Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022 ÚRVALSFÓLK Á KANARÍ WWW.UU.IS HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS MEÐ UNNI PÁLMARSDÓTTUR Komdu með í frábæra ferð fyrir 60 ára og eldri til Kanarí. Í þessari ferð verður gist á Eugenia Victoria, vel staðsettu hóteli við Ensku ströndina. Unnur Pálmarsdóttir er vinsæll fararstjóri hjá Úrval Útsýn og í þessari ferð mun hún bjóða upp á fjölbreytta dagskrá svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hún býður þar á meðal upp á morgungöngur, léttar og mýkjandi æfingar fyrir alla, minigolf og skemmtilega ferð til Puerto de Morgan, sameiginlegar kvöldstundir. BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR, 13 NÆTUR Á EUGENIA VICTORIA 3* HÓTELI MEÐ HÁLFU FÆÐI, ÍSLENSK FARARSTJÓRN, AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI, OG BÓKUN Í ALMENN SÆTI AÐ KOSTNAÐARLAUSU. INNIFALIÐ Í VERÐI: 14 DAGA FERÐ 29. MARS - 11. APRÍL VERÐ FRÁ 239.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Unnur Pálmarsdóttir Björn Jóhann Björnsson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Ríkisstjórnin samþykkti í gær til- lögu heilbrigðisráðherra um að af- létta öllum sóttvarnaaðgerðum inn- anlands og á landamærunum á miðnætti í nótt. Frá morgundeginunum falla brott allar reglur um takmarkanir á sam- komum og skólahaldi og einnig krafa um einangrun þeirra sem sýkjast af Covid-19. Geta landsmenn því um frjálst höfuð strokið á ný, nú þegar senn verða tvö ár liðin frá upphafi faraldursins hér á landi. Í viðtali við mbl.is í gær sagði Willum Þór Þórsson heilbrigð- isráðherra afléttingar aðgerða vera gleðiefni en tilfinningarnar væru blendnar, enda fyrirséð að mikið álagi verði áfram á heilbrigðisstofn- anir vegna mikillar útbreiðslu veir- unnar í samfélaginu þessa dagana. Willum byggði tillögur sínar, líkt og áður, nær alfarið á minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalækn- is. Í minnisblaðinu segir m.a. að þótt 2.100 til. 2.800 smit hafi greinst dag- lega undanfarið þá hafi alvarlegum veikindatilfellum ekki fjölgað að sama skapi. Telur Þórólfur víðtækt samfélagslegt ónæmi gegn Covid-19 vera helstu leiðina út úr faraldrinum og markmið um 80% hjarðónæmi ætti að nást fyrir lok mars. Aflétting aðgerða eru sannarlega stór tímamót, eftir að hert hefur ver- ið og slakað á víxl síðustu tvö ár. Um þriðjungur þjóðarinnar hefur greinst með veiruna, um 115 þúsund manns, en Þórólfur telur að miðað við mótefnamælingar gæti annar eins fjöldi hafa smitast án grein- ingar. 166 reglugerðir settar Frá upphafi hafa um 1,7 milljónir sýna verið teknar, þar af um 580 þúsund á landamærunum. Ráðherra hefur á tveimur árum sett 166 reglu- gerðir vegna Covid-19. En farald- urinn hefur tekið sinn toll. Frá 16. mars 2020 hafa 60 manns látist vegna Covid-19, þar af 45 á Land- spítalanum. Morgunblaðið hefur ítrekað óskað upplýsinga frá emb- ætti landlæknis um hvar og hvenær önnur andlát en á spítalanum hafa átt sér stað. Svör hafa ekki borist. 