Fréttablaðið - 04.05.2022, Qupperneq 11
Þetta er í fullkomnu
samræmi við þá stefnu
sem við höfum mark-
að um eflingu atvinnu-
lífs í Stykkishólmi.
Jakob Björgvin
Jakobsson,
bæjarstjóri
Stykkishólms-
bæjar
MARKAÐURINNFRÉTTABLAÐIÐMIÐVIKUDAGUR 4. maí 2022
Fyrirtækið Asco Harvester
mun hefja þörungavinnslu
í Stykkishólmi innan árs.
Vinnslan skapar 15-20 ný
störf á svæðinu. Bæjarstjóri
Stykkishólmsbæjar fagnar
áformunum og segir Breiða-
fjörð hentugan fyrir sjálf-
bæra auðlindanýtingu af
þessu tagi.
ggunnars@frettabladid.is
Stykkishólmsbær hefur úthlutað
fyrirtækinu Asco Harvester lóð
við hafnarsvæðið þar sem fram-
kvæmdir við 800 fermetra húsnæði
munu hefjast á næstu vikum. Sig-
urður Pétursson, stjórnarformaður
Asco Harvester, segir fyrirtækið
stefna að 200 tonna framleiðslu
á afurðum úr klóþangi innan árs.
Gert er ráð fyrir 15-20 starfsmönn-
um við vinnsluna en þar með verð-
ur Þörungavinnsla Asco Harvester
einn af fjölmennari vinnustöðum í
Stykkishólmi.
Að sögn Sigurðar er með þessu
verið að ganga í þá matarkistu sem
Breiðafjörður er. „Við höfum lesið
um þessa auðlindanýtingu í sögu-
bókum en einhverra hluta vegna
hefur þessi planta ekki verið nýtt
í sama mæli og áður fyrr. Það eru
ótrúlega miklir möguleikar í þess-
um geira hér á landi. Þess vegna
erum að við að ráðast í þessa upp-
byggingu og fjárfestingu.“
Sigurður líkir nýtingunni við að
slá gras. „Slátturinn hjálpar plönt-
unni að vaxa og dafna. Hún þarf
jafn mikið á okkur að halda og við
á henni.“
Aco Harvester stóð fyrir f jöl-
mennum íbúafundi í Stykkishólmi
í síðustu viku. Sigurður, sem hefur
langa reynslu af svipuðum verk-
efnum víða um land, segir við-
brögð heimamanna mjög jákvæð.
„Það skiptir fólk auðvitað máli að
við erum ekki að tala um einhver
framtíðaráform, heldur erum við
þegar komin af stað.“ Sérstakur
þurrkari vinnslunnar er væntan-
legur til landsins frá Austurríki í
Óplægður akur skapar störf í Stykkishólmi
Sigurður Péturs-
son, stjórnar-
formaður Asco
Harvester,
ásamt systkin-
unum Ingvari,
Ómari og Önnu
Ólöfu sem eru á
meðal eigenda
fyrirtækisins.
MYND/AÐSEND
Linda Fanney Valgeirsdóttir er
framkvæmdastjóri nýsköpunar-
fyrirtækisins Alor. Hún fór í 100
fjallgöngur á síðasta ári og þykir
fátt betra en að hefja daginn á fjall-
göngu eða hlaupatúr.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Ég elska að ganga á fjöll með fjöl-
skyldunni minni, besta gönguhópn-
um „Árangur áfram, ekkert stopp“
og öðrum góðum vinum. Á síðasta
ári fór ég í 100 fjallgöngur og hélt
utan um það myndbandsdagbók,
eina sekúndu úr hverri göngu. Ég
leyfi mér að fullyrða að það jafnast
ekkert á við gott spjall og hláturs-
köst í fersku fjallalofti. Svo syng ég
með 70 vinkonum mínum í Kvenna-
kórnum Kötlu sem er kvenbætandi
félagsskapur og mikil orkugjöf í
hverri viku.
Hvernig er morgunrútínan þín?
Á bestu dögunum, sem þó eru
færri en hinir, lauma ég mér út í
fjallgöngu eða í hlaupatúr á meðan
fólkið mitt sefur enn. Svo kem ég
heim og fer langleiðina með að
ganga fram af fjölskyldunni með
ofurjákvæðni og gleði í morgun-
sárið. Á klassískum morgni klukkan
7.30 fer vel smurt tannhjól af stað
hjá okkur hjónum við að koma
litlum konum á fætur, undirbúa
nesti og halda uppi almennri gleði.
