Fréttablaðið - 16.04.2022, Page 21
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 16. apríl 2022
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is
Kara Arngrímsdóttir fór að taka eftir auknu hárlosi og ákvað að prófa Smoother skin & hair frá Eylíf. Hún segir að virknin hafi komið sér á óvart.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hárið fór að vaxa og húðin silkimjúk
Þegar Kara Arngrímsdóttir danskennari fann fyrir auknu hárlosi var henni bent á að prófa
Smoother skin & hair frá Eylíf. Eftir nokkra mánuði fann hún að hárið hafði þykknað og
húðin var orðin silkimjúk. Hún segist varla hafa trúað þessum góða árangri. 2
Það gæti bjargað tegundinni að
hefja söfnun á sæði kóalabjarna og
frysta það til framtíðarnota.
jme@frettabladid.is
Vísindamenn í University of New-
castle í New South Wales í Ástralíu
hafa stungið upp á forvitnilegum
möguleika til þess að koma í veg
fyrir útdauða pokadýra í álfunni.
Lagt er til að safna sáðfrumum frá
lifandi pokadýrum sem mætti nota
í framtíðinni til að koma í veg fyrir
útdauða tegunda og til að tryggja
erfðafræðilega fjölbreytni þeirra.
Björgun kóalabjarna
Í þessu samhengi hafa gróðureldar
orðið þúsundum kóalabjarna að
bana, en kóalabirnir eru spendýr af
pokadýraflokki.
Samkvæmt doktor Ryan Witt er
þetta hagkvæm leið til að koma í
veg fyrir innræktun í framtíðinni
og vega upp á móti síminnkandi
arfstofni tegundarinnar. „Eins og
er … höfum við enga stjórnarstefnu
gegn náttúruvá eins og gróðureld-
unum sem geisuðu 2019-2020 og
náðu næstum að útrýma stórum
hluta dýrategunda í álfunni,“ segir
hann. „Ef kóalabjarnarstofninn
deyr er engin leið að endurlífga
hann og tryggja genamengi þeirra.“
Nú þegar hefur bæst við
stofninn með því að hjálpa til við
sæðingu kóalabjarna með fersku
eða kældu sæði. „Með því að frysta
sæði má endurinnleiða erfðafræði-
legan fjölbreytileika í villta kóala-
bjarnarstofna án þess að þurfa að
flytja dýrin,“ segir doktor Lachlan
Howell. „Um gervalla Ástralíu eru
að minnsta kosti sextán sjúkrahús
fyrir villt dýr og dýragarðar sem
gætu nýst til þess að safna kóala-
bjarnarsæði,“ bætir hann við. n
Frosið sæði