16. FEBRÚAR 2022 2.885 staðfest smit mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. Kórónuveirufaraldurinn á Íslandi frá 28. febrúar 2020 2.750 2.500 2.250 2.000 1.750 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 2020 2021 2022Heimild: LSH og covid.is 81% landsmanna 5 ára og eldri eru fullbólusett 309.374 einstaklingar hafa fengið að minnsta kosti einn skammt60 einstaklingar hafa látist 115.241 smit hafa verið staðfest frá 28. febrúar 2020 1,7 milljón sýni hafa verið tekin, þar af 580 þúsund á landamærum 31% íbúa á landinu hafa greinst með Covid-19 28. FEBRÚAR 2020 Fyrsta smitið greint á Íslandi 27. JÚLÍ Bólusetningar barnshafandi kvenna hefjast 25. JÚLÍ Aðgerðir hertar á ný 23. ÁGÚST Bólusetningar 12-15 ára barna hefjast 15. NÓVEMBER Örvunarbólusetn- ingarátak hefst 28. DESEMBER Landspítalinn á neyðastig 16. MARS Fyrsta dauðsfallið á Íslandi vegna Covid Fyrstu samkomutakmarkanir kynntar 29. DESEMBER Bólusetningar hefjast 26. JÚNÍ 2021 Öllum aðgerðum aflétt JANÚAR TIL JÚNÍ 2021 Aðgerðum aflétt og þær hertar á víxl 24. MARS 2020 106 staðfest smit 5. OKTÓBER 100 staðfest smit 30. JÚLÍ 154 staðfest smit 15. NÓVEMBER 206 staðfest smit 30. DESEMBER 1.553 staðfest smit 2022 5. janúar Bólusetningar barna 5-11 ára hefjast 11. janúar Neyðarstigi Almannavarna lýst 8. febrúar Fjöldi smita í fyrsta sinn yfir 2.000 25. febrúar Öllum takmörkunum aflétt, innanlands og á landamærum 881 einstaklingur hefur verið lagður inn á LSH vegna Covid-19 smits frá upphafi faraldurs, þar af 111 á gjörgæslu, 63 í öndunarvél Öllu aflétt á afmæli faraldurs - Engar aðgerðir innanlands og á landamærum frá morgundeginum - Tvö ár liðin síðan farald- urinn hófst hér - Um þriðjungur landsmanna hefur greinst með veiruna - Andlátin orðin 60 talsins Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aflétting Willum Þór Þórsson og Katrín Jakobsdóttir tilkynntu afléttingu sóttvarnaaðgerða eftir ríkisstjórnarfund í Ráðherrabústaðnum í gær. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Þetta er dagurinn til þess að taka fram rykföllnu kampavínsflöskuna sem hefur beðið í tvö ár og opna hana,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir, for- maður Samtaka ferðaþjónustunn- ar, þegar hún er beðin að lýsa við- brögðum sínum við afléttingum takmarkana á landamærunum sem kynntar voru í gær. „Við höfum alltaf sagt að þetta sé ekkert búið hjá okkur fyrr en búið væri að aflétta öllu á landamærunum. Við höfum verið að tala fyrir þessu undanfarnar vikur og það er mikil ánægja með þetta. Það er ofboðslega gott að geta horft aðeins fram í tímann núna og gert áætlanir vitandi að það eru eng- ar takmarkanir á því að fólk sem vill koma hingað geti það.“ Bjarnheiður segist reikna með að ferðamönnum fjölgi við þessar breytingar. „Við vitum að fólk er orðið þreytt á öllu þessu veseni í kringum ferðalög. Ef það stendur frammi fyrir því að velja milli tveggja kosta, þar sem annar áfangastaðurinn er með einhverjar- aðgerðir þá velur það hinn. Svo þetta hefði getað orðið samkeppnishindr- un fyrir okkur.“ Fram undan er að gera áætlanir miðað við þessar breyttu forsendur. „Nú reynum við að keyra allar vélar á fullt. Það mun náttúrulega taka sinn tíma, þetta er búið að vera hroðalega erfiður tími fyrir öll fyrir- tæki í ferðaþjónustu. En nú getum við vonast til að þetta sé allt að baki.“ Opna kampa- vínsflöskuna - Ferðaþjónustan fagnar afléttingum Morgunblaðið/Hari Ferðamenn Búast má við aukinni umferð um Keflavíkurflugvöll. Bjarnheiður Hallsdóttir ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.