Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 58

Fréttablaðið - 19.02.2022, Page 58
kopavogur.is Auglýsing um deiliskipulag í Kópavogi. Nónhæð. Nónsmári 1-7 og 9-15. Tillaga að breyttu deiliskipulagi Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 8. febrúar 2022 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breyttu deiliskipulagi Nónsmára 1-7 og 9-15. Í breytingunni felst að á lóðinni Nónsmára 1-7 fjölgar íbúðum úr 55 í 60 og á lóðinni Nónsmára 9-15 fjölgar íbúðum úr 45 í 50. Heildarfjölgun íbúða er alls 10 íbúðir. Þá er sótt um hækkun byggingarreita þannig að hús nr. 1 og 9 hækki úr tveimur hæðum í þrjár og hús númer 5, 7, 13 og 15 úr fjórum hæðum í fimm hæðir. Byggingarmagn á lóðunum eykst úr 15.600 m2 í 17.300 m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,5 í 0,6. Bílastæðum neðanjarðar fjölgar úr 82 í 104 en bílastæðum ofanjarðar fækkar úr 125 í 122. Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð dags. 11. janúar 2022. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Ofangreind tillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk skipulagsdeildar á netfangið skipu- lag@kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 6. apríl 2022. Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi. kopavogur.is Auglýsing um deiliskipulag í Kópavogi. Smiðjuvegur 7 - Breytt deiliskipulag. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 28. september 2021 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Smiðjuveg 7. Í breytingunni felst stækkun á byggingareit til norðurs þar sem fyrirhugað er að reisa einnar hæðar viðbyggingu alls 482 m² að flatarmáli. Bílastæðum ofanjarðar fjölgar úr 69 í 81. Nýtingarhlutfall breytist úr 0,49 í 0,44. Fyrirhuguð viðbyggingin mun verða úr stálgrind og klædd með yleiningum. Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:500 ásamt skýringarmyndum dags. 8. júlí 2021. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Markavegur 2 - Breytt deiliskipulag. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 11. janúar 2022 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Markaveg 2. Í gildandi deiliskiplagi er heimild fyrir byggingu hesthúss á einni hæð, byggingarreitur er 240 m² og lóðin 862 m². Í breyt- ingunni felst að lóðinni verði skipt í tvær lóðir og á þeim heimilað að reisa parhús með sameiginlegu gerði. Það er að segja tvö samhangandi hesthús með byggingarreit 120 m² að flatarmáli hvort um sig. Að öðru leyti gilda áður samþykktir skilmálar. Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 og 1:200 dags. 9. desember 2021. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Ofangreindar tillögur eru aðgengilegar á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um tillögurnar er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk skipulagsdeildar á net- fangið skipulag@kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á net- fangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 6. apríl 2022. Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi. Innkaupaskrifstofa Sími 411 1111 ÚTBOÐ Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Úlfarsárdalur – Lóðarfrágangur og stígar, útboð 15419 • Rafstöðvarvegur – Göngu og hjólastígur. Toppstöði – Bíldshöfði, útboð 15427 Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.