Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 21
Aðalfundur
Íslandsbanka hf.
Stjórn Íslandsbanka hf. boðar til aðalfundar bankans sem haldinn verður fimmtudaginn 17. mars
2022, kl. 16:00, í fundarsalnum Gullteig á Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 28, 105 Reykjavík.
Jafnframt er gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Atkvæðagreiðsla á fundinum fer
eingöngu fram með rafrænum hætti. Fundurinn fer fram á íslensku, en boðið verður upp á
túlkaþjónustu á ensku.
Eftirfarandi mál eru á dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar um rekstur og starfsemi bankans síðastliðið rekstrarár;
2. Staðfesting ársreiknings bankans og samstæðureiknings fyrir næstliðið rekstrarár;
3. Ákvörðun umgreiðslu arðs;
4. Kosning stjórnar, varastjórnar bankans og formanns stjórnar;
5. Kosning endurskoðanda;
6. Ákvörðun umþóknun stjórnarmanna bankans og laun nefndarmanna
í undirnefndum stjórnar;
7. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu bankans;
8. Tillaga stjórnar um starfsreglur tilnefningarnefndar bankans;
9. Tillaga stjórnar umheimild til kaupa á eigin hlutumog samsvarandi
breyting á samþykktum;
Verði tillagan samþykkt felur hún í sér að stjórn bankans verði veitt heimild til að kaupa allt að 10% af hlutafé
bankans í þeim tilgangi að setja upp endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup
bankans á eigin bréfum. Heimildin mun gilda fram að aðalfundi bankans árið 2023 en hafi hann ekki farið
fram 15. september 2023 rennur hún út þann dag. Framkvæmd endurkaupa er háð fyrirfram samþykki
Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands.
10. Önnurmál.
Aðrar upplýsingar
Gefinn er kostur á þátttöku á fundinum með rafrænum
hætti, með Lumi AGM veflausninni þar sem beint
vefstreymi frá fundinum verður aðgengilegt auk þess sem
að hluthafar geta borið upp skriflegar spurningar. Rafræn
þátttaka jafngildir mætingu á fundinn og veitir rétt til
þátttöku á honum að öðru leyti. Atkvæðagreiðsla mun
alfarið fara fram rafrænt í gegnum Lumi AGM veflausnina
án tillits til þess hvort hluthafar mæta á fundarstað eða
taka þátt rafrænt. Hægt verður að greiða atkvæði í tölvu,
spjaldtölvu eða snjallsíma. Ekki verður gefinn kostur á
rafrænni atkvæðagreiðslu fyrir auglýstan tíma aðalfundar.
Aðilar sem eru skráðir hluthafar í hlutaskrá skv.
hluthafakerfi bankans þegar aðalfundur fer fram
geta beitt réttindum sínum á aðalfundi. Hluthöfum er
heimilt að láta umboðsmann sækja aðalfundinn og
fara þar með atkvæðisrétt fyrir sína hönd. Hluthafar
einir bera ábyrgð á því hverjum þeir veita umboð eða
afhenda aðgangsupplýsingar. Á vefsíðu bankans,
www.islandsbanki.is/hluthafafundir, má finna sniðmát af
umboði semhluthöfumer bent á að nýta sér. Umboð gilda
einungis til fundarsetu á einumhluthafafundi nema annað
sé skýrlega tekið fram í efni umboðsins. Hluthöfum, sem
jafnframt eru lögaðilar eða hyggjast láta umboðsmann
sækja aðalfundinn, er bent á að tryggja að sá aðili hafi til
þess heimild.
Til þess að hægt sé að tryggja tímanlega úrvinnslu
á beiðnum hluthafa um aðgangsupplýsingar eru
hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug
á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða
á staðnum, beðnir um að skrá sig á heimasíðunni
www.lumiconnect.com/meeting/islandsbanki, eigi
síðar en kl. 16:00 þann 16. mars 2022, eða degi fyrir
fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd
af skilríkjum og umboð, ef við á. Hluthafar geta lagt
spurningar fyrir aðalfund með tölvupósti á netfangið
hluthafar@islandsbanki.is eða á aðalfundinum sjálfum.
Þeir hluthafar sem óska eftir því að fá tiltekið mál tekið
til meðferðar á aðalfundinum, skulu senda kröfu um
slíkt á netfangið hluthafar@islandsbanki.is í síðasta lagi
tíu dögum fyrir boðaðan aðalfund, eða í síðasta lagi fyrir
kl. 16:00 þann 7. mars 2022. Kröfu um slíkt skal fylgja
rökstuðningur eða drög að ályktun fundarins.
Á hluthafafundi fylgir eitt atkvæði hverri krónu nafnverðs
hlutafjár. Hluthafafundur telst lögmætur, án tillits til
fundarsóknar, ef löglega var til hans boðað og fundurinn er
sóttur af einum eða fleiri hluthöfum.
Dagskrá, tillögur stjórnar til aðalfundar, ársreikningur
fyrir árið 2021, upplýsingar um hvernig hluthafar geta
nálgast aðgangsupplýsingar og um framkvæmd
rafrænnar atkvæðagreiðslu og önnur skjöl sem lögð
verða fyrir aðalfundinn er að finna á vefsíðu bankans,
www.islandsbanki.is/hluthafafundir, og eru aðgengileg
í höfuðstöðvum bankans. Fundargögn eru aðgengileg
bæði á íslensku og á ensku. Sé misræmi milli fundargagna
á ensku annars vegar og íslensku hins vegar, gildir íslenska
útgáfan.