljóðheiminn og stíl, segir Sigmar.
„Við fundum strax að þetta væri
mjög áhugaverður bræðingur og að
þessi hljóðfæraskipan ásamt rödd-
um þeirra Hörpu og Jóhanns sem
aðalraddir, væri okkar sánd. En við
höfum talsvert rætt um nákvæm-
lega þetta, hvað hvert hljóðfæri
leggur í púkkið og hvernig það
ásamt notkun karl- og kvenraddar,
sem og heildar fjórradda söng,
skapar okkar hljóðheim.“
Hann segir einnig áhugavert
hvað þau fjögur hafi ólíkan bak-
grunn í tónlist, sem verður að ein-
hverju sérstöku þegar þau leggjast
öll á eitt. „Harpa er með masters-
gráðu í óperusöng, ég er menntað-
ur í djassi, Jóhann er lærður í gítar-
leik og skapandi tónlistarmiðlun
og bakgrunnur Guðmundar liggur
í „folk og bluegrass“ stúdíu. Von-
andi tekst okkur að skapa saman
áhugaverðan bræðing af tónlist
úr ólíkum áttum, jafnvel brjóta
niður múra tónlistarstefna og gera
eitthvað áhugavert, skemmtilegt
en kannski smá krefjandi fyrir
áheyrandann í leiðinni.“
Vinna vel saman
Fyrsta plata Breks sem kom út í
fyrra er að sögn Sigmars saman-
safn laga sem meðlimir unnu jafnt
og þétt frá árinu 2018. „Lögin eru
eiginlega ferðalag okkar hingað
til í vinnunni við að þróa okkur
sem hljómsveit. Grunnar laganna
koma meðal annars frá Jóhanni og
Hörpu, en þau eru unnin og útsett
af okkur öllum í sameiningu. Það
geta verið ótrúlega skemmtilegar
hugmyndir sem koma út úr sam-
vinnunni og við virðumst kveikja
sköpunarkraftinn hvert í öðru.
Flestir textar koma frá Jóhanni en
þó eru einstaka textar eftir aðra.
Við vinnum ótrúlega vel saman
sem hópur og úr þessu samstarfi
hefur líka skapast mjög náin og
dýrmæt vinátta. Það skilar sér von-
andi að einhverju leyti í tónlistinni
og á tónleikum.“
Ókeypis er inn á tónleikana sem
hefjast klukkan 20. Skuggabaldur
stendur við Pósthússtræti 9, 101
Reykjavík. n
Nánar um Brek á brek.is.
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Arctic Star selur hreinar og
ómengaðar hágæða heilsu-
vörur sem eru unnar úr
íslenskum sæbjúgum, en
þau eru talin hafa mikinn
lækningamátt. Sæbjúgu
innihalda fjöldann allan af
gagnlegum efnum en í hylkj-
unum frá Arctic Star eru auk
þess ýmis viðbætt efni sem
stuðla að góðri heilsu.
„Arctic Star var stofnað árið 2008
og tók yfir rekstur ÍsBú Seafood,
en það var söludeild hjá fyrir-
tækinu ÍsBú alþjóðaviðskipti ehf.
sem hefur selt sjávarfang um allan
heim og veitt ráðgjöf í sjávar-
útvegi,“ segir Sandra Yunhong She,
framkvæmdastjóri og eigandi. „Á
síðustu árum hefur Arctic Star sér-
hæft sig í þróun á fæðubótarefnum
og sinnt framleiðslu, markaðssetn-
ingu og sölu á hreinum, ómeng-
uðum og hágæða náttúrulegum
Arctic Star heilsuvörum um allan
heim, en það flytur líka út fisk til
Kína.“
Margir finna mikinn mun
„Arctic Star sæbjúgnahylki eru
framleidd úr íslenskum hágæða
sæbjúgum sem eru veidd úr Atl-
antshafinu við strendur Íslands.
Arctic Star sæbjúgnahylki komu á
markað árið 2015 og viðtökur voru
mjög góðar, við höfum fengið mjög
mörg símtöl og skilaboð frá ánægð-
um viðskiptavinum sem segja
okkur hvað sæbjúgnahylkin virka
vel fyrir þá,“ segir Sandra. „Sumir
hafa lengi verið slæmir í hnjám,
með liðaverki, gigt eða slitgigt, verki
í bakinu eða veikt ónæmiskerfi og
telja að sæbjúgnahylkin okkar hafi
hjálpað sér mikið og finna mikinn
mun eftir notkun. Við erum mjög
ánægð að heyra það.
