Fréttablaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 35
LANDSBANKINN. IS
Forstöðumaður Hagfræðideildar
Forstöðumaður Hagfræðideildar sinnir hlutverki aðalhagfræðings bankans og er jafnframt talsmaður hans í efnahags-
málum. Við leitum því að öflugum leiðtoga til liðs við okkur sem hefur brennandi áhuga á hagfræðilegum málefnum og
býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni. Hagfræðideild gegnir lykilhlutverki við mótun sameiginlegrar sýnar Lands-
bankans á þróun og horfur í efnahagsumhverfinu. Hún annast greiningar bankans á ytra umhverfi og áhættuþáttum
í efnahagslífi, mótun og greiningu sviðsmynda fyrir mat á áhættu sem og innra eiginfjármat. Stefna og markmið
deildarinnar er að miðla upplýsingum og greiningum til starfsfólks Landsbankans og viðskiptavina hans með aðgengi-
legum hætti í ræðu og riti og leggja þannig grunn að vandaðri ákvörðunartöku.
Við leitum að kraftmiklum og framsýnum sérfræðingi í Sjálfbærniteymi bankans. Verkefni Sjálfbærniteymis felast í
vöruþróun, framkvæmd og eftirfylgni með sjálfbærri fjármálaumgjörð og stöðugri mótun framtíðarsýnar sjálfbærni.
Starf Sjálfbærniteymisins endurspeglar aukna áherslu á verkefni sem styðja við sjálfbærni bankans, viðskiptavina og
samfélagsins í heild, og felur í sér mikið samstarf á innlendum og erlendum vettvangi.
Sérfræðingur í sjálfbærni
Hagfræðideild og Sjálfbærniteymið tilheyra sviði
Samfélags, einu af sjö sviðum bankans. Hlutverk
Samfélags er að tryggja góð samskipti og fræðslu til
viðskiptavina og starfsfólks. Auk Hagfræðideildar og
Sjálfbærniteymis eru Mannauður, Markaðsmál og
Samskiptateymi hluti af Samfélagi.
Sótt er um á vef Landsbankans, atvinna.
landsbankinn.is. Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri,
sigridur.gudmundsdottir@landsbankinn.is.
Umsóknarfrestur er til og með 6. mars nk.
2021 2020 2019
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára