Fréttablaðið - 19.02.2022, Side 56

Fréttablaðið - 19.02.2022, Side 56
Vilt þú móta framtíðina með okkur? Deildarstjóri fræðsluþjónustu Suðurnesjabæjar Fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar óskar eftir öflugum og skapandi leiðtoga í starf deildarstjóra fræðsluþjónustu. Suðurnesjabær er næst stærsta sveitafélagið á Suðurnesjum með um 3.800 íbúa og um 280 starfsmenn. Í sveitarfélaginu eru tveir leikskólar, tveir grunnskólar og tónlistarskólar. Fjölskyldusvið er samþætt þjónustueining og til þess heyrir félags-, frístunda- og fræðsluþjónusta. Þá sinnir fjölskyldusvið einnig félags- og fræðslumálum fyrir sveitarfélagið Voga á grundvelli samnings, þar sem er einn leikskóli og einn grunnskóli. Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2022. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starf deildarstjóra fræðsluþjónustu. Umsjón með starfinu hefur Guðrún Björg Sigurðardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, netfang gudrun@sudurnesjabaer.is eða í síma 425-3000. Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is Helstu verkefni og ábyrgð • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi fræðsludeildar. • Eftirfylgni með lögum og reglugerðum um leik-, grunn- og tónlistaskóla. • Eftirlit og umsjón með aðbúnaði, skipulagi og árangri skólastarfs í samvinnu við skólastjórnendur. • Stuðningur og ráðgjöf við aðila skólasamfélagsins. • Tengiliður skóla m.a. við mennta- og barnamálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. • Innleiðing laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. • Teymisvinna þvert á deildir og stofnanir sveitarfélagsins. • Starfsmaður fræðsluráðs. Menntunar- og hæfniskröfur • Leyfi til að nota starfsheitið kennari. • Framhaldsnám í stjórnun eða menntunarfræðum. • Farsæl reynsla af grunnskólakennslu, stjórnun og mannaforráðum. • Haldbær reynsla af áætlunargerð og greiningum. • Þekking og reynsla í opinberri stjórnsýslu er æskileg. • Leiðtogahæfni og góð færni í mannlegum samskiptum. • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku. Erum við að leita að þér? Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri. RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR 22 ATVINNUBLAÐIÐ 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.