Bændablaðið - 28.04.2022, Qupperneq 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202234
LÍF&STARF
Lyfjafræðingurinn og sinneps
framleiðandinn Svava Hrönn
Guðmundsdóttir er nýr formaður
Samtaka smáframleiðenda
matvæla. Hún framleiðir undir
vörumerkinu SVAVA sinnep og
hefur verið viðloðandi samtökin
frá því að undirbúningsvinna að
stofnun þeirra hófst um haustið
2019 og varaformaður frá stofnun
þeirra í nóvember sama ár.
„Ég tel stöðu og horfur fyrir
samtökin mjög góðar. Þau hafa náð
miklum árangri á þeim rúmu tveimur
árum sem þau hafa starfað og haft
jákvæð áhrif á orðræðuna og þá mynd
sem fólk hefur af smáframleiðendum.
Félagsmönnum hefur fjölgað jafnt
og þétt og eru nú að nálgast 200.
Þetta er því orðinn stór, öflugur og
fjölbreyttur hópur sem mark er tekið
á. Tæpur helmingur er á lögbýlum,
um fjórðungur á höfuðborgarsvæðinu
og tæpur þriðjugur í bæjarfélögum
utan höfuðborgarsvæðisins,“ segir
Svava, spurð um hvernig framtíðin
blasi við henni.
Gott gengi á stuttum tíma
Hún segir að samtökin hafi notið
velgengni þennan stutta starfstíma
– í raun framar vonum. „Á þessum
stutta tíma höfum við náð að
auka samstarf og samtakamátt
smáframleiðenda matvæla um land
allt. Við höfum fengið styrki og
gert samstarfssamninga í fjölbreytt
verkefni. Við höfum stundað öfluga
hagsmunagæslu, skrifað margar
umsagnir og stuðlað að breytingum
á regluverki og má þar helst nefna
útgáfu reglugerðar um svokallaða
heimaslátrun eða örslátrun.
Þá höfum við þróað nýjar
söluleiðir með matvörukeðjunum,
eins og Matarbúrið í Krónunni
og Heimabyggð Nettó og
Kjörbúðanna og stuðlað að því að
vörur félagsmanna séu teknar inn í
vöruval verslana. Við höfum samið
um betri kjör við þá aðila sem
smáframleiðendur matvæla eiga
gjarnan viðskipti við og gerðum
sem dæmi tímamótasamning
við Eimskip/Flytjanda í fyrra.
Einnig höfum við unnið að því
að auka þekkingu félagsmanna
með því að halda örnámskeið
og stóðum að Matsjánni ásamt
landshlutasamtökum sveitarfélaga
sem var 14 vikna námskeið fyrir
félagsmenn, styrkt af Matvælasjóði
en RATA sá um verkefnisstjórn.
Eins höfum við þróað verkfæri eins
og skapalón fyrir gæðahandbók og
fleira til að styðja félagsmenn.“
Góð samskipti við félagsmenn
Oddný Anna Björnsdóttir hefur verið
framkvæmdastjóri samtakanna frá
stofnun og segir Svava að félagsmenn
geti leitað til hennar hvenær sem er,
ef þá vanti ráðgjöf eða stuðning.
„Samtökin beita sér fyrir þeirra
hönd ef við á. Allt kapp er lagt á að
miðla gagnlegum upplýsingum til
félagsmanna í gegnum póstlistann
okkar og lokaða Facebook-hópinn
sem margir aðilar hafa nýtt sér sem
þurfa að ná til þeirra.
Svo leggjum við okkur fram um
að deila því sem félagsmenn eru að
gera, bæði með félagsmönnum og
neytendum og skrifum greinar og
komum fram í fjölmiðlum til að koma
hagsmunamálum okkar félagsmanna
á framfæri.
Þann 7.–8. apríl stóðu samtökin og
landshlutasamtökin að vel heppnaðri
uppskeruhátíð og matarmarkaði
á Hótel Laugarbakka í tilefni
loka Matsjárinnar. Það var mikið
fagnaðarefni því þetta er í fyrsta sinn
sem við höfum getað skipulagt slíkan
viðburð vegna Covid.“
Einföldun regluverksins
Smáframleiðendur matvæla
hafa gjarnan látið í sér heyra
vegna þess að lög og reglur í
kringum matvælaframleiðslu og
-eftirlit virðist ekki gera ráð fyrir
þeim sveigjanleika sem slíkir
framleiðendur þurfa stundum á að
halda til nýsköpunar og þróunar. „Já,
einföldun regluverks er eitt af okkar
helstu áherslumálum,“ segir Svava,
spurð um hvort smáframleiðendur
berjist enn að einhverju leyti við
regluverkið.
„Við fórum þess á leit við
matvælaráðherra á fundi okkar
með honum í febrúar síðastliðnum
að ráðuneytið fjármagni gerð
skýrslu með tillögum að einföldun
regluverks á sviði matvæla sem við
myndum vilja verkstýra.
Í nýlegri umsögn okkar um áherslur
og verklag matvælaráðuneytisins
við stefnumótun á sviði matvæla
lögðum við áherslu á að regluverk
hamli ekki framþróun og nýsköpun
og að í EES-löggjöfinni sé lögð
áhersla á sveigjanleika og meðalhóf
gagnvart smáframleiðendum. Við
hvöttum ráðuneytið til að sjá til
þess að rafrænt eftirlit verði notað
á markvissan hátt, enda geti það
sparað mikinn tíma og kostnað.
Eins að þeir sem munu vinna eftir
reglugerðunum og leiðbeiningunum
sem þeim oft fylgja komi að því
að semja þær eins og var gert í
örsláturhúsamálinu svokallaða, sem
gafst vel.“
Úrskurðarhópur um álitamál
Svava segir að þau telji að ákjósanlegt
fyrirkomulag, vegna álitamála um
eftirlitsmál sem kunna að rísa,
væri þannig að þeir framleiðendur
sem væru ósammála túlkun
eftirlitsmanns ættu að hafa tök á að
leita til úrskurðarhóps ráðuneytisins.
„Um eins konar áfrýjunarnefnd
væri að ræða, sérfræðingahópur
sem væri ótengdur eftirlitsaðilum.
Við lögðum jafnframt áherslu á
að eftirlitskerfið yrði einfaldað
og samræmt, en í dag er eftirlitið
bæði í höndum ríkisstofnana og
heilbrigðisnefnda sveitarfélaga á
tíu heilbrigðiseftirlitssvæðum.
Við teljum afar mikilvægt að
eftirlitsaðilar annarra svæða geti
ekki gert athugasemdir beint við
framleiðendur eða viðskiptavini
þeirra sem þegar eru komnir með
leyfi frá eftirlitsaðila á sínu svæði.
Heldur verði að taka þær upp á
vettvangi heilbrigðiseftirlitsins.
Í dag er kerfið sett þannig upp að
framleiðandi sem kominn er með
leyfi getur lent í því að eftirlitsaðilar
á hinum níu svæðunum geri ólíkar
athugasemdir og jafnvel aðrir
eftirlitsmenn innan sama svæðis.
Í umsögninni hvöttum við meðal
annars til þess að regluverkið í
kringum skelfisk- og þörungarækt
verði endurskoðað sem í dag eru
í raun „lög um bann við slíkri
ræktun“ – eins og formaður Samtaka
atvinnulífsins kallaði það í fréttum
árið 2012.
Síðan þá hefur staðan einungis
versnað og erfitt að nálgast innlendar
afurðir vegna þessa „banns“.
Fjölgun félagsmanna
Svava segir að fyrir utan áherslurnar
á breytingar á regluverkinu, fari
starfsorkan næstu misserin í að
halda áfram að vinna að því að
styrkja og efla félagið með fjölgun
félagsmanna. „Þá á ég til dæmis
við aukaaðila sem eru þeir sem eru
ekki smáframleiðendur sjálfir en
styðja markmið samtakanna. Eins
að umkringja okkur öflugu fólki
með þekkingu og reynslu á sviði
samtakanna í gegnum ráðgjafaráðið
okkar og helstu samstarfsaðila.
