Fréttablaðið - 16.04.2022, Side 27
hagvangur.is
hagvangur.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfshlutfall er 100%. Vakin er athygli á
stefnu Sveitarfélagsins Árborgar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá sveitarfélaginu og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Umsóknarfrestur er til 26. apríl 2022. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá, auk
kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Hjartarson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, thorsteinnhj@arborg.is eða í síma 480-1900 og Yrsa Guðrún
Þorvaldsdóttir hjá Hagvangi, yrsa@hagvangur.is.
Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Árborgar auglýsir lausa til umsóknar
stöðu skólastjóra Vallaskóla á Selfossi. Við leitum að öflugum og
farsælum leiðtoga til að stýra framsæknum skóla í ört stækkandi
sveitarfélagi. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2022 eða eftir nánara
samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Veita skólanum faglega forystu
• Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs í Árborg
• Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri skólans
• Samstarf við fjölskyldusvið og ýmsa aðila skólasamfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun er skilyrði
• Leyfisbréf grunnskólakennara og kennslureynsla á grunnskólastigi er
skilyrði
• Þekking og árangursrík reynsla af rekstri og stjórnun er skilyrði
• Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er
æskileg
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í samstarfi og
mannlegum samskiptum
Skólastjóri Vallaskóla
Í Vallaskóla eru um 630 nemendur í 1.-10. bekk
og innan hans er starfrækt fjölmenningardeild.
Í skólanum er m.a. lögð áhersla á fjölbreytta
kennsluhætti, grænfánaverkefni, teymiskennslu
og rafrænt nám. Á unglingastigi er mikið unnið í
smiðjum. Nánari upplýsingar um Vallaskóla má
finna á vef skólans www.vallaskoli.is
Góð samvinna starfsfólks, nemenda, foreldra og
annarra samstarfsaðila skólans er lykill að árangri.
Einkunnarorð skólans eru virðing, þekking og
lífsgleði. Skólar og fjölskyldusvið sveitarfélagsins
vinna að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu
við börn, foreldra og skóla. Áhersla er lögð á
snemmtækan stuðning, öflug tengsl skóla og
skólastiga og skólaþróunarverkefni sem unnin eru
í anda lærdómssamfélagsins.
Sótt er um starfið
á hagvangur.is