Bændablaðið - 28.04.2022, Síða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202212
Skrifað hefur verið undir samning
um uppbyggingu nýs íbúðahverfis,
Ölduhverfis, í landi Kropps í
Eyjafjarðarsveit. Nýja hverfið
verður hluti af þéttbýliskjarnanum
við Hrafnagil, en þar er að finna
alla helstu þjónustu sveitar
félagsins, s.s. leik og grunn skóla,
sundlaug, íþróttahús og skrifstofu
Eyjafjarðarsveitar. Byggð ar
verða 200 nýjar íbúðir í hverfinu.
Til viðbótar verður íbúðum í
Hrafnagilshverfi fjölgað verulega.
Finnur Yngvi Kristinsson,
sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit, segir
að Ölduhverfi verði mikilvæg viðbót
við þá uppbyggingu sem átt hefur sér
stað í Hrafnagilshverfi og rími vel við
þá stefnu sveitarfélagsins að byggt
sé upp í og við þann þéttbýliskjarna.
Þegar framkvæmdum í Ölduhverfi
lýkur auk þeirra svæða annarra
í Hrafnagilshverfi er búist við að
í allt verði um 400 íbúðir í boði í
þéttbýliskjarnanum og íbúar í allt um
900 talsins. Nú eru þar fyrir um 80
íbúðir en fyrir liggur að fjöldinn mun
tvöfaldast með nýju deiliskipulagi
sem er í auglýsingu.
Sveitarfélagið er sjálft að
hefja viðamikla uppbyggingu í
innviðum sínum með byggingu á
nýjum leikskóla og metnaðarfullum
endurbótum á Hrafnagilsskóla,
bókasafni sveitarfélagsins og
íþróttaaðstöðu fyrir almenning.
Mikilvægt sé að sjá fram í tímann
hvernig byggð þróist en Ölduhverfi
sé stór partur af því.
Um 500 íbúar í fullbyggðu hverfi
Finnur Yngvi segir að Ölduhverfi
muni auka breidd þeirra búsetukosta
sem í boði eru í sveitarfélaginu „en
íbúðirnar virðast vera fjölbreyttar
og henta mjög vel, hvort sem er
fyrir þá sem eru að byrja að búa,
fjölskyldufólk eða eldri íbúa
sveitarfélagsins,“ segir hann. Í
fullbúnu hverfi verða um 200 íbúðir.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir
við Ölduhverfi hefjist síðari hluta
þessa árs. Uppbyggingin verður
í einkaframkvæmd, þar er átt
við uppbyggingu og lagningu
innviða, s.s. gatna- og stígagerð og
fráveitukerfi. Að þeirri uppbyggingu
lokinni mun Eyjafjarðarsveit taka
við og eignast opin svæði, lóðir,
götur, gangstíga og aðra þá innviði
sem tilheyra rekstri sveitarfélaga og
annast viðhald þeirra til frambúðar.
Hverfið er umlukið skógi
Í nýja hverfinu er gert ráð fyrir
lágri byggð eins til tveggja hæða
húsa, einbýlis-, par- og raðhúsum
ásamt litlum sex til átta íbúða
fjölbýlishúsa. Byggðin mun falla
vel að landslaginu og landhalli á
svæðinu verður nýttur til að allar
íbúðir hverfisins njóti mikils útsýnis.
Góð aðstaða verður í hverfinu
fyrir þá sem kjósa rólegt og fallegt
umhverfi og njóta um leið góðrar
aðstöðu til útivistar. Hverfið er
að mestu umlukið skógi, en á
undanförnum árum hefur verið
staðið fyrir umfangsmikilli
skógrækt á svæðinu á rúmlega 100
hektara svæði. Stórt opið svæði
er í miðju hverfinu sem einnig
tengist fjölbreyttum skógarstígum
og vinsælum hjóla- og göngustíg
milli Akureyrar og Hrafnagils.
/MÞÞ
FRÉTTIR
Landbúnaðarnefnd Sveitar félagsins
Skagafjarðar fagnar þeim áformum
HS Orku, Fóður blöndunnar og
Kaupfélags Skagfirðinga að kanna
hag kvæmni þess að reisa innlenda
áburðar verksmiðju.
„Slík verksmiðja gæti
aukið sjálfbærni innlendrar
matvælaframleiðslu og samtímis
skapað öruggari skilyrði til
fóðuröflunar í landbúnaði. Óheyrilegar
hækkanir á innfluttum áburði gera enn
augljósari nauðsyn þess að framleiða
sem mest af innlendum áburði,
lífrænum sem ólífrænum,“ segir í
bókun landbúnaðar nefndar. /MÞÞ
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Byggðin mun falla vel að landslaginu og landhalli á svæðinu nýttur til að allar íbúðir hverfisins njóti mikils útsýnis.
Mikil uppbygging fram undan í Eyjafjarðarsveit:
Framkvæmdir við nýtt Ölduhverfi
í landi Kropps hefjast í sumar
– Íbúðum í Hrafnagilshverfi verður fjölgað um helming
Um 200 íbúðir verða byggðar í Ölduhverfi og má gera ráð fyrir að íbúarnir
verði um 500 í allt þegar hverfið verður fullbyggt.
Finnur Yngvi Kristinsson, sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit, og Viðar Helgason,
talsmaður Ölduhverfis, undirrita samning um uppbyggingu Ölduhverfis í
landi Kropps skammt norðan við Hrafnagil í Eyjafjarðarsveit.
Landbúnaðarnefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar:
Fagna áformum um
áburðarverksmiðju
Hörgársveit:
Styrkir varmadæluvæðingu
vegna húshitunar
Forsvarsmenn Hörgársveitar
höfðu frumkvæði að því að fá
ráðgjafa til að skoða varma
dæluvæðingu í sveitar félaginu.
Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
segir að varmadæluvæðing sé meðal
annars til komin vegna þess að ekki
sýndist hagkvæmt að leggja hitaveitu
á öll svæði sveitarfélagsins. Alls
eru 19 íbúar að skoða þann kost
að setja upp varmadælu í híbýlum
sínum, en sveitarfélagið veitir styrki
til verksins.
„Varmadælur eru nú orðnar mjög
hagstæður kostur í rekstri húshitunar,
þannig að um hagkvæman kost ætti
að vera að ræða til framtíðar til að
losna við kostnaðarsama rafhitun,
enda er gert ráð fyrir í nýjum reglum
að niðurgreiðslur haldi áfram,“ segir
Snorri. Í framhaldi af heimsókn
ráðgjafa í sveitarfélagið sem
skoðaði kosti varmadæluvæðingar
þar var ákveðið að Hörgársveit
myndi veita fjárstyrk til þeirra
fasteignaeigenda í sveitarfélaginu
sem taka inn slíka dælu og draga þar
með úr notkun raforku til upphitunar
íbúðarhúsnæðis.
Snorri segir að miðað sé við að
föst búseta og lögheimilisskráning
sé í íbúðarhúsnæðinu og að það sé
á svæði þar sem dreifikerfi hitaveitu
nær ekki til. Á nokkrum svæðum
innan sveitarfélagsins háttar svo til
að því verði ekki við komið að nýta
hitaveitu, ýmist tæknilega eða með
hagkvæmum fjárhagslegum hætti.
Kostnaður við kaup og upp-
setningu varmadæla er að meðaltali
um 2,3 milljónir króna á hverjum
stað. Ráðgjafarþjónusta kostar 300
þúsund krónur að auki þannig að
upphæðin nemur um 2,6 milljónum
króna fyrir hvern þann sem tekur
inn varmadælu. Orkustofnun hefur
gefið út að hún styrki verkefnið um
1,0 milljón, Hörgársveit ætlar að
styrkja verkefnið um 600 þúsund
krónur, þ.e. sveitarfélagið mun greiða
ráðgjafarþjónustuna og veita 300
þúsund krónur að auki í styrk vegna
kaupa á varmadælunni. Má því áætla
að kostnaður fasteignaeigenda verði
nálægt einni milljón króna.
Snorri segir að þessi upphæð
sé svipuð og ef viðkomandi
fasteignaeigandi þyrfti að greiða fyrir
heimtaugagjöld vegna hitaveitu, ekki
síst þar sem fjarlægðir yrðu miklar
frá stofnæð hitaveitunnar. /MÞÞ
Borgardalur.