Skessuhorn - 15.09.2021, Page 16
MiðVikudaGuR 15. SepteMBeR 202116
Frambjóðendur á ferð og flugi
Í aðdraganda kosninga vitja frambjóðendur gjarnan kjósenda
og kynna sér líf og störf til sjávar og sveita. að þessu sinni
eru fjölsóttir framboðsfundir ekki á döfinni sökum sóttvarna,
en þess í stað ferðast frambjóðendur um kjördæmin og ræða
við fólk í smærri hópum. Meðfylgjandi eru myndir sem flest-
ar eiga uppruna sinn hjá frambjóðendum sjálfum, sem þeir
hafa deilt á samfélagsmiðlum. Skessuhorn tók nokkrar þessara
mynda traustataki til að deila þeim með lesendum.
mm
Þátttaka í stjórnmálaumræðum er fastur liður í undirbúningi kosninga. Hér er við það að hefjast útvarpsþáttur á Rás 2 sem
sendur var út í beinni frá Menntaskóla Borgarfjarðar síðastliðinn miðvikudag. Anna Kristín Jónsdóttir er hér að fara yfir
málin með oddvitum tíu framboða í NV kjördæmi skömmu áður en útsending hófst. Ljósm. mm.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og formaður VG var
á ferð um uppsveitir Borgarfjarðar nýverið. Meðal annars
kíkti VG fólk í gróðurhúsin til Sveins Björnssonar á Varma-
landi í Reykholtsdal. Sveinn hefur lengst allra starfað við
garðyrkju hér á landi og gat sýnt forsætisráðherra ýmis
afbrigði tómata sem hann ræktar í húsunum.
Ljósm. vg.
Á meðfylgjandi mynd er Bergþór Kristleifsson í Húsafelli
að sýna Þórdísi Kolbrúnu R Gylfadóttur oddvita Sjálf-
stæðismanna skipulag fyrir hverfi þar sem hús eru tekin að
rísa í landi hans. Ólafur Teitur Guðnason aðstoðarmaður
ráðherra til hægri. Ljósm. lbm.
Valgarður Lyngdal Jónsson og Jónína
Björg Magnúsdóttir skipa efstu sæti
lista Samfylkingarinnar. Hér eru þau
á ferð um Vestfirði þar sem dreift var
rauðum rósum og sinnepi. Ljósm. hvh.
Forsvarsmenn Framsóknarflokksins á nýjum vegi sem verið er að leggja yfir
Dynjandisheiði. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og
Sigurður Ingi Jóhannsson. Ljósm. ábp.
Bjarni Jónsson og Lilja Rafney Magnúsdóttur voru nýverið á
ferð um Snæfellsnes. Meðal annars var komið við hjá GRun
í Grundarfirði og í hafnarskúrnum þar sem myndin er tekin.
Ljósm. bj.
Frambjóðendur Miðflokksins eru á ferð og flugi. Hér er
Sigurður Páll Jónsson í heimsókn hjá hjónunum Guðbjarti
Gunnarssyni og Hörpu Jónsdóttur bændum á Hjarðarfelli.
Ljósm. bó.
Helga Thorberg oddviti Sósíalista-
flokksins tekur hér sjálfu með Indriða
Aðalsteinssyni bónda á Skjaldfönn.
Ljósm. ht.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í heimsókn í Snorrastofu þar sem Bergur Þor-
geirsson og Sigrún Þormar sögðu frá starfseminni. Ljósm. hb.
Efstu fjórir á lista Framsóknarflokks slaka á á bekk á Ísafirði.
Ljósm. hsk.
„Skógarströndin er sérlega falleg leið,
kjarrivaxin holt og hlíðar á aðra hönd
og Hvammsfjörður og Breiðafjörður
á hina með sínum eyjum og hólmum.
Myndarleg býlin bera bændum á
svæðinu fagurt vitni og það er gaman
að aka um þessa sveit. En vegurinn
er einfaldlega hræðilegur! Þetta þarf
að laga,“ skrifaði Valgarður Lyngdal
Jónsson oddviti Samfylkingarinnar
við þessa mynd sem hann tók af að-
stæðum.
Haraldur og Björn ræða saman fyrir
vestan. Ljósm. bhs