Ægir

Årgang

Ægir - 2021, Side 31

Ægir - 2021, Side 31
31 norsk-íslensku síldina á haustin, síðan á íslensku síldina og eftir áramótin tekur loðnan við og loks kolmunni fram á vor- ið. Guðmundir segir að þó loðnuvertíðin í vetur hafi verið lítil þá hafi hún gefið mjög vel af sér og afurðaverð sé í hæstu hæðum. Með meiri kvóta sé líklegt að verðin lækki eitthvað. „Nú fáum við loðnuvertíð, hún kemur núna. Það hefur sést svo mikið af ókyn- þroska loðnu að það verður vertíð í vet- ur. Fyrstu tillögur Hafró gefa til kynna 400.000 tonna kvóta en svo kemur þetta betur í ljós eftir leiðangur nú í septem- ber,“ segir Guðmundur. Rúm 40 ár á sjónum „Ég var 14 eða 15 ára þegar ég fór fyrst á sjó og hef því verið á sjó í meira en 40 ár. Ég byrjaði á færum á bát frá Bolung- arvík eitt sumar. Þá var það þannig að það var talinn sá fiskur sem hver og einn dró og borgað eftir því. Ég fór svo eitt sumar á Guðmundi Péturs á útilegu á línu með beitningarvél um borð. Þetta var annað skipið á Íslandi til að taka beitningarvél um borð. Bergþór KE var held ég fyrstur til þess. Við fórum þá al- veg yfir til Grænlands en gátum ekki verið með eins marga króka og bátarnir eru með nú. Svo byrjaði ég á togurunum 1976, fyrst á Heiðrúnu í Bolungarvík. Þar var ég alveg þar til ég fór í Stýrimannaskól- ann 1979 í Vestmannaeyjum. Svo fór ég á Sléttanesið á Þingeyri árið 1983, fyrst sem annar stýrimaður. Ég fór svo fyrsta túrinn minn sem skipstjóri á því skipi. Ég kom síðan til Samherja árið 1986 og fór á Margréti sem stýrimaður og skipstjóri á rækju. Það var skemmtilegur tími því Samherji hefur alltaf verið í fararbroddi og þarna komu ný troll og fleira til sög- unnar. Svo fór ég á Hjalteyrina 1991 eða 1992 og var með hana sem skipstjóri í tvö til þrjú ár og svo á Baldvin Þor- steinsson, sem stýrimaður og skipstjóri. Árið 2001 fór ég svo á Vilhelm, tók svo Baldvin í tvö ár, fór aftur á Vilhelm, síð- an á Margréti og loks yfir á Vilhelm, sem kom nýr í ár.“ Ákveðinn sjarmi yfir þessu öllu Er einhver veiðiskapur skemmtilegri en annar? „Það er ákveðinn sjarmi yfir þessu öllu. Mér fannst aldrei leiðinlegt á togurunum þegar við vorum í úthafinu og þessu öllu saman. Uppsjávarveiðin er vissulega skemmtileg, bæði nótin og flottrollið. Það er búið að gera margt og ég held að Samherji hafi alla tíð verið í fararbroddi í nýjungum. Ég stend með mínum mönnum og er sannfærður um að sjávarútvegurinn á Íslandi væri ekki kominn svona langt ef Þorsteins Más hefði ekki notið við. Hann hefur breytt miklu til góðs fyrir sjávarútveginn. Þetta eru búin að vera nokkuð mis- munandi skip og veiðiskapur. Allt hafa þetta verið góð skip. Togarinn Baldvin Þorsteinsson var mjög gott skip. Eldri Vilhelm var einnig meiriháttar skip og sá nýi er hreinlega algjört draumaskip. Hann er „Rollsinn“ í þessu. Það er alla- vega ekki hægt að kenna græjunum um ef maður fiskar ekki. Samherji gerir allt af stórhug og þeir vilja alltaf vera með það besta hvort sem er á sjó eða í landi,“ segir Guðmundur. Hafa ekki hundsvit á sjávarútvegi Guðmundur er ekki sáttur við hvernig umræðan um sjávarútveginn er á Ísland og hugmyndir um að gjörbylta kerfinu með innköllun veiðileyfa og uppboðum. „Mín skoðun er sú að þetta fólk sem hæst lætur hafi ekki hundsvit á sjávar- útvegi. Markmið Sósíalistaflokksins er til dæmis bara að ganga af Samherja dauð- um, tæta hann í sundur. Hverju á það að skila? Ég skil það ekki. Auðvitað má laga og bæta kerfið en hvernig halda menn að uppboðsleiðin fari. Það hefur reyndar enginn lýst því hvernig hún eigi að virka. Ætli það hefðu orðið margir sem hefðu boðið í veiðiheimildir í makríl í sumar? Það getur verið að einhverjum takist að breyta kvótakerfinu með inn- köllun heimilda en það verður ekki hægt að hirða skipin af útgerðinni. Svo talar Samfylkingin um að rukka útgerðina um meira, sérstaklega þessa 15 til 20 stærstu. Hvernig í ósköpunum ætla þeir að gera þetta? Þeir vita það ekki sjálfir. Og svo er bara talað um þorsk. Kannski heldur fólk að þorskur sé eina tegundin sem við veiðum. Ég hafði nú einu sinni trú á Þorgerði Katrínu sem stjórnmálamanni, en það er ekki lengur. Það er ótrúlegt eins og hún talar í dag, að hún hafi getað verið sjávarútvegs- ráðherra. Svo er Daði Már Kristófersson, sem skrifaði skýrslu fyrir nokkrum árum um nauðsyn og ágæti kvótakerfisins kominn í Viðreisn og allt sem hann segir um sjávarútveginn nú, stangast á við skýrsluna hans. Svo reynir þetta fólk að fá almenning til að trúa að því að með hækkun veiðigjalda sé hægt að gera alla hluti og öllum muni líða betur. Fólk virðist ekki vilja sjá hvað sjávar- útvegurinn er að gera fyrir það. Sam- herji hefur fjárfest fyrir um 15 milljarða í Vilhelm Þorsteinssyni og frystihúsinu á Dalvík. Stór hlutur búnaðar og tækni í bæði skipi og vinnslu var framleiddur hér á landi og skapar mörg störf fyrir utan þau sem útgerðin og vinnsla gera. Sjávarútvegur skilar miklu meiru til samfélagsins í heild en flestir gera sér grein fyrir. Það verður aldrei vitræn umræða um sjávarútveginn fyrr en fólk fæst til að skilja hve miklu vel rekinn sjávarútvegur skilar þjóðarbúinu,“ segir Guðmundur.  Vilhelm Þorsteinsson er eitt glæsilegasta skip íslenska flotans. Skipstjórinn segir að hann sé „Rollsinn“ af þeim skipum sem hann hefur verið með.  Makríllinn hefur verið erfiður viðfangs í sumar og mest af honum hefur verið sótt út í Síldarsmuguna.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.