Við munum halda áfram að sækja
um styrki í mikilvæg verkefni og
sinna þeim verkefnum sem eru
viðvarandi og ég sagði frá áðan.
Við höfum lagt til við ráðherra að
í stjórn Matvælasjóðs sitji einnig
fulltrúi matvælaframleiðenda frá
SSFM og/eða Samtökum iðnaðarins,
en í dag sitja þar eingöngu fulltrúar
Bændasamtaka Íslands og SFS. Við
lögðum einnig til við ráðherra að
hann geri samning við samtökin um
eflingu smáframleiðslu matvæla sem
við teljum að geti skipt verulegum
sköpum fyrir þróun smáframleiðslu
matvæla hér á landi. Við erum
samstarfsaðilar Matís í verkefni
sem er styrkt af Matvælasjóði og
gengur út á að búa til forrit sem gerir
smáframleiðendum kleift að reikna
út næringargildi, bæta hráefnum í
ÍSGEM gagnagrunninn og útbúa
vefbók með leiðbeiningum.
Við erum einnig að vinna að
samstarfssamningi við Samtök
sveitarfélaga á Suðurlandi um
matvælaverkefni á Suður landi sem
verður ýtt úr vör á næstunni.
Við hlökkum til Landbúnaðar-
sýningarinnar í haust en þar munum
við vera með stóran bás ásamt
félögum okkar í Beint frá býli þar
sem hátt í fimmtíu félagsmenn munu
geta kynnt vörur sínar yfir helgina.
Matarbúrið í Krónunni mun halda
áfram og við erum að þróa áfram
Heimabyggð með Samkaup. Við
munum halda áfram að semja um
betri kjör fyrir okkar félagsmenn
og finna leiðir til að auka þeirra
þekkingu og færni.“
Sýnilegri og aðgengilegri vörur
Á síðustu misserum hafa vörur
smáframleiðenda matvæla orðið
sýnilegri og aðgengilegri í stór-
mörkuðum landsins. „Samstarfs-
verkefni eins og Matar búrið í
Krónunni og Heimabyggð Samkaupa
hafa aukið áhuga landsmanna á
vörunum og stuðlað að því að fleiri
verslanir hafa lyft þeim upp, hver
á sinn hátt. Neytendur sýna þeim
einnig sífellt meiri áhuga, bæði með
því að kaupa beint af framleiðendum,
til dæmis beint frá býli, og leita eftir
slíkum vörum í verslunum sem
sérhæfa sig í að selja slíkar vörur
eins og Me&Mu, eða vekja sérstaka
athygli á þeim eins og Krónan,
Samkaup, Hagkaup, Fjarðarkaup
og fleiri hafa gert,“ segir Svava
að lokum.
Með henni í nýkjörinni stjórn
eru varaformaðurinn Þröstur Heiðar
Erlingsson, frá Birkihlíð Kjötvinnsla,
gjaldkerinn Auður B. Ólafsdóttir
frá Pönnukökuvagninum, ritarinn
Einar Iceman frá Aldingróðri og
meðstjórnandinn Hrefna Valdemars-
dóttir frá Fiskvinnslunni Hrefnu. /smh
Oddný Anna Björnsdóttir framkvæmdastjóri og Svava Hrönn Guðmundsdóttir, nýr formaður Samtaka smáframleiðenda matvæla, á stofnfundi samtakanna.
Mynd / smh
Sinnep sem Svava framleiðir undir vörumerkinu SVAVA sinnep. Mynd / Aðsend
Svava Hrönn Guðmundsdóttir er nýr formaður Samtaka smáframleiðenda matvæla:
Vörurnar orðnar sýnilegri og aðgengilegri neytendum
– Samtökin hafa á tveimur árum náð góðum árangri í hagsmunabaráttu sinni en berjast enn fyrir einfaldara regluverki