Morgunblaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2022
TÍSKUVERSLUN
Í KRINGLUNNI
Ein þekktasta tískuverslun á besta
stað í Kringlunni til sölu.
Tilvalið fyrir systur eða vinkonur
sem hafa brennandi áhuga á tísku
og mannlegum samskiptum.
Til afhendingar 1. ágúst 2022.
Áhugasamir sendi umsóknir á
box@mbl.is merkt: „1331“
fyrir 28. febrúar.
Höldum
álögum
í lágmarki
4.-6. sæti
Bjarni Th.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í Garðabæ 5. mars
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Miklar breytingar verða á starfsemi
Góða hirðisins og Sorpu um næstu
áramót. Þá verður verslun Góða hirð-
isins ásamt skrifstofum Sorpu flutt
að Köllunarklettsvegi 1, í gamla hús-
næði Kassagerðar Reykjavíkur.
Verslun Góða hirðisins í Fellsmúla
verður lokað en húsnæði þeirrar
verslunar þótti vera orðinn flösku-
háls í starfsem-
inni. Nýja versl-
unin við
Köllunarkletts-
veg verður ríflega
þrjú þúsund fer-
metrar, tvöfalt
stærri en sú
gamla.
„Góði hirðirinn
er sprunginn á
núverandi stað og
húsnæðið er
slæmt. Við viljum að starfsmenn geti
verið í góðu húsnæði svo þeir geti
blómstrað í sínum störfum en það er
greinilega þörf á þessari starfsemi
samhliða aukinni umhverfismeðvit-
und hjá fólki. Þarna eru mikil verð-
mæti. Við viljum útvíkka starfsemi
Sorpu og stækka Góða hirðinn. Ég vil
skoða það að fjölga búðunum enn
frekar og opna til dæmis í Hafn-
arfirði og Kópavogi,“ segir Líf Magn-
eudóttir, stjórnarformaður Sorpu.
Hús Kassagerðarinnar fær and-
litslyftingu við þetta tækifæri. Skrif-
stofuhluti þess verður stækkaður og
verður heildarstærð húsnæðisins um
12 þúsund fermetrar. Eigendur húss-
ins vilja byggja þar upp klasa á sviði
sjálfbærni, hringrásar og loftslags-
mála. Hermt er að einkafyrirtæki
hafi sýnt áhuga á þessum hug-
myndum og hafi hug á að koma sér
þar fyrir. Engar frekari upplýsingar
fást þó um það að svo komnu máli.
Líf segir við Morgunblaðið að
spennandi sé að taka þátt í þessum
breytingum. Hún segir að eitt af
meginverkefnum Sorpu sé að styðja
við innleiðingu hringrásarhagkerf-
isins á Íslandi. Það sé jákvæð þróun
að opinberir aðilar geti plægt jarð-
veginn fyrir breytingar og einkaað-
ilar sái svo þar fræjum.
„Sveitarfélögin bera höfuðábyrgð í
mínum huga við að innleiða hringrás-
arhagkerfið og Góði hirðirinn er einn
hlekkur í þeirri keðju. Nú erum við
að fara að samræma sorphirðu á höf-
uðborgarsvæðinu og verður sorp
flokkað í lífrænan eldhúsúrgang,
blandað heimilissorp, pappír og
pappa og plastumbúðir. Samhliða
þessu verður grenndarstöðvakerfið
útvíkkað og þétt. Um leið og við inn-
leiðum þessar frábæru breytingar
förum við með Sorpu inn í þennan
hringrásarklasa sem er mjög spenn-
andi. Þarna verða vonandi lík verk-
efni sem styðja við hvert annað. Það
er mikilvægt að sveitarfélögin og
Sorpa séu í samvinnu við einkaaðila á
þessu sviði. Okkar hlutverk er að
styðja við, fræða og hvetja til
framþróunar, að vinna með einkaað-
ilum og heimilum að innleiðingu
hringrásarhagkerfisins,“ segir Líf.
