Ægir - 2021, Síða 31
31
norsk-íslensku síldina á haustin, síðan á
íslensku síldina og eftir áramótin tekur
loðnan við og loks kolmunni fram á vor-
ið. Guðmundir segir að þó loðnuvertíðin
í vetur hafi verið lítil þá hafi hún gefið
mjög vel af sér og afurðaverð sé í hæstu
hæðum. Með meiri kvóta sé líklegt að
verðin lækki eitthvað.
„Nú fáum við loðnuvertíð, hún kemur
núna. Það hefur sést svo mikið af ókyn-
þroska loðnu að það verður vertíð í vet-
ur. Fyrstu tillögur Hafró gefa til kynna
400.000 tonna kvóta en svo kemur þetta
betur í ljós eftir leiðangur nú í septem-
ber,“ segir Guðmundur.
Rúm 40 ár á sjónum
„Ég var 14 eða 15 ára þegar ég fór fyrst
á sjó og hef því verið á sjó í meira en 40
ár. Ég byrjaði á færum á bát frá Bolung-
arvík eitt sumar. Þá var það þannig að
það var talinn sá fiskur sem hver og
einn dró og borgað eftir því. Ég fór svo
eitt sumar á Guðmundi Péturs á útilegu
á línu með beitningarvél um borð. Þetta
var annað skipið á Íslandi til að taka
beitningarvél um borð. Bergþór KE var
held ég fyrstur til þess. Við fórum þá al-
veg yfir til Grænlands en gátum ekki
verið með eins marga króka og bátarnir
eru með nú.
Svo byrjaði ég á togurunum 1976,
fyrst á Heiðrúnu í Bolungarvík. Þar var
ég alveg þar til ég fór í Stýrimannaskól-
ann 1979 í Vestmannaeyjum. Svo fór ég á
Sléttanesið á Þingeyri árið 1983, fyrst
sem annar stýrimaður. Ég fór svo fyrsta
túrinn minn sem skipstjóri á því skipi. Ég
kom síðan til Samherja árið 1986 og fór á
Margréti sem stýrimaður og skipstjóri á
rækju. Það var skemmtilegur tími því
Samherji hefur alltaf verið í fararbroddi
og þarna komu ný troll og fleira til sög-
unnar. Svo fór ég á Hjalteyrina 1991 eða
1992 og var með hana sem skipstjóri í
tvö til þrjú ár og svo á Baldvin Þor-
steinsson, sem stýrimaður og skipstjóri.
Árið 2001 fór ég svo á Vilhelm, tók svo
Baldvin í tvö ár, fór aftur á Vilhelm, síð-
an á Margréti og loks yfir á Vilhelm, sem
kom nýr í ár.“
Ákveðinn sjarmi yfir þessu öllu
Er einhver veiðiskapur skemmtilegri en
annar? „Það er ákveðinn sjarmi yfir
þessu öllu. Mér fannst aldrei leiðinlegt á
togurunum þegar við vorum í úthafinu
og þessu öllu saman. Uppsjávarveiðin er
vissulega skemmtileg, bæði nótin og
flottrollið. Það er búið að gera margt og
ég held að Samherji hafi alla tíð verið í
fararbroddi í nýjungum. Ég stend með
mínum mönnum og er sannfærður um að
sjávarútvegurinn á Íslandi væri ekki
kominn svona langt ef Þorsteins Más
hefði ekki notið við. Hann hefur breytt
miklu til góðs fyrir sjávarútveginn.
Þetta eru búin að vera nokkuð mis-
munandi skip og veiðiskapur. Allt hafa
þetta verið góð skip. Togarinn Baldvin
Þorsteinsson var mjög gott skip. Eldri
Vilhelm var einnig meiriháttar skip og
sá nýi er hreinlega algjört draumaskip.
Hann er „Rollsinn“ í þessu. Það er alla-
vega ekki hægt að kenna græjunum um
ef maður fiskar ekki. Samherji gerir allt
af stórhug og þeir vilja alltaf vera með
það besta hvort sem er á sjó eða í landi,“
segir Guðmundur.
Hafa ekki hundsvit á sjávarútvegi
Guðmundur er ekki sáttur við hvernig
umræðan um sjávarútveginn er á Ísland
og hugmyndir um að gjörbylta kerfinu
með innköllun veiðileyfa og uppboðum.
„Mín skoðun er sú að þetta fólk sem
hæst lætur hafi ekki hundsvit á sjávar-
útvegi. Markmið Sósíalistaflokksins er til
dæmis bara að ganga af Samherja dauð-
um, tæta hann í sundur. Hverju á það að
skila? Ég skil það ekki. Auðvitað má laga
og bæta kerfið en hvernig halda menn
að uppboðsleiðin fari. Það hefur reyndar
enginn lýst því hvernig hún eigi að
virka. Ætli það hefðu orðið margir sem
hefðu boðið í veiðiheimildir í makríl í
sumar? Það getur verið að einhverjum
takist að breyta kvótakerfinu með inn-
köllun heimilda en það verður ekki hægt
að hirða skipin af útgerðinni.
Svo talar Samfylkingin um að rukka
útgerðina um meira, sérstaklega þessa
15 til 20 stærstu. Hvernig í ósköpunum
ætla þeir að gera þetta? Þeir vita það
ekki sjálfir. Og svo er bara talað um
þorsk. Kannski heldur fólk að þorskur sé
eina tegundin sem við veiðum. Ég hafði
nú einu sinni trú á Þorgerði Katrínu sem
stjórnmálamanni, en það er ekki lengur.
Það er ótrúlegt eins og hún talar í dag,
að hún hafi getað verið sjávarútvegs-
ráðherra. Svo er Daði Már Kristófersson,
sem skrifaði skýrslu fyrir nokkrum árum
um nauðsyn og ágæti kvótakerfisins
kominn í Viðreisn og allt sem hann segir
um sjávarútveginn nú, stangast á við
skýrsluna hans. Svo reynir þetta fólk að
fá almenning til að trúa að því að með
hækkun veiðigjalda sé hægt að gera alla
hluti og öllum muni líða betur.
Fólk virðist ekki vilja sjá hvað sjávar-
útvegurinn er að gera fyrir það. Sam-
herji hefur fjárfest fyrir um 15 milljarða
í Vilhelm Þorsteinssyni og frystihúsinu á
Dalvík. Stór hlutur búnaðar og tækni í
bæði skipi og vinnslu var framleiddur
hér á landi og skapar mörg störf fyrir
utan þau sem útgerðin og vinnsla gera.
Sjávarútvegur skilar miklu meiru til
samfélagsins í heild en flestir gera sér
grein fyrir. Það verður aldrei vitræn
umræða um sjávarútveginn fyrr en fólk
fæst til að skilja hve miklu vel rekinn
sjávarútvegur skilar þjóðarbúinu,“ segir
Guðmundur.
Vilhelm Þorsteinsson er eitt glæsilegasta skip íslenska flotans. Skipstjórinn
segir að hann sé „Rollsinn“ af þeim skipum sem hann hefur verið með.
Makríllinn hefur verið erfiður
viðfangs í sumar og mest af honum
hefur verið sótt út í Síldarsmuguna.