Þegar þeim línudansi er lokið fæ ég
mér Cheerios og fer sjálf af stað í
vinnuna eða sest við eldhúsborðið
og byrja vinnudaginn.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á þig?
Sú sem kemur fyrst upp í hug-
ann er bókin Eyland eftir Sigríði
Hagalín. Í bókinni hefur Ísland
algjörlega einangrast frá umheim-
inum. Smátt og smátt hverfa rétt-
indin og siðmenningin og gagn-
rýnin hugsun er barin niður. Það
er svo margt í þessari bók sem sat
eftir hjá mér og var mér hugleikið á
Covid-tímum.
Hver hafa verið mest krefjandi
verkefnin á undanförnum miss-
erum?
Ég tók við starfi framkvæmda-
stýru Alor í nóvember með góða og
fjölbreytta reynslu á bakinu en þar
sem ég hef ekki byggt upp nýsköp-
unarfyrirtæki áður tóku við mörg
krefjandi verkefni. Ég steig í raun
inn í nýjan heim sem ég þekkti ekki
og upplifði óöryggi á meðan ég var
að fóta mig. Ég sá að eina leiðin til
þess að yfirstíga þessa áskorun væri
að læra mjög hratt. Það gerði ég með
því að sanka að mér dýrmætum
fróðleik frá reyndum frumkvöðlum,
fjárfestum og ráðgjöfum. Það hefur
fleytt mér ótrúlega langt á stuttum
tíma og er ég þessum aðilum ævin-
lega þakklát fyrir ómetanlega
aðstoð.
Ef þú þyrftir að velja annan starfs-
frama, hvað yrði fyrir valinu?
Ef ég þyrfti að skipta myndi ég
velja að vinna við textavinnslu á
auglýsingastofu með Braga Valdi-
mar. Ég hef löngum séð það starf í
hillingum og með honum held ég
að hugarflugsfundirnir séu gríðar-
lega skemmtilegir og skapandi. Við
myndum fara í gott f læði og enda
á lausnum sem enginn héldi vatni
yfir!
Hver er þín uppáhaldsborg?
Ég fór núna síðast til Madríd í
fyrsta sinn og féll fyrir þeirri borg.
Fegurðin er einstök og svo er skipu-
lag borgarinnar afar skemmtilegt.
Þrátt fyrir að hafa fengið stóra
skrúfu í pitsunni minni á einum
veitingastaðnum þá þykir mér samt
mjög vænt um þessa borg og hlakka
til að fara þangað aftur. ■
Fór í hundrað fjallgöngur á síðasta ári og stundar hlaup
Linda Fanney
segir að hennar
uppáhaldsborg
sé Madrid.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Nám: Lögfræði við Háskóla Íslands.
Störf: Síðast starfaði ég sem stað-
gengill skrifstofustjóra í atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu
en þar á undan í velferðarráðu-
neytinu, hjá ADVEL lögmönnum, á
lögfræðisviði Arion banka og hjá
Rauða krossinum.
Fjölskylduhagir: Gift Jóhannesi
Birni Arelakis og við eigum saman
tvo meistara, Karólínu Bríeti 10 ára
og Steinunni Diljá 7 ára.
■ Svipmynd
Linda Fanney
Valgeirsdóttir
næstu viku. Þurrkarinn er útbúinn
sérstakri stýringu og er hannaður
til að skila góðri orkunýtingu. Hrá-
efnið verður þurrkað við lágan hita
til að viðhalda bestu mögulegum
gæðum. Framkvæmdir við hús-
næði fyrirtækisins hefjast svo strax
á sumarmánuðum.
Jakob Björgvin Jakobsson, bæjar-
stjóri Stykkishólmsbæjar, segir
vinnslu sem þessa renna styrkari
stoðum undir fjölbreytt atvinnu-
líf á svæðinu. „Það sem er mest um
vert er að þetta er í fullkomnu sam-
ræmi við þá stefnu sem við höfum
markað um ef lingu atvinnulífs í
Stykkishólmi.“
Jakob segist þess fullviss að
verkefni Asco Harvester sé ein-
ungis byrjunin. Fleiri fyrirtæki
hafi viðrað áhuga á að fara út í
svipaða starfsemi í tengslum við
auðlindanýtingu á svæðinu. Hann
segir Breiðafjörð hafa upp á svo
margt að bjóða. „Þörungavinnsla er
aðeins einn hlekkur í þeirri keðju.
Það er heilmikið í pípunum. Það
má í raun líkja þessu við óplægðan
akur – í bókstaf legri merkingu,“
segir Jakob. ■