Fréttablaðið - 04.05.2022, Síða 26
njall@frettabladid.is
GasGas-merkið frá Spáni hefur
hingað til verið þekkt fyrir tor-
færuhjól en færir nú út kvíarnar
með tveimur nýjum götuhjólum.
Merkið er nú komið í eigu KTM og
því þarf ekki að koma á óvart að
hjólin byggja á grunni KTM 690
SMC R-hjólsins. Nýju hjólin kallast
ES 700 og SM 700 og nota eins
strokks 692 rúmsentimetra vélina
frá KTM. Hjólin skila 74 hestöflum
en geta líka komið í A2-útgáfu með
47 hestafla hámarksafli. GasGas
SM 700 er meira götuhjól með 48
mm WP-fjöðrun að framan og
stillanlegri afturfjöðrun. Gírkass-
inn er sex gíra og bensíntankurinn
13,5 lítrar en hjólin eru auðþekkj-
anleg á hárauðum lit sínum.
GasGas-merkið hefur verið
áberandi í mótorsporti að undan-
förnu en Sam Sunderland landaði
sigri í Dakar rallinu í ár á GasGas-
hjóli. Einnig hefur GasGas keppt í
Moto3- og Moto2-heimsmeistara-
keppninni með góðum árangri og
uppi er orðrómur um að GasGas
komi einnig með lið í MotoGP-
heimsmeistarakeppnina. ■
GasGas frumsýnir
fyrsta götuhjólið
Hárrauð GasGas 700-götuhjólin eru
auðþekkjanleg en þau verður einnig
hægt að fá í A2-útgáfum.
njall@frettabladid.is
Harley-Davidson hefur frum-
sýnt nýtt mótorhjól sem byggir á
grunni Sportster-hjólsins og kall-
ast Nightster. Hjólið verður með
nýrri vél sem kallast Revolution
Max 975T sem er vatnskæld með
60° V2 mótor. Vélin er 89 hestöfl og
skilar 95 Nm togi að hámarki. Afl-
kúrfa hjólsins mun vera flöt upp
allt snúningssviðið og hjólið með
gott upptak. Um öflugra hjól en
Sportster er að ræða en um leið er
hjólið hugsað sem ódýrari leið að
merkinu en stóru Harley-Davidson
hjólin.
Vélin hefur fengið meiri titrings-
vörn þótt enn þá sé haldið í nógu
mikinn titring til að hjólið sé
lifandi, eins og Harley-Davidson
segir í fréttatilkynningu um hjólið.
Meðal tæknibúnaðar hjólsins er
ABS-hemlalæsivörn, spólvörn
og sérstök skrikvörn fyrir niður-
gírun. Þrjár akstursstillingar eru í
hjólinu, Road, Sport og Rain. Mæla-
borðið er með fjögurra tommu
margmiðlunarskjá og öll ljós þess
eru díóðuljós. ■
Harley-Davidson
frumsýnir
Nightster
Hjólið er með nýrri og öflugri V2-vél
sem skilar 89 hestöflum.
njall@frettabladid.is
Shoei-hjálmaframleiðandinn er
að koma með nýjan tilraunahjálm
sem verður með skjá sem kastar
mynd upp á glerið á hjálminum.
Hjálmurinn kallast Opticson og
notar sömu tækni og notast er við í
bílum. Það er þó ekki eins einfalt og
í bílum að koma með svona tækni
því skermurinn er sífellt á hreyf-
ingu og mjög nálægt notandanum.
Hugmyndin er að senda einföld
skilaboð til ökumannsins svo að
hann þurfi ekki að taka augun af
veginum á meðan, en það eru atriði
eins og hraði, í hvaða gír hjólið er
og svo framvegis. Möguleiki er að
við sjáum fullkomnari útgáfur í
keppnum þar sem fleiri skilaboð
þurfa að ná til ökumannsins, en
Shoei sér til dæmis Marc Marq-
uez, Toprak Razgatlioglu og John
McGuinness fyrir hjálmum. ■
Shoei-hjálmur með skjá á skerminum
Hjálmurinn
kallast Optic-
son og kastar
mikilvægum
upplýsingum á
skerminn.
522 4600
www.krokur.net
Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða
þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum
viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
Taktu Krók á leiðarenda
Vesturhraun 5 210 Garðabær
á þinni leið
12 BÍ L A BL A ÐI Ð 4. maí 2022 MIÐVIKUDAGUR