Fréttablaðið - 16.04.2022, Side 8

Fréttablaðið - 16.04.2022, Side 8
Kúnstpása Ari Ólafsson tenor Hrönn Þráinsdóttir píanó 19. apríl kl 12.15. Norðurljós Sjúk ást Fríar forskoðanir fyrir laseraðgerðir út apríl Tímapantanir 414 7000 /Augljos Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is Rannsóknir á stríðsglæpum Rússa í Úkraínu hófust aðeins viku eftir innrásina. Mörg ríki hafa stutt rannsóknirnar með fjárframlögum. Íslenskir þingmenn vilja einnig leggja þeim lið. urduryrr@frettabladid.is ÚKRAÍNA Ísland er ekki í hópi þeirra ríkja sem veitt hafa sérstakan fjár- stuðning til Alþjóðlega sakamála- dómstólsins. Þrjátíu þingmenn hafa hins vegar lagt fram tillögu á Alþingi um 10 milljóna framlag. Dómstóllinn opnaði rannsóknir á stríðsglæpum í Úkraínu 2. mars, aðeins tæpri viku eftir að stríðið hófst. Á þeim tíma hafði dómstóll- inn fengið tilvísanir frá 39 löndum um að rannsaka þyrfti mögulega stríðsglæpi í Úkraínu, þar á meðal frá Íslandi. Rúmri viku seinna bætt- ust Japan og Norður-Makedónía við listann. Tæpri viku eftir að rannsóknir á stríðsglæpum hófust óskaði dóm- stóllinn eftir stuðningi frá aðildar- ríkjum og hafa fjölmörg ríki veitt dómstólnum stuðning, þar á meðal Svíþjóð, Danmörk og Finnland. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs- dóttir, þingmaður Viðreisnar, hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um að auka fjárframlög Íslands til Alþjóðlega sakamáladómstólsins. Verði tillagan samþykkt mun íslenska ríkið styrkja dómstólinn um 10 milljónir íslenskra króna. Þorbjörg var starfandi saksóknari hjá ríkissaksóknara áður en hún settist á þing. „Almennur borgari í stríði árið 2022 er í miklu sterkari stöðu heldur en fyrir einhverjum áratugum síðan,“ segir Þorbjörg spurð um rannsóknir dómstólsins sem fara óvenju snemma af stað. Í sögulegu samhengi hafa stríðs- glæpir oft ekki komið í ljós fyrr en einhverjum vikum eða jafnvel mán- uðum eftir að átökum lýkur. Stærsti áhrifaþátturinn í því hversu hratt upplýsingar berast nú er útbreidd notkun snjallsíma og myndavéla. Þessi sítenging þekktist varla fyrir áratug og afleiðing þess er að nú getur fólk í miðjum átökum deilt myndum og myndböndum á netinu af því sem er að gerast. „Frásagnirnar berast okkur jafn- óðum og í því felast ótrúlega sterk verkfæri og ótrúlega mikið tækifæri fyrir alþjóðasamfélagið til að koma ekki bara einhverjum árum seinna,“ segir Þorbjörg. Stafrænu öldinni fylgja ókjör upplýsinga, sem getur bæði hjálpað og gert erfiðara að varpa ljósi á hvað gengur raunverulega á í miðju stríði. Á sama tíma og auðveldara er að dreifa upplýsingum er líka auðveld- ara að dreifa fölskum upplýsingum og skapa upplýsingaóreiðu þar sem hinn almenni snjallsímanotandi hefur ekki tíma eða tök á að sann- reyna allar þær upplýsingar sem honum berast. Fyrir dómstólinn þýðir þetta að fara þurfi í gegnum ógrynni upplýs- inga við rannsóknir á stríðsglæpum, með tilheyrandi vinnu. „Það er þannig með allar svona stórar rann- sóknir að það er auðvitað ekki allt tekið,“ segir Þorbjörg. „Það er ekki allt, þó að það sé hræðilegt, sem nær þeim þröskuldi að vera stríðs- glæpur.“ Þrjátíu þingmenn eru meðflutn- ingsmenn tillögu Þorbjargar en í greinargerð með tillögunni segir að með fjárframlaginu „sýni íslensk stjórnvöld einarða afstöðu sína gegn stríðsglæpum og styðji viðbrögð alþjóðasamfélagsins við þeim.“ Þorbjörg segir mörg ríki þegar hafa veitt dómstólnum fjárfram- lög, í einhverjum tilfellum séu það aðeins táknrænar upphæðir, í þeim tilgangi að sýna stuðning úr öllum áttum. „Það er einlæg ósk mín að þetta verði, af því það skiptir líka máli fyrir fólk að það heyrist út á við að þetta sé raunverulegt verkfæri, svona sakamálarannsókn, og svona dómstóll,“ segir Þorbjörg. n Ísland ekki í hópi ríkja sem styrkja stríðsglæpadómstól Morð á fjölda almennra borgara í bænum Bútsja í Úkraínu eru meðal þess sem rannsakað er sem stríðsglæpir. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs- dóttir, þingkona Viðreisnar 8 Fréttir 16. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.