Bændablaðið - 28.04.2022, Síða 35

Bændablaðið - 28.04.2022, Síða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 2022 35 Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflaði ekki að mér að hennar biði sérstakt hlutverk annað en að vera aldarspegill og skemmtilestur. Það er nefnilega farið að lesa úr bókinni ásamt úr viðbótarsögunni Í fótspor afa míns á hjúkrunarheimilum. Líffæri okkar endast misjafn- lega, þar með talið heilabúið. Annað getur svo bara verið í ágætu lagi. Einhvern veginn æxlaðist svo til að iðjuþjálfar fóru að lesa úr fyrrnefndum bókum fyrir fólk með heilabilun. Og margt af því virkaði sem var í bókunum og áheyrendur kveiktu á ýmsum vinnubrögðum og fyrirbærum sem tíðkast hafði í ungdæmi þeirra, svona um miðja síðustu öld eða ögn fyrr. Afi minn, sem þessar bækur eru kenndar við, var nefnilega nítjándu aldar maður, fæddur 1881. Foreldrar mínir voru frekar gamlir þegar ég fæddist, að minnsta kosti í samanburði við nútímann, mamma fædd 1913 og pabbi svo snemma sem 1910 og hann var því 35 ára þegar ég sá fyrst dagsins ljós suður á Landspítala. Satt að segja hélt ég að þetta væri eitthvert bríarí með lestur úr bókum mínum fyrir heilabilaða en svo fylgdi þessu alvöruþungi. Suður í Hafnarfirði hafði verið lesið fyrir heimilisfólk úr Húsi afa míns en skyndilega hvarf bókin og þótti horfa til vandræða. Verkið löngu uppselt en fannst eintak vestur á fjörðum og bukkaði maður upp á einn daginn hér á Bakkaveginum og bað oss um að árita bókina. Hún skyldi fara til systur hans, forstöðukonu/manns fyrir því sama hjúkrunarheimili þaðan sem bókin hvarf. Svona var nú þetta. Ég lét ekki þar við sitja og lét prenta lítið upplag af fyrrnefndum tveimur bókum suður í Hafnarfirði og hafði með mér vestur í aftursætinu nú fyrir páskana. Þær eru til sölu og er Finnbogi þessi kostnaðarmaður eins og þetta hét í gamla daga. Auðvitað er það ánægjulegt að verk manns öðlist það nýja hlutverk að vera hjálpargagn fyrir sjúka og sorgmædda, svo maður sletti aðeins biblíumáli. En læt hér nótt sem nemur og gleðilegt sumar. Finnbogi Hermannsson EIGUM TIL VÉLAR Á LAGER 90hp 26hp og 16hp Solis 90 verð: 5.695.000+vsk 6.970.000+vsk með tækjum og skóflu www.vallarbraut.is vallarbraut@vallarbraut.is S-4540050 16 hp 1.250.000+vsk www.vallarbraut.is vallarbraut@vallarbraut.is S-4540050 Þeir sem panta vél fyrir 1 mai fá fría rúllugreip í kaupbæti 26 hp frá 1.860.000+vsk Eigum mikið úrval fylgihluta til á lager: Sturtuvagna, plóga, sláttuvélar, tætlur, ámoksturstæki, o.fl.o.fl KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is ALLAR STÆRÐIR AF CAT RAFSTÖÐVUM Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika. Stöðvar í gám Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.lci.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 ZETOR VARAHLUTIR BÆKUR& MENNING Í húsi afa míns í endunýjun lífdaganna: Lesning fyrir heilabilaða Finnborgi Hermannsson.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.