Bændablaðið - 28.04.2022, Page 48

Bændablaðið - 28.04.2022, Page 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. apríl 202248 MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Bændurnir í Mjósyndi keyptu af Bjarka Reynissyni og Valgerði Gestsdóttur 2020 og fluttu hingað í júlí sama ár. Þau eru að klára að breyta fjósinu í hesthús með inniaðstöðu og kartöflugeymlan er orðin fínasta fjárhús. Býli: Mjósyndi. Staðsett í sveit: Flóahreppi í Árnessýslu. Ábúendur: Grétar Geir Halldórs­ son, Anna Linda Gunnarsdóttir og Katrín Eva Grétarsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við þrjú og sonardóttir okkar Grétars og Önnu, hún Gabríela Máney Gunnarsdóttir, 10 ára. Það eru þrír hundar, Brúnó, Ugla og Rösk ásamt köttunum Tófu og Nölu. Stærð jarðar? Um 130 hektarar. Gerð bús? Hross og fé. Fjöldi búfjár og tegundir? 35 hross og 34 kindur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Grétar og Anna vinna úti frá búinu, Gabríela fer í skólann og Katrín rekur tamningastöð hér á daginn og kennir á kvöldin. Eftir vinnu er fénu sinnt og tekin staðan á útiganginum og þeim gefið eftir þörfum. Á jörðinni eru folaldsmerar, tryppi og stóðhestar, bæði frá okkur og öðrum. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Það eru engin leiðinleg verk í sveitinni en girðingavinna er ekki vinsæl. Skemmtilegustu verkin eru að sinna fénu (Anna), setja upp ljós, helst útiljós (Grétar), útreiðar á góðum hestum (Katrín og Gaby). Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Svipaðan, að það sé rekin tamningastöð og hrossarækt ásamt að hafa nokkrar kindur. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í framleiðslu íslenskra búvara? Vöruþróun og hreinleika. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, ostur og smjör. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Föstudagspitsan. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar fyrstu folöldin og lömbin fæddust hér. Bleikja, blómkál og andabringur Nú þegar líða fer að vori er gott að byrja njóta, gera salat með fersk- um tómötum og ferskri basilíku. Bakað tómatsalat › 4 stórir tómatar eða 1 pakki af kirsuberjatómötum (líka hægt að nota ferska tómata, ekki bakaða) › 15 ml balsamedik › nokkur basilíkulauf › 50 ml olía (t.d. ólífuolía) › salt og pipar Takið tómatana og skerið niður eftir stærð, bakið í ofni við 100 gráður í 1­2 klukkustundir, raðið þeim fallega upp á disk og stráið söxuðum basilíkulaufum yfir. Setjið síðan balsamedik og olíu yfir allt saman. Kryddið með salti og pipar. Maríneraður lax eða bleikja með blómkáli Nú þarf að vinna niður síðasta veiði­ sumarið úr frystinum og gera pláss, eða nota eldisfisk sem hægt er að fá ferskan allt árið. › 250 g laxaflök, roðlaus og beinlaus › 2 hvítlauksgeirar › 1 lime eða annar sítrusávöxtur › salt og pipar Skerið bleikju eða lax í 2­3 cm teninga. Rífið niður limebörk og blandið honum saman við limesafa og smátt saxaðan hvítlauk. Veltið fisk tening unum upp úr blöndunni og kryddið með salti og pipar. Það er passlegt að marinera fiskinn í eina eða tvær klukkustundir. Sýran í sítrusávextinum eldar fiskinn og gerir hann hvítan og fallegan. Það er í góðu lagi að skella réttinum örstutt undir grill eða brúna hann lítillega með gasloga. Blómkálssúpa með blómkálskurli › 1½ blómkálshaus › 400 ml rjómi › 400 ml nýmjólk › safi úr hálfri sítrónu › kraftur (t.d. kjúklingakraftur) › salt Skerið heila blómkálshausinn í bita og setjið í pott með mjólk og rjóma. Látið allt sjóða þar til kálið verður mjúkt undir tönn. Maukið súpuna í blandara og setjið maukið svo aftur út í pottinn til að þykkja súpuna. Notið salt, kraft og sítrónusafa til að laða bragðið fram. Rífið svo hálfa blómkálshausinn með grófu rifjárni og myndið þannig kurlið sem við sáldrum yfir súpuna. Berið fram með grófu brauði og smjöri. Andabringur með hunangi og ferskmuldum pipar › 800 g andabringur (2 stórar) › 4 msk dökkt hunang › 4 tsk græn piparkorn › olía › salt og pipar Kryddið bringurnar með salti og pipar. Hitið pönnuna með olíu og leggið bringurnar á með skinnið niður. Steikjið þetta rólega á meðalhita í 8­10 mín. Þá snúið þið bringunum á hina hliðina í um 30 sek. á meðan þið penslið skinnhliðina með hunangi og grænum piparkornum. Snúið loks aftur við og látið hunangið verða k a r a m e l l u k e n n t í hitanum, látið bringurnar standa í fimm mínútur áður en þið skerið þær í jafna bita (til dæmis 6 stykki). Það er sniðugt að fleyta mestu fituna af pönnunni, setja síðan smáappelsínusafa út í pönnusafann og gera þar með ljúffenga sósu með réttinum. Munið að krydda til með krafti eða kryddi. Ef þið rispið í fituna og nuddið hana með salti þá verður hún stökk og góð. Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumeistari bjarnigk@gmail.com Mjósyndi

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.