Bændablaðið - 28.04.2022, Qupperneq 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202242
Nú þegar vorverk hjá flestum
bændum landsins eru í fullum
gangi er ekki úr vegi að beina
spjótum sínum að olíunotkuninni,
sérstaklega í ljósi þess að verð á
olíu er í hæstu hæðum. Þessi staða
er ekki einstök fyrir Ísland heldur
er hún svona um allan heim og
danskir ráðunautar hafa verið
afar duglegir að deila til bænda
hentugum ráðum til þess að draga
úr olíunotkuninni eins og unnt er.
Hér fer stutt samantekt á þeim
ráðum sem þar er mælt með að
bændur hugi að.
Flestir þekkja hið sterka
samhengi á milli loftþrýstings í
dekkjum og olíunotkunar en Danir
benda á að það séu ýmis önnur ráð
sem einnig draga úr olíunotkun við
hefðbundin vorverk. Þar virðast
venjur leika stórt hlutverk og oft
virðast þarlendir velja dráttarvélar
meira vegna þæginda og vana en
vegna raunverulegra þarfa þeirra
fyrir viðkomandi vél. Allir bændur
ættu t.d. að spyrja sig hver sé
raunveruleg þörf búsins fyrir afl
dráttarvélanna sem á að nota.
Nota réttan loftþrýsting og
snúningshraða
Danskar mælingar sýna að mjög oft
er notaður rangur dekkjaþrýstingur
á dráttarvélum en tilfellið er að
olíunotkunin getur minnkað um
allt að 18% með því að lækka
loftþrýstinginn og ná þannig betra
gripi við vinnslu. Þetta er í raun
öfugt við það sem talað er um
þegar bifreiðar eru annars vegar
en þar eykst orkuþörfin með
minni loftþrýstingi.
Þetta veldur oft misskilningi,
en skýringin felst í því að gott grip
dekkja, í samræmi við þá vinnslu
sem unnið er við, skiptir gríðarlegu
máli. Þannig sýna danskar tölur t.d.
að við það að lækka þrýstinginn úr
1,6 börum niður í 0,8-1,0 bör má
spara um 10% af hráolíunni.
Enn fremur sýna erlendar tölur að
ná má þónokkurri afkastaaukningu
við það að aðlaga loftþrýsting
dekkjanna að því verkefni sem er
verið að vinna við. Enn fremur
skiptir snúningshraðinn mjög
miklu máli og við það að fara úr
1.800 snúningum/mínútu í t.d.
1.600 snúninga/mínútu má minnka
olíunotkunina um 8-12%.
Miða við 40-45 kg/hestöfl
Annað atriði sem benda má á er
áhrif hjólskriks á olíunotkunina.
Þegar vélarnar draga tæki þá
skripla dekkin oft aðeins og þetta
hefur veruleg áhrif á olíunotkunina.
Hér skiptir máli eins og að framan
greinir að velja réttan loftþrýsting
fyrir það verk sem er verið að
vinna við en einnig að vera með
rétta þungadreifingu á fram- og
afturdekkin.
Með réttri þungadreifingu fæst
hámarks nýting á gripi dekkjanna
og er ágæt þumalfingursregla
að miða við að hafa 40-45 kg
vélaþunga á hvert hestafl. Sé vélin
hins vegar mjög létt miðað við
þann hestaflafjölda sem hún er
með þá nýtist aflið ekki nógu vel
út í dekkin.
Para saman rétt tæki
Það eru auðvitað ótal leiðir færar
til þess að draga úr olíunotkun en
ein sú einfaldasta er að fullnýta afl
þeirra dráttarvéla sem er verið að
nota og/eða þeirra tækja sem notuð
eru. Í Danmörku gerist það oft að
bændur nota of stórar vélar fyrir
létt verk eða öfugt, reyna að nýta of
litlar vélar fyrir stærri vinnslutæki
en bæði tilfellin kalla beint á aukna
olíunotkun. Þá benda danskar
mælingar til þess að oft megi draga
verulega úr olíunotkun með því að
stilla vinnslutækin betur, t.d. við
plægingu með því að leggja meiri
þunga á afturhjól dráttarvélarinnar
og með því minnka líkur á hjólskriki.
