Fréttablaðið - 19.02.2022, Síða 70
Einar Ásgeirsson tekur inn
blöndurnar Kollagen og Liði
frá Protis. Hann er alsæll
með árangurinn og segir
vörurnar gera sér kleift að
stunda hreyfingu án verkja.
Áður en Einar hóf inntöku á Kolla-
geni og Liðum var hann farinn að
finna fyrir verkjum sem voru farnir
að hafa neikvæð áhrif á getu hans
til að hreyfa sig og þar af leiðandi á
lífsgæði hans.
„Ég var með liðaverki í öxlum
og hnjám, svona eins og gengur og
gerist en svo var ég líka sárþjáður
af vefja- og vöðvaverkjum. Ég var
farinn að ímynda mér að ég væri
kominn með vefjagigt eða eitthvað
í þeim dúr.“ Einar segir kynni sín af
vörunum hafa verið hálfgerða til-
viljun. „Ég var búinn að prófa ýmis-
legt og prófaði þetta af rælni. Þetta
reyndist síðan virka svona rosalega
vel. Ég er orðinn mjög góður í dag.“
Áþreifanlegur munur
Einar er búinn að nota vörurnar
í tæp tvö ár og hafa komið upp
tímabil þar sem hann hefur ekki
tekið þær inn. „Ég er búinn að prófa
að sleppa þessu og þá fer ekkert á
milli mála hvað þetta virkar vel. Ég
hef svo fundið áþreifanlegan mun
þegar ég byrja aftur.“
Þá hefur hann enn fremur
reynslu af því að taka inn bara aðra
hvora vöruna og þær saman. „Ég
hef líka bara átt Liði eða bara átt
Kollagen en ég finn að þetta virkar
ennþá betur saman. Þetta er frábær
blanda. Ég þarf að taka þetta með
mat til að styðja við upptökuna
þannig að ég tek þetta með sjúss af
ólífuolíu,“ segir Einar og hlær.
Einar hefur einnig prófað aðrar
sambærilegar vörur, bæði erlendar
og innlendar, og segir hann Protis
hafa reynst sér best. „Þetta erlenda
virkaði ekki neitt og þetta inn-
lenda virkaði ágætlega en var bara
alltof dýrt.“
Eins og þegar maður var yngri
Einar stundar ýmsa hreyfingu sér
til ánægju og segir blöndurnar nú
orðnar ómissandi. „Ef ég ætla að
vera góður, njóta lífsins og geta
hreyft mig þá finnst mér algjört
lykilatriði að taka þetta inn. Þetta
styður alla hreyfingu, hvort sem
það er skokk, hlaup eða ganga á fell
og fjöll.“
Einar segir ávinninginn ekki
síst felast í því hversu jákvæð áhrif
þetta hafi á endurheimt vöðva
þegar búið er að taka á því. „Þetta
verður svolítið eins og þegar maður
var yngri og fékk ekki harðsperrur
eða annað vesen. Líðanin batnar og
þá er auðveldara að virkja sig betur
í hreyfingu. Þannig kemur þetta
allt.“
Einar mælir heilshugar með vör-
unum. „Ég hugsaði með mér hvort
maður ætti nokkuð að vera að tjá
sig en síðan er ég alltaf að lesa um
fólk sem þjáist til dæmis af vefjagigt
og ef það getur lagað það með
þessu í staðinn fyrir að þjást, þá
væri algjör synd að koma því ekki á
framfæri. Mér er því ljúft og skylt að
deila þessu með fólki ef þetta skyldi
vera eitthvað sem gæti hjálpað því,“
segir Einar.
„Ég hélt að ég væri kominn með
vefjagigt en það lagaðist eftir að ég
fór að taka þetta inn. Það eru svo
mikil lífsgæði sem fylgja því að vera
í formi.“
Verndar liði, bein og brjósk
Protis Liðir er unnið úr kollagen-
ríkum skrápi sæbjúgna með
viðbættu vatnsrofnu þorskprótíni
fyrir viðhald vöðva og túrmeriki
fyrir bólgueyðandi áhrif. Blandan
inniheldur einnig mangan og nauð-
synleg vítamín fyrir heilbrigð bein,
brjósk og liðvökva.
Fyrir húð, hár og neglur
Kollagen frá Protis er einstök
blanda úr hágæða innihaldsefnum
sem styðja við styrkingu á húð, hári
og nöglum. Kollagenið er framleitt
úr íslensku fiskroði og inniheldur
einstakt innihaldsefni – SeaCol,
sem er blanda af vatnsrofnu kolla-
geni úr íslensku fiskroði og vatns-
rofnu þorskprótíni úr íslenskum
þorski. SeaCol tekur þátt í að
styrkja vefi líkamans og viðhalda
teygjanleika. Einnig er sérvalin
blanda af vítamínum og stein-
efnum sem öll styðja við styrkingu
á húð, hári og nöglum. n
Vörur Protis fást í öllum helstu
matvöruverslunum og apótekum.
Ómissandi til að geta hreyft sig og notið lífsins
Einar Ásgeirs-
son segist mun
fljótari að ná sér
eftir hreyfingu
þegar hann
tekur inn bæði
Kollagen og Liði
frá Protis.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Ef ég ætla að vera
góður, njóta lífsins
og geta hreyft mig þá
finnst mér algjört möst
að taka þetta inn.
Leður, pleður, feik leður,
eða hvað menn vilja kalla
það, hefur lengi verið ein
helsta leið töffaralegra
tískudrottninga og -kónga
til þess að setja smá pönk í
útlitið.
jme@frettabladid.is
Alla jafna er leður slitsterkt efni
sem verður einfaldlega meira töff
eftir því sem það eldist og veðrast.
Því er ekki að undra að það hafi
um árþúsundir verið notað í hluti
sem þurfa að þola sitt. Leður er
því ávallt klassískt hráefni í jakka,
skó, belti og veski. Upp á síðkastið
hafa leðurbuxurnar komið sterkar
inn í fataskáp tískudrottning-
anna. Sömuleiðis hafa leðurpilsin
verið vinsæl.
Leðrið teygir anga sína
Leðrið er ekki að fara neitt í haust
og vetur 2022 og 2023, ef marka
má tískupallana síðustu vikur. Þar
leikur þetta klassíska hráefni stórt
og veigamikið hlutverk í öllum
sínum ólíku myndum, og meira til.
Því má segja að leðrið muni teygja
anga sína enn víðar með haustinu
en oft áður. Flæðandi og síð leður-
pils og kjólar eru eitt áhugaverð-
asta dæmið um nýja notkun á
þessu töffaralega efni. Einnig mátti
sjá leðurkorselettum bregða fyrir
og fleiru óvanalegu. n
Allt löðrandi í leðri
Á tískusýningu Maryam Nassir Zadeh í New York í vik-
unni mátti sjá töluverða leðurnotkun. Hér má sjá áhuga-
verðan efripart úr brúnu leðri fyrir haust/vetur 2022.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þetta flæðandi leðurpils er úr
smiðju Altuzarra Ready to Wear fyrir
haust og vetur 2022-2023. Módelið
sýndi pilsið sunnudaginn 13. febrúar
á tískuvikunni í New York.
Tískuvikan í NY. Hér má sjá glæsi-
legan leðurkjól úr smiðju Brandon
Maxwell fyrir veturinn.
Þetta sjúklega korselett er úr haust/vetrarlínu Dion Lee
sem sýnd var á tískuvikunni í NY á mánudaginn.
8 kynningarblað A L LT 19. febrúar 2022 LAUGARDAGUR