Fréttablaðið - 16.04.2022, Side 14
14 Íþróttir 16. apríl 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 16. apríl 2022 LAUGARDAGUR
Simon Sadler, eigandi enska knattspyrnufélagsins Blackpool,
bættist í ört stækkandi hóp Íslandsvina þegar hann keypti
hlut í Íslandsbanka fyrir rúmar 300 milljónir króna. Sadler sest
í hóp með stórum stjörnum sem elska land og þjóð. Á hinni
hliðinni á peningnum má finna óvini lands og þjóðar, en þeir
eiga sameiginlegt að hafa sært þjóðarstoltið.
benediktboas@frettabladid.is
Vinir okkar
og óvinir
Patrick Mahomes
Leikstjórnandinn Patrick Mahomes eyddi sumrinu
hér á landi þegar Kansas City Chiefs afhentu honum
lyklana að sóknarleik liðsins. Kærasta hans var þá
að spila hér á landi. Síðan hefur hann unnið NFL og
skrifað undir stærsta samning í sögu deildarinnar.
Phil Foden
Foden gerði allt vitlaust meðan á dvöl hans hér á
landi stóð í verkefni enska landsliðsins, en hann
og hrottinn Mason Greenwood smygluðu tveimur
yngismeyjum upp á hótel til sín þar sem þau áttu
ástarfund. Atvikið varð að heimsfrétt enda brutu
þeir félagar sóttvarnir í miðju Covid-ástandi heims-
ins. Foden og Greenwood voru sendir með skottið á
milli lappanna heim til Englands.
David Moyes
Moyes fjölskyldan hefur verið kölluð Íslandsvinir
númer eitt. Sir David Moyes hélt upp á áttræðisaf-
mælið sitt hér á landi árið 2016 og komu þá synir
hans í partíið. Meðal annars David litli Moyes sem
nú stýrir West Ham. Sá var hér á landi í nokkra
mánuði 1978 og sló Daily Mail því upp árið 2013 að
dvölin í Vestmannaeyjum hefði gert Moyes litla að
manni.
David Beckham
Vinátta Beckhams og Björgólfs Thors hefur orsakað
að Beckham er hér reglulegur gestur og veiðir fisk.
Kappinn birti myndir og myndbönd af sér á samfélags-
miðlum þar sem hann var að veiða í Haffjarðará og
fékk sér örlítinn sundsprett. Beckham virtist líða vel
hér á landi því hann er yfirleitt ekki svo opinn á sínum
samfélagsmiðlum þegar kemur að heimsóknum.
Santiago Ponzinibbio
UFC-bardagakappinn Santiago Ponzinibbio er ekki
hátt skrifaður hjá íslensku þjóðinni eftir að hafa
beitt óþverrabrögðum til að leggja Gunnar Nelson.
Ponzinibbio potaði ítrekað í augu Gunnars meðan á
bardaganum stóð og tapaði Gunnar eftir rothögg í 1.
lotu.
Cristiano Ronaldo
Stærsta íþróttastjarna heims, Cristiano Ronaldo, varð
ekkert voðalega vinsæll eftir leik Íslands á EM árið
2016. Hann neitaði að skipta á treyju við Aron Einar
Gunnarsson og vandaði okkar mönnum ekki kveðjurn-
ar eftir leik. „Ísland reyndi ekkert. Það var bara vörn,
vörn, vörn og skyndisóknir. Þeir fengu færi og skoruðu
eitt mark,“ sagði Ronaldo eftir leikinn sem fór 1-1.
Danir
Frændur okkar hafa farið illa með okkar stolt að
undanförnu. Sérstaklega handboltastoltið. Fyrst var
það Ulrik Wilbek sem bolaði Gumma Gumm burt úr
landsliðsþjálfarastólnum með baktjaldamakki svo
eftir var tekið. Svo var það núverandi landsliðsþjálfari
Nikolaj Jacobsen núna á EM, en Jakobsen sagði fyrir
leik: „Ég skulda Íslandi ekki neitt,“ og kaus að hvíla
lykilmenn – sem kom svo í bakið á honum og Danir
fóru heim.
Viktor Kortsnoj
Ótrúleg hegðun hans við skákborðið 1988 gerði
íslensku þjóðina hoppandi reiða en Kortsnoj blés
sígarettureyk framan í Jóhann Hjartarson í einvígi
í Kanada. Þjóðin, sem þá var skákóð, fokreiddist.
Jóhann hafði unnið hug og hjörtu landsmanna með
rólegu fasi sínu en Kortsnoj stimplaði sig inn sem
óvin þjóðarinnar. Jóhann vann sigur í einvíginu, 4½-
3½ eftir bráðabana við mikinn fögnuð Íslendinga.
n Vinir n Óvinir