Nota rétta vélastærð
Annað atriði sem Danir benda á er sú
staðreynd að oft er notuð of aflmikil
dráttarvél miðað við það verkefni sem
unnið er við. Þannig hafa mælingar á
notkun á 300 hestafla vél, sem vel að
merkja er vissulega hraustleg stærð,
þá er oft ekki í raun verið að nota
nema 50-60% getunnar í langflestum
tilfellum. Þessi vannýtta umframgeta
kostar bæði aukna olíunotkun og setur
vissulega einnig spurningarmerki við
fjárfestinguna sem slíka.
Þeir benda þó á að skoða þurfi
vélaútgerðina í heild og í samræmi
við þær þarfir sem viðkomandi bú
er með, en tilfellið er að oft hafa
danskir bændur fjárfest í of mikilli
vinnslugetu miðað við raunkostnað.
Raunverulegur tímasparnaður, við
t.d. aukna vinnslugetu, borgi sig
því ekki endilega upp vegna annars
kostnaðar sem fellur til.
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Haugtankar, flatgryfjur,
steinbitar og ýmislegt
fleira úr forsteyptum
einingum.
Upplýsingar fást hjá Indriða Grétarssyni
455-4627 / 825-4627
indridi.gretarsson@ks.is
Leiðir til að draga úr olíunotkun
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STARTARAR
gerðir dráttarvéla
Dekkjaþrýstingur:
Gættu þess að samræma loftþrýstinginn í dekkjunum til samræmis við þá
þörf sem á við um það verk sem verið er að vinna. Rangur loftþrýstingur
getur kostað þig allt upp í 10% meiri olíunotkun!
Snúningshraði:
Dragðu úr snúningshraða vélarinnar. Nýir mótorar eru í dag þannig
búnir að þeir skila frá sér því sama við nokkuð ólíkan snúningshraða.
Í langflestum tilfellum er hægt að keyra á mun lægri snúningshraða en
oft er valinn við ákveðin verk.
Þyngd:
Gakktu úr skugga um að þú hafir rétta þyngd miðað við afl
dráttarvélarinnar. Dekkjaframleiðandinn Michelin mælir t.d. með því
að til að fá bestu nýtinguna á gripi dekkjanna þá eigi að miða við 40-45
kg á hvert hestafl. Sé þetta þyngdardreifingin færist afl vélarinnar með
mestri virkni niður í undirlagið sem ekið er á.
Stærð:
Íhugaðu stærð dráttarvélarinnar. Ef þörfin fyrir margra hestafla dráttarvél
í aðeins örfáar klukkustundir af heildarþörf búsins, getur verið kostur
að velja minni dráttarvél og aðlaga tækjakostinn að þeirri stöðu. Þetta
myndi auka tímanotkunina dálítið en snarminnka olíuþörfina.
Eiginleikar:
Mundu eftir algengum aðgerðum eins og fjórhjóladrifi,
mismunadrifslæsingu og þyngdarflutningi með lyftubúnaðinum. Þessi
atriði hafa öll bein áhrif á olíunotkunina. Enn fremur er um að gera að
hafa alltaf hugfast að keyra alltaf mögulegu stystu leiðir.
Stillingar:
Sjáðu til þess að stilla vinnslutækin kórrétt s.s. vinnsludýpt. Enn fremur
er afar mikilvægt að stilla vökvakerfi dráttarvélarinnar þannig að það
samræmist þörfum þess tækis sem unnið er með.
Sex leiðir til þess að draga
úr olíunotkuninni
Sparaðu olíuna t.d. með því að nota lágan snúningshraða, réttan dekkjaþrýsting, rétta þyngdardreifingu á dekkin,
s.s. með því að nota réttar þyngingar ef þarf o.s.frv. Mynd / RML.