Ég sjálf var með veikt ónæmis-
kerfi og varð mjög oft veik. Ef
einhverjar flensur voru í gangi í
þjóðfélaginu, þá fékk ég þær,“ segir
Sandra. „En ég hef tekið sæbjúgna-
hylki daglega síðan 2013 og finn
mikinn mun. Núna verð ég mjög
sjaldan veik.“
Þekkt heilsufæði öldum saman
„Sæbjúgu hafa verið þekkt sem
heilsufæði í gegnum aldirnar í
Kína. Þar eru þau notuð til bóta við
hinum ýmsu meinum, til dæmis til
að meðhöndla háan blóðþrýsting,
liðaverki og stirðleika, jafnvel til að
auka kynorku, ásamt ýmsu öðru,“
segir Sandra. „Kínverjar kalla
sæbjúgu gjarnan „ginseng hafsins“
og til eru sagnir um notkun
sæbjúgna fyrir þúsundum ára. Í
Indónesíu eru sæbjúgu talin hafa
lækningamátt og eru til dæmis
mikið notuð í græðandi meðferðir.
Heima hjá mömmu voru
sæbjúgun elduð, en það tekur mjög
langan tíma að gera það og menn
eru ekki endilega að elda sæbjúgu
daglega. Við fengum því þá hug-
mynd að búa til sæbjúgnahylki,
svo fólk geti fengið heilsubótar-
efnin úr sæbjúgunum daglega á
auðveldan máta,“ segir Sandra.
„Sæbjúgun sjálf innihalda fjölda
gagnlegra efna,“ útskýrir Sandra.
„Þau eru um 70% prótein og inni-
halda mörg næringarefni, vítamín,
steinefni og amínósýrur.“
Stuðla að bættri heilsu
„Við erum alltaf að þróa vörurnar
okkar og í fyrra settum við bæði
Marine Collagen og Sæbjúgna-
hylki+D3 á markað. Arctic Star
Marine Collagen er framleitt úr
atlantshafsþorskroði, íslenskum
hágæða sæbjúgum og C-vítamíni,“
Sæbjúgu eru ginseng hafsins
Arctic Star selur
sæbjúgnahylki
sem eru fram-
leidd úr íslensk-
um hágæða
sæbjúgum.
Marine Collagen
inniheldur líka
kollagen og C-
vítamín og Sæ-
bjúgnahylki+D3
innihalda líka
D-vítamín.
MYND/AÐSEND
segir Sandra. „Bæði íslensk sæbjúgu
og þorskroð innihalda mikið magn
próteins, þar á meðal kollagen,
en flestir hafa heyrt að kollagen
hefur góð áhrif á húð, hár og neglur.
C-vítamín bætir virkni þess með
því að stuðla að eðlilegri myndun
kollagens fyrir brjósk, bein og húð.
C-vítamín stuðlar líka að eðlilegri
starfsemi tauga- og ónæmiskerfis-
ins, ásamt því hjálpa til við að verja
frumur gegn oxunarálagi og draga
úr þreytu. Það stuðlar líka að eðli-
legum efnaskiptum, endurnýjun
afoxaðs forms E-vítamíns og eykur
upptöku járns.
Sæbjúgnahylki+D3 eru fram-
leidd úr hreinum íslenskum
hágæða sæbjúgum og D-vítamíni,“
segir Sandra. „D-vítamín stuðlar
að eðlilegri upptöku og notkun
kalsíums og fosfórs og eðlilegu
kalsíummagni í blóði, ásamt því
að efla viðhald beina, tanna og
vöðvastarfsemi og styðja starfsemi
ónæmiskerfisins. Það gegnir líka
hlutverki við frumuskipti.“
Fyrir alla sem er
annt um heilsuna
„Í dag er fólk almennt meira með-
vitað um mikilvægi þess að fá nátt-
úruvörur án bætiefna og hugsar
meira um heilsuna og heilbrigðan
lífsstíl. Kannski er það þess vegna
sem heilsuvörurnar okkar hafa
notið sívaxandi vinsælda,“ segir
Sandra. „Arctic Star vörurnar eru
fyrst og fremst heilsufæði til að
bæta og viðhalda heilsu, en það er
ákveðinn lífsstíll að halda líkam-
anum og heilsunni í góðu horfi.
Oft er fólk ekki mikið að hugsa
um heilsuna fyrr en það fer að finna
fyrir verkjum eða sliti og því njóta
vörurnar okkar oft frekar vin-
sælda hjá eldra fólki, en vörurnar
okkar eru samt fyrir alla sem er
annt um heilsu sína,“ segir Sandra.
„Því fyrr sem byrjað er að taka inn
sæbjúgnahylki, því betra.“ n
Vörur Arctic Star eru fáanlegar í
vefversluninni á arcticstar.is, en
þær eru einnig fáanlegar í flestum
apótekum og heilsubúðum og
í Lyfju, Fjarðarkaupum, Hag-
kaupum og á heimkaup.is.
Sandra Yunhong She
Áhugaverður bræðingur úr ólíkum áttumSENDI YKKUR MYNDI Í TÖLVUPÓSTI
Hljómsveitina
Brek skipa, frá
vinstri, þau Sig-
mar Þór Matthí-
asson, Harpa
Þorvaldsdóttir,
Jóhann Ingi
Benediktsson
og Guðmundur
Atli Pétursson.
MYND/BREK
Brek þykir lífleg
og skemmtileg
hljómsveit á
tónleikum.
MYND/EYÞÓR
4 kynningarblað A L LT 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR