Fréttablaðið - 16.04.2022, Page 42

Fréttablaðið - 16.04.2022, Page 42
Matgæðingurinn Sigríður Björk Bragadóttir er í mat- reiðslubókaklúbbi sem hefur gefið henni mikið, svo mikið að henni hefur fundist bókin lifna við eftir hafa smakkað réttina sem hún og með- limir klúbbsins hafa eldað og prófað þær uppskriftir úr bókum sem hafa heillað. sjofn@frettabladid.is Sigríður er matreiðslumeistari og annar eigenda Salt eldhúss, er alla jafna kölluð Sirrý, lifir og hrærist í matarheiminum og er ávallt til í að bæta við sig fróðleik og þekk- ingu á matarmenningu. Sirrý segir að klúbburinn hafi orðið til eftir spjall um mat. „Hugmyndin að þessum mat- reiðslubókaklúbbi kom þannig til að Shruthi Basapa er mikil matar- vinkona mín en hún hefur kennt indverska matargerð hjá okkur í mörg ár. Hún hefur mikla ástríðu fyrir mat og er mjög fróð um allt sem viðkemur matargerð. Fyrir nokkrum árum vorum við á spjalli, um mat eins og vanalega, og þá kemur þessi hugmynd upp og hún dreif í að koma þessu áfram. Fyrst var þetta bara lítill hópur en hann fer ört stækkandi því þetta er svo gaman. Við höfum hist sex sinnum á ári en Covid hefur samt sett strik í reikninginn síðustu tvö ár en nú er vonandi bjart fram undan.“ Nafnið á klúbbnum er Reykjavík cookbook club. „Við erum eitthvað um 42 skráð í klúbbinn en stund- um er fólk að detta út af ýmsum ástæðum og nýir að bætast við. Fólkið kemur úr öllum áttum, bæði Íslendingar og fólk sem er kannski fætt annars staðar en búsett hér á landi. Mér finnst það svo skemmti- legt því bakgrunnur fólks er svo litríkur og úr svo ólíkum áttum og svo margt að læra af því. Þetta eru allt áhugamanneskjur í matargerð og mikil ástríða í gangi.“ Víkkar sjóndeildarhringinn „Við veljum næstu matreiðslubók í lok hvers klúbbs og ef tími vinnst til höfum við hist á kaffihúsi og spjallað um bókina og veljum hvað við viljum elda hvert fyrir sig. Stundum þarf að lána bækur á milli eða finna út úr hvort einhver í nærumhverfi getur lánað eða fengið bókina á bókasafni. Oft fara þessar pælingar fram á netinu en skemmtilegast er að hittast. Venjulega þegar maður skoðar matreiðslubók heillast maður af einhverjum uppskriftum og langar að elda þær en það er svo misjafnt hvað heillar fólk og það skemmti- lega við þetta er að fólk kynnist uppskriftum og smakkar mat sem það hefði ekki sjálft valið og kemst þannig betur inn í bókina og kynnist henni á annan hátt. Þetta virkilega víkkar sjóndeildar- hringinn.“ Mikil upplifun Sirrý segir að það sé mikil upplifun að prófa uppskriftirnar í bók- unum. „Bækurnar sem við höfum eldað úr eru orðnar margar og allar jafn frábærar því bókin lifnar við þegar maður smakkar kannski 20-30 rétti úr hverri bók og það er alveg rosalega gaman að kynnast þeim þannig. Nefna má Silver Spoon, ítölsku matarbiblíuna, sem var mjög gaman að kynnast á þennan hátt því það eru fáar myndir í henni og stundum erfitt að sjá fyrir sér réttina, hún er til þýdd á íslensku og heitir Silfurskeiðin. Síðan eru það Thai cooking eftir Leela Puny- aratabandhu og Asian grill eftir sama höfund, báðar frábærar og þá fyrrnefndu ættu allir að eiga sem hafa áhuga á taílenskri matargerð. Unforgettable eftir Paula Wolfert er eftirminnileg og líka Plenti eftir Ottolengi. Við höfum síðan hist í minni hópum til dæmis að sumri til ef fólk er ekki á ferðalögum og langar að gera eitthvað skemmtilegt og þá ekki endilega verið með bók heldur kannski bara eldað eitthvað frá heimalandinu,“ segir hún. Meðlimir klúbbsins skiptast á að bjóða heim og hlutverkum er skipt bróðurlega. „Við höfum skipst á að vera gestgjafar og þegar við hitt- umst í heimahúsi er fólk gjarnan búið að elda fyrir fram eins og hægt er til að allt gangi upp, eða jafnvel koma með tilbúinn réttinn ef hægt er. Flestir gera einn til tvo rétti, fer eftir því hversu flóknir þeir eru. Ef fólk hefur ekki tíma en vill hittast má alveg koma með brauð eða vín, það er alltaf vel þegið. Við höfum nokkrum sinnum hist í Salt eldhúsi, þar er svo mikið pláss og í þeim tilfellum eldum við á staðnum að mestu leyti.“ Veisla og þjálfun fyrir bragðlaukana Aðspurð segir Sirrý að til séu fyrirmyndir að svona klúbbum á netinu og alls konar regluverk sem því tengist. „Þar er að finna góð ráð eins og ef pláss er lítið er hugmynd að koma með sem mest eldað fyrir fram og jafnvel disk, hnífapör og servíettu hver fyrir sig og taka það með heim svo gestgjafinn þurfi ekki að vaska upp leirtau eftir alla og alltaf er ráð að taka box með undir afgangana. Það er gefandi að hitta aðra með sama áhugamál og ekki síst að smakka alla réttina úr bókinni sem við tökum fyrir, sannarlega veisla og þjálfun fyrir bragðlaukana, ég mæli virkilega með matreiðslubókaklúbbi.“ Sirrý býður lesendum hér upp á einn af þeim réttum sem þau elduðu úr Silfurskeiðinni og henni fannst mjög góður. „Nú er aspas- tími í Evrópu og hentar því vel,“ segir Sirrý að lokum. Crepes agli asparagi - Pönnu- kökur með aspas og osti 800 g ferskur aspas 50 g smjör 12 pönnukökur 1 ½ dl rjómi 50 g parmaostur, rifinn fínt Skerið 1-2 cm neðan af aspasinum, það er oft trénaður neðsti partur af honum. Sjóðið aspasinn í salt- vatni í 15 mínútur, takið hann upp úr og þerrið. Bræðið helminginn af smjörinu á pönnu og steikið aspasinn í 5 mínútur. Hitið ofninn í 200°C. Smyrjið form með smjöri. Penslið hverja pönnuköku með rjóma og stráið parmaosti yfir, setjið 2-3 aspasstilka á hverja köku og rúllið henni upp. Raðið upprúll- uðum kökunum í formið. Hellið afgangi af rjóma og parmaosti ofan á kökurnar og afganginum af smjörinu í litlum klípum. Bakið þetta í 10 mínútur eða þar til gullið og girnilegt. Pönnukökurnar 100 g hveiti 2 egg örlítið salt 2 ½ dl mjólk 25 g smjör Olía á pönnuna Setjið hveiti, egg, salt og 4 msk. af mjólkinni í skál og hrærið saman. Bætið restinni af mjólkinni út í smám saman og hrærið kekkja- laust deig. Bræðið smjör og blandið saman við. Látið deigið standa við stofuhita í eina klukkustund. Hitið pönnu og berið olíu á hana. Bakið pönnukökur á báðum hliðum, þið eigið að fá 12 kökur úr upp- skriftinni.n Bókin lifnar við þegar þú smakkar réttina Sirrý mælir með því að áhugamanneskjur í matargerð séu í matreiðslubókaklúbbi. Það víkki sjóndeildarhringinn og fólk prófi alls konar rétti sem það hefði ekki annars prófað. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Guðdómlegar þessar girni- legu pönnu- kökur fylltar með aspas og osti, hreinlega bráðna í munni. Þær eiga vel við í páskabrönsinn eða á sumar- daginn fyrsta. Hátún 6b, 105 Reykjavík / Sími 519 3223 / www.hudin.is Langar þig að fríska upp á húðina? Kristals- og demantshúðslípun fjarlægir dauðar húðfrumur og örvar endurnýjun ysta lags húðarinnar. Meðferðin virkar vel á þurra húð og gefur aukinn ljóma. Einnig virkar hún á fínar línur, óhreina húð og bólur. APRÍLTILBOÐ 15% afsláttur af húðslípun Verið velkomin! Tryggðu þér tilboðið með því að bóka tíma á www.hudin.is eða síma 519-3223 6 kynningarblað A L LT 16. apríl 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.