Fréttablaðið - 16.04.2022, Side 4
Ég lít svo á að við
mannfólkið séum
aðeins þjónustufólk
fyrir ketti.
Snorri Ásmunds-
son, oddviti
Kattafram-
boðsins
FÁRÁNLEGA LÁGT VERÐ
Við bjóðum upp á takmarkað magn af hjólbörðum og felgum fyrir fólksbíla, minni
jeppa, stærri jeppa og pallbíla. Ný og ónotuð dekk á ótrúlegu lágu verði.
Gott úrval af dekkjum og felgum.
Hér fyrir neðan má sjá verðdæmi um dekk og felgur í boði:
Dekkja- og felgugangar:
32” 255/75R17 - 199.000 kr.
33,5” 285/60R20 - 199.000 kr.
33” 275/70R18 - 179.000 kr.
Dekkjagangur:
32” 255/75R17 - 69.960 kr.
30,5” 285/60R20 - 79.600 kr.
33” 275/70R18 - 79.600 kr.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ISBAND.IS, DEKK@ISBAND.IS OG Í SÍMA 590 2323
FYRSTIR KOMA - FYRSTIR FÁ
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 07:45 - 17:00
Fleiri stærðir í boði. Uppgefið verð er heill umgangur eða 4 stk með vsk.
Listi Kattaframboðsins á
Akureyri liggur fyrir og odd-
vitinn er bjartsýnn á góðan
árangur í kosningunum.
Hann vill losna við þá sem
samþykktu lausagöngubann
katta úr bæjarstjórn.
kristinnhaukur@frettabladid.is
AKUREYRI Snorri Ásmundsson,
listamaður og oddviti Kattafram-
boðsins á Akureyri, er harðorður í
garð þeirra bæjarfulltrúa sem sam-
þykktu bann við lausagöngu katta
í nóvember síðastliðnum og vill þá
úr stjórnmálum. Hann er bjartsýnn
á góðan árangur í sveitarstjórnar-
kosningunum í maí.
„Þarna eru sjö manns sem eiga
ekkert heima í pólitík,“ segir Snorri.
Hann telur 45 prósent bæjarbúa
mjög á móti þessari ákvörðun. „Ég
held að við náum fleiri en tveimur
mönnum inn. Væntingar mínar eru
að við verðum stærsti f lokkurinn í
bæjarstjórn.“
Á Akureyri er enginn meiri- eða
minnihluti heldur starfa allir ell-
efu bæjarfulltrúarnir saman. Eva
Hrund Einarsdóttir, fulltrúi Sjálf-
stæðisf lokksins, lagði fram tillög-
una sem var samþykkt af fulltrúum
Sjálfstæðisf lokksins, Framsóknar-
f lokksins, Miðflokksins og öðrum
fulltrúa L-listans. Hinn fulltrúi
L-listans, ásamt fulltrúum Sam-
fylkingarinnar og Vinstri grænna,
var á móti banninu sem hefur verið
harðlega gagnrýnt, meðal annars af
Dýralæknafélagi Íslands.
Snorri segir fólkið á lista Katta-
framboðsins óvant í stjórnmálum
og vera enn að móta sína stefnu
en listinn, sem fékk bókstafinn K,
var kynntur á þriðjudag. Þau sitja
í umboði katta sinna, meðal ann-
ars Snúbba, Pjakks, Pusegutts og
Vill bæjarfulltrúa sem samþykktu
lausagöngubann úr stjórnmálum
Köttur á Akureyri nýtur frelsisins meðan hann getur. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Sólveig Anna
Jónsdóttir
formaður Eflingar
og stjórn Eflingar
tóku umdeilda
ákvörðun um að
segja öllu starfs-
fólki Eflingar
upp störfum. Ákvörðunin hefur
valdið titringi svo ekki sé meira
sagt. Áhrifafólk innan verkalýðs-
hreyfingarinnar hefur gagnrýnt
ákvörðunina harðlega. Í viðtali í
Kastljósi í vikunni sagði Sólveig
uppsagnirnar alls ekki vera hefnd-
araðgerðir af sinni hálfu heldur vel
ígrundaða ákvörðun eftir faglegt
og málefnalegt mat.
Þórólfur
Guðnason
sóttvarnalæknir
gaf út í vikunni
að hjarð-
ónæmi gegn
Covid-19 væri
náð á Íslandi.
