Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 12
MiðVikudaGuR 15. SepteMBeR 202112
bmvalla.is
Smellpassar þú í hópinn?
Smiður - Carpenter
Umsóknir óskast rafrænt í gegnum Alfreð og er umsóknafrestur til og með 27.september.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf. á og rekur þrjú dótturfélög sem starfa við
öflun hráefna, framleiðslu, sölu og þjónustu á byggingarmarkaði og við
mannvirkjagerð á Íslandi. Fyrirtækin eru Björgun ehf., BM Vallá ehf. og
Sementsverksmiðjan ehf., og hafa þessi félög rótgróna sögu á Íslandi sem rekja
má allt aftur til fyrri hluta síðustu aldar. Hjá fyrirtækjunum starfa um 200 manns
á starfsstöðvum víða um land en skrifstofa Hornsteins ehf. er á Bíldshöfða 7.
Mannauðsstefna
Mikil áhersla er á faglega vinnu þar sem ferlar, árangur og stöðugar
úrbætur eru hafðar að leiðarljósi. Við tilheyrum liðsheild þar sem
metnaðarfullt starf er unnið af jákvæðu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis
og við viljum gera starfsfólki okkar kleift að samhæfa vinnu og
fjölskylduábyrgð.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Framleiðsla á forsteyptum einingum
• Vinna með búnað og efni sem tengist
einingaframleiðslu
• Teikningalestur
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sveinspróf í smíðum eða sambærileg reynsla
• Stundvísi, jákvæðni og framúrskarandi lipurð i samskiptum
• Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
• Íslensku og/eða enskukunnátta er kostur
• Á auðvelt með að starfa í hóp
BM Vallá leitar að öflugum smið til að slást í samhentan hóp í Smellinn,
einingaframleiðslu BM Vallá á Akranesi.
Jöfn tækifæri
Með jafnréttisstefnunni okkar tryggjum við að starfsfólk hafi jafna
möguleika óháð kyni, þjóðerni, kynþætti, kynhneigð, aldurs og fleiri
þátta.
Um er að ræða 100% framtíðarstarf með skilgreindum vinnutíma frá kl. 07:30-16:50.
BM Vallá is looking for carpenters to join their group in Smellinn,
their pre-cast production unit in Akranes.
This is a full-time, future role with defined working hours from 07:30-16:50.
Frisbígolfvöllur var settur upp í
Stykkishólmi í lok júlí í sumar og
hefur hann notið töluverðra vin-
sælda. Í síðustu viku kom sérfræð-
ingur í þessum efnum til að reka
smiðshöggið á völlinn, klára merk-
ingar á holum og setja upp skilti
til að kynna brautirnar fyrir þeim
sem eru að spila frisbígolfið. auk
þess hélt hann lítið námskeið fyrir
íþróttakennara og þjálfara á svæð-
inu svo þeir geti leiðbeint nemend-
um sínum og kennt helstu undir-
stöðuatriði.
Völlurinn telur níu holur og
er staðsettur á holtinu fyrir ofan
íþróttavöllinn og grunnskólann.
Fyrsta brautin liggur frá grunn-
skólanum og er kastað í átt að þjón-
ustuhúsi tjaldsvæðis. Völlurinn rek-
ur sig svo í kringum holtið og upp á
það. Völlurinn er ekki aðeins hugs-
aður sem góð afþreying og hreyfing
fyrir heimafólk heldur er frisbígolf
einnig vinsælt á meðal ferðamanna.
vaks/ Ljósm. Stykkishólmsbær
Heilbrigðisráðherra kynnti nýjar
tilslakanir á sóttvarnarráðstöfunum
á fundi ríkisstjórnar í gær, en þær eru
í samræmi við tillögur sóttvarnar-
læknis. Reglugerð þessa efnis tekur
gildi í dag, 15. september, og gildir
til 6. október. almennar fjöldatak-
markanir verða auknar í 500 manns
og á hraðprófsviðburðum verður
unnt að hafa allt að 1.500 manns.
Á hraðprófsviðburðum verður nú
unnt að hafa standandi gesti enda
gæti þeir að eins metra reglu en
beri ella grímu. ekki þarf að við-
hafa eins metra fjarlægð eða bera
grímu meðan setið er á hraðprófs-
viðburðum. Reglur um eins metra
nálægðarmörk og grímuskyldu
verða að öðru leyti óbreyttar. Þá
verður sérstök heimild til að halda
skemmtanir fyrir grunn- og fram-
haldsskólanemendur án nálægða-
takmörkunar eða grímuskyldu fyrir
allt að 1.500 manns.
Veitingastaðir, þar sem heimil-
aðar eru áfengisveitingar, geta haft
opið klukkustund lengur, til mið-
nættis og tæma þarf staðina fyrir
klukkan 01.00. Grunn- og fram-
haldsskólum verður gert heimilt að
halda samkomur fyrir nemendur
fyrir allt að 1.500 gesti að því gefnu
að þeir framvísi neikvæðu hraðprófi
sem ekki má vera eldra en 48 klst.
gamalt. ekki verður gerð krafa um
nálægðatakmörk eða grímuskyldu,
en skylt verður að skrá gesti.
Aukið aðgengi
að hraðprófum
Heilbrigðisráðherra kynnti jafn-
framt á fundi ríkisstjórnarinnar
áform um að gera hraðpróf vegna
Covid-19 enn aðgengilegri með
það að markmiði að boðið verði upp
á þau á fleiri stöðum en nú er. til
að ná því markmiði hratt er stefnt
að því að hefja kostnaðarþátttöku
vegna hraðprófa sem tekin eru hjá
einkaaðilum að sama marki og hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
og opinberum heilbrigðisstofnun-
um. einkaaðilum verður jafnframt
veittur aðgangur að vottorðakerfi
sóttvarnalæknis þannig þeir geti
gefið út sömu stöðluðu vottorðin
eftir sýnatöku. Stefnt er það því að
reglugerð þessa efnis verði birt á
næstu dögum.
mm
Nýtt laugarhús var reist við Hrepps-
laug í Skorradal síðastliðið vor en
byrjað var að reisa húsið 29. mars
síðastliðinn. Þá var einnig búið að
steypa nýja potta við laugina. ung-
mennafélagið Íslendingur stend-
ur að byggingu hússins og styrkt-
ir Skorradalshreppur framkvæmd-
irnar. um er að ræða 160 fermetra
hús með töluvert betra aðgengi en
það gamla. að sögn kristjáns Guð-
mundssonar, formanns umf. Ís-
lendings, var í upphafi stefnt að því
að opna húsið síðastliðið sumar en
það tókst ekki. „Við misstum iðn-
aðarmenn í sumarfrí svo þetta dróst
aðeins,“ segir kristján í samtali við
Skessuhorn. „Við ákváðum því bara
að vinna þetta í rólegheitum í vet-
ur og vera með allt klárt til að opna
næsta vor,“ bætir hann við.
Húsið er að sögn fullbúið að utan
en á eftir að ljúka framkvæmdum
innandyra og klára útisvæði, leggja
hellur og ganga frá. „Við ætlum
bara að vanda vel til verks og vera
með allt tilbúið þegar við opnum
næsta vor,“ segir kristján. arg
Nýtt laugarhús hefur verið reist við Hreppslaug í Skorradal auk þess sem búið er
að steypa tvo nýja potta. Ljósm. Kristín Jónsdóttir.
Ætla að ljúka fram-
kvæmdum í vetur
Frisbígolfvöllur í Stykkishólmi
Slakað verulega á
sóttvarnaráðstöfunum