Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 37. tbl. 24. árg. 15. september 2021 - kr. 950 í lausasölu
Fjármála- og tryggingaráðgjöf
á einum stað í útibúum Arion banka
Þú getur hitt ráðgjafa frá Verði í
útibúum Arion banka á Höfða,
Smáratorgi, Selfossi og í Borgarnesi.
Pantaðu fund í útibúi eða fjarfund
á arionbanki.is.
arionbanki.is
Ný og öflug
vefverslun
ALLA LEIÐ
Hleypum lífi í
sjávarbyggðirnar!
Eyjólfur Ármannsson
Oddviti í Norðvesturkjördæmi
Þau eru í forsvari fyrir þá tíu flokka sem bjóða fram krafta sína í Norðvesturkjördæmi í kosningunum 25. september nk. Í efri röð f.v: Magnús D Norðdahl Pírötum, Bjarni
Jónsson VG, Guðmundur Gunnarsson Viðreisn, Stefán Vagn Stefánsson Framsóknarflokki, Bergþór Ólason Miðflokknum, Valgarður Lyngdal Jónsson Samfylkingu og
Eyjólfur Ármannsson Flokki fólksins. Sitjandi f.v: Sigurlaug Gísladóttir Frjálslynda lýðræðisflokknum, Helga Thorberg Sósíalistaflokknum og Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir
Sjálfstæðisflokknum. Myndin var tekin síðastliðinn miðvikudag í Menntaskóla Borgarfjarðar, skömmu fyrir framboðsfund sem útvarpað var á Rás 2. Ljósm. mm.
Nýtt yfirlit um mögulega fjárhags-
lega aðstoð Jöfnunarsjóðs sveitarfé-
laga vegna sameininga sveitarfélaga
hefur verið birt á vef sveitarstjórn-
arráðuneytisins. Þar má skoða
framlög sem sveitarfélögum bjóð-
ast nú, ef til sameiningar kæmi á
árinu 2022. Í fyrra voru samþykkt-
ar nýjar reglur um fjárhagslega að-
stoð Jöfnunarsjóðs til að greiða fyr-
ir sameiningu sveitarfélaga. Regl-
urnar heimila að sveitarfélög fái
þrenns konar framlög við samein-
ingu; skuldajöfnunarframlag, fram-
lag vegna endurskipulagningar og
sérstakt byggðaframlag sem tekur
mið af íbúaþróun.
Reglurnar kveða einnig á um að
birta skuli yfirlit, sem sýni hvað
sveitarfélög myndu fá í ofangreind
framlög, óháð því hvaða sveitar-
félög sameinast. Í nýja yfirlitinu
er miðað við ársreikninga 2020 og
íbúaþróun tímabilið 2015-2021.
Samkvæmt reglunum skal miða við
ársreikning næstliðins árs fyrir gild-
istöku sameiningar við útreikning á
skuldajöfnunarframlagi. Byggða-
framlög miðast við íbúafjölda síð-
ustu fimm ára við sameiningu.
Hér á Vesturlandi eru tíu sveitar-
félög. Samkvæmt þeim reglum sem
gilda fengju þau hvert um sig frá
100 til 586 milljónum króna í styrk,
kæmi til sameiningar þeirra við ein-
hver önnur. Mest fengi Grundar-
fjarðarbær, Borgarbyggð, Stykkis-
hólmsbær og Snæfellsbær:
Grundarfjarðarbær 586 millj.
Borgarbyggð 539 millj.
Stykkishólmsbær 519 millj.
Snæfellsbær 459 millj.
Akraneskaupstaður 272 millj.
Eyja- og
Miklaholtshreppur 134 millj.
Hvalfjarðarsveit 121 millj.
Helgafellssveit 100 millj.
Skorradalshreppur 100 millj.
mm
Sveitarfélög fengju allt að 586 milljónir
kæmi til sameiningar
Svipmynd frá Grundarfirði. Ljósm. tfk.
sími 437-1600
Jón Gnarr og Þeyr 2
á Söguloftinu
laugardaginn 18. september kl. 20:00
Sunnudagur 26. september kl. 17:00
Jón Gnarr flytur Völuspá,
Konungsbókargerð, við eigið lag,
alls 63 erindi.
Við flutninginn leika þeir
Hilmar Örn Agnarsson og
Hilmar Örn Hilmarsson
Miðasala á tix.is
Okkar vinsæla veitingahús er opið
alla daga frá kl. 11:30 til 21:00
Borðapantanir á
landnam@landnam.is
og í síma 437-1600