Bændablaðið - 28.04.2022, Side 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202238
LÍF&STARF
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÝRISENDAR
gerðir dráttarvéla
Teikningar af algengum vandamálum sem koma upp við sauðburð, ásamt
einföldum leiðbeiningum. Bændablaðið hefur birt þessa samantekt Hákons
Hanssonar og Þorsteins Ólafssonar undafarin ár.
Fyrstu lömbin á þessu vori hafa
nú litið dagsins ljós og þótt
langflestar ær beri hjálparlaust
er góð burðarhjálp lykilatriði í
sauðburði.
Fyrir tveimur árum síðan
var opnuð YouTube-rásin
„Leiðbeiningarefni um burðarhjálp“,
ætluð byrjendum, lengra komnum
og þaulreyndum bændum. Í fyrravor
bættust við myndbönd á ensku og
þýsku – og enn hefur verið bætt við
myndbandasafnið sem hefur fengið
góðar viðtökur bænda.
Það voru þau Karólína
Elísabetardóttir í Hvammshlíð og
Axel Kárason dýralæknir sem fóru
af stað með verkefnið árið 2019.
„Við höfum nú bætt aðeins við ensku
myndböndin, en þessi myndbönd á
ensku og þýsku eru sérstaklega gerð
fyrir erlent aðstoðarfólk sem kemur
að sauðburði,“ segir Karólína.
Reynsla er eitt
en góð leiðbeining annað
„Reynsla er eitt, en góð leiðbeining
til að læra er annað. Myndbönd
henta einstaklega vel til þess – því er
gott að minna á Youtube-rásina. Við
höfum gert myndbönd um svo gott
sem öll hugsanleg burðarvandamál
og uppákomur á sauðburði, alls
eru 23 í dag á íslensku, fimmtán
myndbönd í boði á þýsku og níu
á ensku.
Upptökur á fleiri en tíu sauð-
fjárbúum og svo sýnikennsla
með lambalíkön og mjaðmagrind
í raunstærð útskýra hvað er að
gerast og hvað á að hafa í huga.
Ekki síst er hægt að finna út
hvað er að – skref fyrir skref –
með svokölluðu ákvarðanatré
bæði á íslensku og og þýsku.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
styrkti verkefnið ásamt fjölmörgum
landbúnaðartengdum fyrirtækjum,“
segir Karólína.
Ákvörðunartré
Myndböndin byggjast upp á
ákvörðunartré, þar sem hægt er
að finna út hvert vandamálið er í
skrefum. Grunnur myndbandanna
eru upptökur sem Karólína gerði
á nokkrum sauðfjárbúum, aðallega
Grænumýri, Halldórsstöðum, Stafni,
Steinnesi og Sölvabakka. Axel
notar lambalíkön og mjaðmagrind
í raunstærð til að útskýra hvað er
að gerast inni í kindinni.
/smh
Yfirlit yfir allar slóðir
Youtube-rásin (íslenska, enska, þýska – smella á „Vídeóin“ til að sjá öll):
www.tinyurl.com/burdarhjalp
Ákvarðanatréð og listi yfir öll myndböndin á íslensku:
www.tinyurl.com/saudburdarhjalp
Ákvarðanatréð og listi yfir öll myndböndin á þýsku:
www.tinyurl.com/schaf-geburtshilfe
Mynd / Karólína
Aftur á bak.
Stórt lamb.
Myndefni óskast um sérstaka aðferð
Ef hornin eru það stór að maður kemur haus ekki fram fyrir grind með fætur í
burðarliðnum, er hægt að binda band í báða fætur (svo það hrökkvi ekki fram
af!) en samt þannig að það skaði ekki fætur, ýta fótum varlega inn og niður fyrir
svo að höfuð fái allt plássið, kippa höfði fram fyrir grind og svo varlega smeygja
fótum meðfram og tosa það þannig út. Þórdís Halldórsdóttir benti á þessa
aðferð sem þónokkrir bændur nota en er lítið talað um. Karólínu og Axel vantar
myndefni af raunverulegri uppákomu af þessu tagi til að dreifa þekkingu um
þessa aðferð víðar. Best að senda Karólínu skilaboð á Facebook.
Myndbönd um burðarhjálp í áframhaldandi þróun:
Hafa fengið mjög góðar
viðtökur hjá bændum