Skessuhorn


Skessuhorn - 15.09.2021, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 15.09.2021, Blaðsíða 22
MiðVikudaGuR 15. SepteMBeR 202122 ingimundur ingimundarson er for- maður íþróttanefndar eldri borg- ara í FeBBN og forsprakki og drif- fjöður í íþróttastarfi eldri borgara í Borgarnesi. Hann var á miklum þeysingi á púttmótinu enda nóg að gera að halda utan um öll skor mótsins og sjá um allt í kringum það ásamt dyggum aðstoðarmanni sínum, honum Flemming Jessen og fleirum sem unnu við mótið. Við náðum þó að setjast aðeins niður með honum eftir mótið og spjalla um hvað sé fram undan í íþrótta- lífi eldri borgara í vetur. einn- ig um aðstöðuleysið eftir að lokað var aðstöðu þeirra til púttiðkunar úti í Brákarey. ingimundur segir að þeim hafi verið hent út í febrúar og að það hafi ekkert svæði í Borgar- nesi verið um að ræða á þeim tíma og er í raun og veru þannig enn þá. „Við gáfumst ekki upp og ókum á akranes annan daginn og í Mos- fellsbæ hinn og fengum mjög góð- ar viðtökur á báðum stöðum. Fram undan er fundur með sveitarstjóra og einhverjum fleirum úr sveit- arstjórn. Við erum með ákveðnar hugmyndir sem við ætlum að leggja fram. Það er búið að bjóða okkur aðstöðu í kjallaranum í Mennta- skólanum sem er alls ekki sambæri- leg miðað aðstæðurnar í Brákarey. Á því svæði er hægt að setjast nið- ur og fá sér kaffi og jafnvel æfa eitt- hvað annað.“ ingimundur segir að þeir viti ekki alveg hvernig þetta verður en hópurinn sé alltaf að stækka. Það eru um 50 á skrá hjá honum núna en einhverjir tóku sér frí í sumar eins og gefur að skilja. „Það mæta að jafnaði 30 á æfingar í hverri viku en við æfum tvisvar í viku, þriðju- daga og fimmtudaga. Stefnan er að halda lokamót, meistaramótið, í lok september hérna á Hamars- velli.Við erum komnir hérna með tvo velli, Flemming kallaði annan völlinn Flötina og þann nýja kallaði hann Flagið og ber reyndar nafn sitt með rentu. Áhuginn er veru- legur og þetta er mjög samheldinn og skemmtilegur hópur.“ Þýðir ekki að mála skrattann á vegginn Ykkur líst ekkert á þetta nýja hús- næði sem er búið að bjóða ykk- ur? „Við verðum kannski að sætta okkur við það vegna þess að það er ekkert annað í boði. að vísu er ekki hægt að leyna því að okkur langar að fá undanþágu að komast aftur út í eyju á meðan við erum að koma upp aðstöðu. Ég veit ekkert hvern- ig niðurstaðan úr því verður. Svæð- ið þar sem við erum með í eyj- unni er 100% í lagi að mínu mati og annarra. Það er aðallega að það þarf að brjóta gamla frystihúsið frá. Það var aldrei rætt við okkur um eitt eða neitt og okkur langar til að koma með okkar skoðanir á þessu máli en ég veit ekkert hver niður- staðan verður.“ annars segir ingi- mundur að það þýði ekkert að mála skrattann á vegginn, það verði bara að vinna úr hlutunum og reyna að gera það besta sem hægt er úr því sem komið er. Þeim hafi liðið mjög vel í eyjunni og nefnir að Suður- nesjamenn hafi komið til þeirra tvisvar til að keppa á innanhúss- móti sem haldið er í mars á hverju ári. Þeir hafi verið mjög ánægðir og mætt vel í bæði skiptin. að endingu, hvernig líst honum á framhaldið? „Það er bara bjartsýni í okkar huga og við ætlum að reyna að vinna úr því. en fari svo að það verði einhverjar tafir að við komust inn á æfingar hugsa ég að við leitum eftir því að komast í Mosfellsbæinn. en við vonum það besta.“ vaks Það er bjartsýni í okkar huga Ingimundar Ingimundarson að pútta. Ljósm. mm September púttmót eldri borgara í Borgarnesi Síðasta fimmtudag fór fram opið púttmót eldri borgara á púttsvæðunum við klúbbhúsið á Hamarsvelli í Borgarnesi. Þátttakendur voru alls 52 frá púttklúbbi Borgarbyggðar, pútt- klúbbi Suðurnesja og púttklúbbi Hvammstanga og var keppt í alls sex flokkum og léku keppendur 72 holur. Sigurður Þór- arinsson kom með ráskubba sem gerðir voru af miklum hag- leik og voru settir á nýja púttvöllinn sem nefnist Flagið en hann fær vonandi nýtt nafn á næsta ári. Geirabakarí og Heild- verslun JGR í Borgarnesi gáfu veitingar á mótið og samvinn- an innan pútthóps Borgarbyggðar á mótinu var, að sögn mót- stjórans, til mikillar fyrirmyndar. Úrslit á mótinu voru þessi: Konur 80 ára og eldri Lilja Jónasdóttir1. pútt Suð. 79 Jónína B. Ingólfsdóttir2. pútt Borg. 80 Eydís B. Eyjólfsdóttir3. pútt Suð. 81 Konur 70-79 ára Ásdís B. Geirdal1. pútt Borg. 72 Ingibjörg Finnbogadóttir2. pútt Suð. 79 Hugrún B. Þorkelsdóttir3. pútt Borg. 82 Konur 60-69 ára Guðrún H. Andrésdóttir1. pútt Borg. 73 Sólrún Lind Egilsdóttir2. pútt Borg. 80 Þóra Stefánsdóttir 3. pútt Borg. 81 Karlar 80 ára og eldri Sigurður Þórarinsson1. pútt Borg. 71 Aðalbergur Þórarinsson2. pútt Suð. 73 Njáll Skarphéðinsson3. pútt Suð. 75 Karlar 70-79 ára Guðmundur Bachmann1. pútt Borg. 72 Þórður Kristjánsson2. pútt Suð. 74 Þórhallur Teitsson3. pútt Borg. 74 Karlar 60-69 ára Stefán Bjarkason1. pútt Suð. 70 Páll Sigurðsson2. pútt Hvamm. 77 Marteinn Reimarsson3. pútt Hvamm. 82 vaks Sigurvegarar Konur 80 ára og eldri. Konur 70-79 ára. Konur 60-69 ára. Sigurvegarar Karlar 80 ára og eldri. Karlar 70-79 ára. Karlar 60-69 ára. Þorbergur Þórðarson var mættur af Skaganum. Það verður að vanda sig í púttinu. Þessar voru eldhressar.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.