Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Lifandi píanótónlist öll kvöld Opnunartími Mán.–Fös. 11:30–14:30 Öll kvöld 17:00–23:00 Borðapantanir á matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is „Við stofnuðum Kvíðakastið í des- ember 2021 með það að leiðarljósi að veita fólki fræðslu um málefni tengd geðheilsu. Ætlun okkar er að hlaðvarpið geti að einhverju leyti veitt aðstoð, í formi fræðslu og verkefna, á með- an einstaklingar bíða eftir sál- fræðiþjónustu enda hafa biðlistar aldrei verið lengri,“ segir Katrín Mjöll Halldórs- dóttir, en hún heldur úti hlaðvarpinu Kvíðakastinu ásamt þeim Sturlu Brynjólfssyni og Nínu Björg Arn- arsdóttur. Öll eru þau sálfræðingar sem starfa á Litlu kvíðameðferðar- stofunni og elska að spjalla um allt og ekkert, að eigin sögn. „Við viljum samt sem áður hafa hlaðvarpið létt og skemmtilegt, í spjallformi frekar en fyrirlestra- formi sem fólk tengir yfirleitt sál- fræðinga við. Okkur þykir líka skemmtilegt að fræðast og þetta er því okkar leið til þess að halda okkur á tánum, lesa nýjustu rannsóknir og miðla þeim til almennings. Einnig viljum við auka vitundarvakningu um andlega erfiðleika, sem gæti gert það að verkum að fólk sem hafði mögulega ekki leitað til sálfræðings áttaði sig á því að það gæti gagnast þeim. Jafnframt viljum við veita betra aðgengi að sálfræðingum og bjóðum við alltaf fólki að senda okk- ur spurningar á instagram fyrir hvern þátt sem við svo svörum í næsta þætti. Við fáum einnig til okk- ar aðra sálfræðinga og annarskonar sérfræðinga í spjall um viðfangsefni sem þau eru sérhæfð í,“ segja þau í samtali við Morgunblaðið. Aðspurð segja þau að viðtökurnar hafi verið vonum framar. „Við höfum fengið skilaboð og at- hugasemdir úr ýmsum ólíkum átt- um, til dæmis frá kennurum, for- eldrum, ungu fólki og öðrum sál- fræðingum þar sem fólk segir okkur hvernig hlaðvarpið hefur aðstoðað það. Okkur finnst það ótrúlega gam- an og hvetur það okkur til að halda áfram,“ segja þau. K100 fékk þáttastjórnendur Kvíðakastsins til að deila nokkrum hlaðvörpum sem þeir mæla sérstak- lega með en uppáhaldshlaðvörp þeirra eru bæði fjölbreytt og fræð- andi. Þau má sjá hér að neðan. Beint í bílinn „Það er fátt betra en að hlusta á Beint í bílinn með tveimur fyndnustu mönn- um landsins, Pétri Jóhanni og Sverri Þór, þar sem þeir tala um allt og ekkert meðan þeir rúnta um götur borgar- innar. Það krefst ekki einbeitingar og er létt og skemmtilegt.“ Síðdegisþátturinn á K100 „Siggi Gunnars er búinn að stýra Síðdegis- þættinum á K100 núna í þó nokkurn tíma og er hægt að hlusta á hlað- varpsútgáfu af þættinum á veitun- um. Í þættinum er farið yfir mál- efni líðandi stundar á léttu nótunum. Það er nóg að heyra röddina í Sigga til þess að kom- ast í gott skap. Lífsglaðari mann er erfitt að finna. Við mælum eindregið með.“ Unlocking Us með Brené Brown „Brené er sérfræðingur í skömm og berskjöldun (e. vulnerability). Í hlaðvarpinu talar hún um mann- legu eiginleikana í okkur öllum og hvað tengir okk- ur. Brené er mjög skemmtilegur karakter og mætir til dyranna eins og hún er klædd.“ Small Things Often „Gottman Insti- tute kemur með stutt og gagnreynd sambandsráð í þessu hlaðvarpi. Það er einstaklega gott fyrir fólk sem vill hnitmiðaðar upplýsingar, hefur lítið úthald til að hlusta á hlaðvörp eða takmarkaðan tíma til þess. Þættirnir eru 2-4 mínútur og eru til dæmis um væntingar til makans, hvernig á að halda í rómantíkina eftir barneignir og einmanaleika í samböndum.“ On Purpose „Jay Shetty, stjórn- andi hlaðvarps- ins, er rithöf- undur, mark- þjálfi og fyrr- verandi munkur. Hann fær til sín ýmsa fræga gesti og ræðir um al- hliða heilsu og vellíðan.“ Bestu hlaðvörpin frá Kvíðakastinu Kvíðakastið Sálfræðingarnir Sturla, Nína og Katrín stofnuðu hlaðvarpið Kvíðakastið í lok árs 2021 og hafa viðtökurnar verið vonum framar. Skilaboðin hvatning til að halda áfram Sálfræðingarnir Katrín Mjöll, Sturla og Nína Björg stofnuðu saman hlaðvarpið Kvíðakastið í lok síðasta árs sem hefur vakið gífurlega mikla lukku meðal hlustenda en þau segja viðtökurnar hafa verið framar öllum vonum. K100 fékk þau til að gefa álit á fimm hlaðvörpum sem þau mæla sérstaklega með. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Brosmildu hjónin Hu og Ling reka kínverska veitingastaðinn Slow Boat á stærstu eyju Kanaríeyja, Gran Canaria, en staðurinn hefur í um 20 ár vaxið í vinsældum hjá Íslendingum sem sækja „Kanarí“, eins og eyjan er oft kölluð af landanum, heim reglu- lega. Blaðamaður snæddi á staðnum ásamt fríðu föruneyti Íslendinga sem venja komur sínar á staðinn og valdi sér gómsæta pekingönd á matseðli á íslensku áður en hún ræddi við hjónin sem segjast vera gífurlega þakklát Íslendingum sem hafi gætt staðinn lífi og hjálpað honum að vaxa í gegn- um árin. Hjónin, sem upprunalega eru frá Kína, tala bæði nokkur orð á íslensku og ensku en nýta sér einnig aðstoð tungumálaforrits í símanum og eiga þannig samskipti við nokkra íslenska fastakúnna, en einhverja þeirra telja þau með sínum bestu vinum. Einn þeirra er Þorsteinn Sigfússon sem hefur ferðast til Gran Canaria oft á ári á síðustu árum og var með fyrstu Íslendingunum sem byrjuðu að fara reglulega á Slow Boat fyrir um 20 ár- um – en staðurinn er einmitt stað- settur mjög nálægt Mannabar, öðr- um veitingastað sem einnig hefur verið gríðarlega vinsæll meðal land- ans. Þorsteinn tók meðal annars á móti Hu og Ling þegar þau heimsóttu Ís- land en í þeirri ferð heilluðust þau al- gjörlega af landinu. „Við komum til Íslands árið 2017 til að tjá einlægt þakklæti okkar til Ís- lendinga,“ segir Hu spurður út í Ís- landsferðina. „Íslendingar einkennast af nátt- úrulegri einlægni og góðvild sem fyll- ir okkur af hamingju sem minnir á fjölskyldubönd. Þetta fær okkur til að vilja gera vel við þá og veita þeim sér- staklega góða þjónustu,“ segir Hu. Gríðarlega þakklát Íslendingum Hjónin Hu og Ling eru af- ar þakklát Íslendingum sem hafa hjálpað veit- ingastað þeirra á Kanarí að vaxa í gegnum árin. Vinir Hér má sjá vinina á Kanarí, Hu, Ling og Þorstein Sigfússon.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.