Ægir - 2021, Qupperneq 36
„Það er mikið í gangi hjá okkur og má
þar meðal annars nefna 500 milljóna
króna framkvæmd við enn frekari
rafvæðingu hafnarinnar. Við erum að
setja upp nýjar tengingar á báða
hafnarbakkana og fáum ríflega eitt
megavatt til viðbótar á hvorn bakka.
Við erum nýbúnir að gera samning
við fyrirtæki í Noregi um kaup á bún-
aði fyrir straumbreyti og riðabreyti í
færanlegum gámalausnum. Við sjáum
þá fyrir okkur að geta tengt allt að
tvö skip á hvorum bakka. Við erum
þar í samvinnu við franskt fyrirtæki
sem siglir hingað með farþegaskip og
munum líklega byrja á að tengja þau
strax næsta sumar,“ segir Lúðvík
Geirsson, hafnarstjóri Hafnarfjarðar.
Mun stærri smábátahöfn
í farvatninu
„Það sem annars hefur verið stærsta
málið hjá okkur síðustu tvö ár eru tölu-
verðar skipulagsbreytingar sem er fyrir-
hugaðar í suðurhöfninni á nýja hafnar-
svæðinu. Nú er búið að samþykkja
rammaskipulag og verið að vinna í aðal-
og deiliskipulagi fyrir breytingu á svæð-
inu við Flensborgarhöfn og ofan við
Fornubúðir þar sem fiskmarkaðshúsið
stóð. Þar er annars vegar um að ræða
umbyltingu í smábátahöfninni og nýja
smábátahöfn, sem mun teygja sig alveg
út undir Fjörukrá og tengjast miðbæjar-
svæðinu betur. Þar er verið að horfa á
rými fyrir 80- 100 smábáta og skútur.
Það er mikil aðsókn í þessa hafnarað-
stöðu fyrir minni báta, enda er svæðið
mjög skjólgott en við erum búin að
sprengja af okkur allt það rými sem við
höfum í dag,“ segir Lúðvík.
Framtíðarsetur Tækniskólans?
Fyrir ofan hafnarsvæðið er verið að
þróa á gömlum hafnarlóðum nýtt íbúða-
svæði og til viðbótar segir Lúðvík standa
yfir viðræður milli Hafnarfjarðarbæjar,
Tækniskólans og stjórnvalda um framtíð-
araðsetur fyrir skólann á hluta af hafn-
arsvæðinu ofan við hafnarbakkann, þar
sem fiskmarkaðurinn stóð áður og að-
eins suður og vestur úr.
„Á sama tíma er hins vegar þunginn í
starfseminni dálítið að færast út svæðið
nær Hvaleyri. Þar er í raun og veru búið
að úthluta öllum lóðum. Trefjar hafa ver-
ið að stækka við sig og eru að bæta við
nýju húsi og Víking Sómabátar eru að
koma á nýja lóð þar líka. Við erum líka að
fá aðstöðu við hafnarbakkann þar sem
Löndun og þeir sem reka þá starfsemi
eru að fara byggja upp útibú frá Fisk-
markaði Norðurlands og ísframleiðslu og
auka þjónustu við landanir. Það er að
styrkjast starfsemin á hafnarsvæðinu á
sama tíma að það er að byggjast upp
svæði í kringum okkur með íbúðabyggð
og almannaþjónustu. Þetta er að verða
svolítið bland í poka,“ segir Lúðvík.
Hafnarfjarðarhöfn eykur
raftengingarmöguleika
Stækkun smábátahafnarinnar er eitt af forgangsmálum Hafnarfjarðarhafnar.
Hafnaþjónusta
Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri Hafnar-
fjarðar, segir miklar breytingar framundan
og meðal annars verði íbúðabyggð á
svæðinu.
36