Hún segir að mikið hafi áunnist í
málefnum Sorpu á síðustu árum og á
sama tíma hafi almenningur og fyrir-
tæki tekið stór skref til að bæta um-
hverfið. Þannig séu nú reknar marg-
ar verslanir sem selja notuð föt og
fyrirtæki láti sjálf framleiða vörur úr
endurunnu plasti svo dæmi séu tekin.
„Stóra markmiðið er auðvitað að
minnka neyslu, að minnka úrgang, en
næsta stóra verkefni í þessu hring-
rásarhagkerfi er að finna fleiri leiðir
til að endurnýta og endurvinna. Ég
sé víða tækifæri fyrir Sorpu til að
efna til samstarfs við aðra á þessu
sviði. Félagið á að skaffa aðstöðu og
innviði í samvinnu við aðra til að inn-
leiða hringrásarhagkerfið. Eitt af því
sem ég vil breyta er að nota af-
gangsfé af rekstri Góða hirðisins til
nýsköpunar á sviði umhverf-
isverndar og loftslagsmála. Þessu fé
hefur til þessa verið veitt til að styðja
við líknarfélög og ýmsa grasrót-
arstarfsemi sem hefur verið frábært.
En hið opinbera á líka að styðja við
umhverfismál og þetta rímar við
hlutverk Sorpu við fræðslu og miðlun
á sviði úrgangsmála.“
Góði hirðirinn flytur í Kassagerðina
- Tvöfalt stærri verslun með nytjamuni og skrifstofur Sorpu undir sama þaki - Klasi á sviði sjálf-
bærni, hringrásar og loftslagsmála - Stjórnarformaður Sorpu vill meiri nýsköpun í umhverfisvernd
Framtíðin Ráðast á í endurbætur á húsnæði Kassagerðarinnar. Skrifstofuhluti hússins verður stækkaður til muna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kassagerðin Þarna var um langt árabil umfangsmikil iðnaðarstarfsemi en síðustu ár hefur verið tómlegt þar.
Líf
Magneudóttir
Alls bárust 352 kvartanir um rottu-
og músagang í Reykjavík í fyrra.
Kvartanir vegna músa voru 218 en
vegna rotta 134. Kvörtunum vegna
rotta fækkaði verulega frá fyrra ári
en vegna músa var fjölgun á kvört-
unum. Í heildina er fækkun frá árinu
2020 þegar kvartanir voru 389.
Þetta segir þó ekki alla söguna, að
því er fram kemur í greinargerð
Guðmundar Björnssonar, rekstr-
arstjóra meindýravarna, um starf-
semina árið 2021. Fyrir nokkrum ár-
um var þjónusta Meindýravarna
Reykjavíkurborgar skorin niður og
er útköllum ekki sinnt eftir kl. 21 á
kvöldin og ekki um helgar eins og
áður var. Þurfa borgarbúar því að
hafa samband við sjálfstætt starf-
andi meindýraeyða, sem einnig hafa
tekið að sér reglubundið meindýra-
eftirlit hjá fyrirtækjum. Þessir sjálf-
stætt starfandi meindýraeyðar skila
ekki neinum gögnum um kvartanir
vegna meindýra til opinberra aðila
þannig að þar er um að ræða ein-
hvern fjölda kvartana vegna rotta
og músa sem vanti í heildarmyndina.
Fjórir starfsmenn unnu að mein-
dýraeyðingu allt árið í fyrra. Hver
kvörtun þýðir a.m.k. fjórar ferðir til
eftirlits og skoðunar að meðaltali.
Rottum og músum var eytt á þeim
stöðum sem kvartanir bárust frá.
Einnig voru fjórir sumarstarfs-
menn í vinnu frá 1. júní til 31. ágúst
og sinntu forvarnastarfi, þ.e. eitrun í
holræsabrunna. Eitrað var í 4.983
holræsabrunna og fóru í þá 1.086 kg
af beitu, þ.e. 5.431 staukar, en hver
staukur er 200 grömm.
sisi@mbl.is
Færri kvörtuðu
yfir rottugangi
Morgunblaðið/Arnaldur