Útbreiðsla veirunnar sé miklu
minni í samfélaginu núna og
Omíkron-bylgjan að klárast. Hann
segir óvissuna þó enn fyrir hendi
og að óvarlegt sé að lýsa faraldr-
inum lokið.
Lilja
Alfreðsdóttir
menningar- og
viðskiptaráðherra
steig fram í
vikunni og lýsti
óánægju sinni
með sölu á hlut
ríkisins í Íslandsbanka. Hún sagð-
ist ekki hafa verið hlynnt þeirri
ákvörðun að selja hlut ríkisins í
Íslandsbanka til valins hóps fjár-
festa. Deildar meiningar eru þó um
hvort og með hve skýrum hætti
hún lýsti þessari afstöðu sinni í
aðdraganda útboðsins. n
n Þrjú í fréttum
Mollýj ar Mjáfjörð. „Kötturinn fer
sínar eigin leiðir og við erum opin
fyrir því að mæta því sem á vegi
okkar verður,“ segir Snorri. Engin
stefna hafi verið ákveðin önnur en
sú að vinna fyrir náttúruna og gegn
dýraníði.
Hann segir lausagöngubannið
hafa verið kveikjuna að framboðinu
en það verði ekki lagt niður náist að
fá banninu hnekkt. Tilgangurinn
verði áfram að vernda dýrin. Snorri
segir framboðinu hafa verið mjög
vel tekið. Enn sé ekki ljóst nákvæm-
lega hvernig baráttu framboðsins
verði háttað en fólkið á listanum
sé nú að skipta með sér verkum.
Snorri útilokar ekki u-beygjur í
þeim efnum, líkt og kettirnir taka.
„Kettir hafa verið dáðir og dýrk-
aðir í mörg þúsund ár, alveg síðan á
tímum Forn-Egypta. Ég lít svo á að
við mannfólkið séum aðeins þjón-
ustufólk fyrir ketti,“ segir Snorri.
Dýravernd er aðeins lítill hluti
af skyldum sveitarfélaga. Spurður
hvernig framboðið hyggist taka
á skipulagsmálum, skólamálum,
félagsmálum og f leiru í þeim dúr
seg ir Snor r i stjór nmálamenn
ofmetna í þeim efnum.
„Ég trúi á embættismannakerf-
ið,“ segir Snorri. „Embættismanna-
kerfið heldur öllu gangandi. Stjórn-
málamenn eiga að hafa sem minnst
afskipti.“ Bendir hann á að Belgar
hafi verið án ríkisstjórnar í nærri
tvö ár, árin 2010 og 2011, og allt hafi
gengið eins og í sögu. Aðeins þegar
breyta eigi hlutum þurfi stjórn-
málamenn að koma að og þeir séu
yfirleitt til trafala. n
kristinnpall@frettabladid.is
ÍSAFJÖRÐUR „Þetta stóð aðeins tæpt
með flugið, við vorum með stærstan
hluta flytjendanna á leiðinni í f lugi
og það munaði bara einhverjum
mínútum að það væri ekki hægt að
lenda. Ég er viss um það að þau sem
voru um borð gleyma þessu aldrei,“
segir Örn Elías Guðmundsson, einn-
ig þekktur sem tónlistarmaðurinn
Mugison, spurður um tónlistarhá-
tíðina Aldrei fór ég suður, sem hófst
á Ísafirði í gær.
Mugison er í hlutverki rokkstjóra
og einn af forsprökkum hátíðar-
innar.
„Síðustu tvö ár höfum við þurft að
aflýsa með nokkurra daga fyrirvara
vegna sóttvarnaráðstafana. Það er
því mikil eftirvænting í bænum og
við sáum til þess að það yrði allt
Þétt setið á Ísafirði þar sem rokkhátíð fór fram eftir langa bið
Það var strax orðið þröngt á þingi þegar KUSK steig á svið í gær. MYND/ARNÓRB
tilbúið í tæka tíð,“ segir Mugison
sem segir fjölmennt um að litast í
bænum.
„Ég var í stökustu vandræðum
með að finna gistingu í bænum
fyrir listamann sem vantaði pláss
á síðustu stundu. Það var ekki eitt
herbergi laust en okkur tókst að
leysa það. Það voru öll gistiheimili
og bara öll heimili fullmönnuð og
varla eitt herbergi laust.“ n
4 Fréttir 16. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