Skessuhorn - 15.09.2021, Page 26
MiðVikudaGuR 15. SepteMBeR 202126
Skaga-harðkjarnasveitin Gaddavír
gaf í síðustu viku út nýtt myndband
við lagið Jóhann Stadium. Lagið
er af væntanlegri plötu hljómsveit-
arinnar sem kemur út á fyrri hluta
næsta árs. Myndbandinu er leik-
stýrt af Bergi Líndal Guðnasyni og
tekið upp af Leif erni kaldal ei-
ríkssyni.
Hljómsveitin Gaddavír saman-
stendur af fjórum vinum af Skag-
anum sem hafa spilað saman síðan
árið 2010. Meðlimir hljómsveitar-
innar eru kristján alexander Rei-
ners Friðriksson söngvari, Sig-
urbjörn kári Hlynsson og Bragi
knútsson sem spila á gítar, elvar
Jónsson bassaleikari og trommar-
inn Guðbergur Jens Haraldsson.
aðspurður segir kristján að þetta
verkefni hafi orðið til árið 2017.
Ástæða þess að drifið hafi verið í
verkefninu var sú að Guðbergur
trommari var að verða 25 ára en þá
er hann ekki lengur gjaldgengur í
Músíktilraunir. að sögn kristjáns
varð til hype í kringum verkefnið
og gaf hljómsveitin út fjögurra laga
smáskífu árið 2017 auk þess að taka
þátt í músíktilraunum.
frg/ Ljósm. aðsend
Hljómsveitin Gaddavír gefur
út nýtt myndband
Pennagrein
Pennagrein
Pennagrein
Það er kunnara en frá þurfi að segja
að kvótakerfið leiðir til samþjöpp-
unar aflaheimilda og þar með at-
vinnuleysis og fátæktar í þeim
byggðarlögum sem missa aflaheim-
ildir. Íbúar þorpanna, sem ávallt
gátu treyst á náttúruauðlindina, eiga
nú búsetu sína og barna sinna und-
ir dyntum eins eða tveggja kvóta-
greifa. Þessir valdamiklu menn
geta ráðstafað öllum veiðiheimild-
um úr þorpinu og skilið íbúa þess
eftir bjargarlausa, þó nægur fisk-
ur sé við mynni fjarðarins, þar sem
þorpið stendur.
Staðsetning
sjávarþorpanna
Sjávarþorpin eru þar sem þau eru
vegna nálægðar sinnar við stað-
bundin fiskimið. Vissulega óx tog-
araflotinn hratt upp úr miðjum átt-
unda áratugnum þegar Íslending-
ar voru í þann veginn að losa sig
við mörg hundruð erlenda tog-
ara af Íslandsmiðum. Hugsanlega
mátti fækka þeim eitthvað en sá
blóðugi niðurskurður aflaheimilda,
sem nú á sér stað í sjávarþorpun-
um, er kominn fram yfir sársauka-
mörk og á ekkert skylt við hagræð-
ingu. kröpp staða íbúa fyrrum sjáv-
arbyggða hefur greitt götu norskra
lukkuriddara, sem þurft hafa að
sæta miklum takmörkunum í Nor-
egi en sjá hér í hillingum Villta-
vestrið í laxeldi. Fyrir tilstuðlan
stjórnvalda eiga íbúar þorpanna
fárra kosta völ.
Hvað vill Flokkur
fólksins gera?
Flokkur fólksins vill tafarlaust gera
handfæraveiðar frjálsar og auka
línuveiðar, sérstaklega í þeim þorp-
um sem misst hafa aflaheimildir.
Útilokað er að ógna fiskistofnum
með krókaveiðum. krókafiskur er
alla jafna besti fiskurinn. Þessar að-
gerðir eru ekki nægar einar og sér
en myndu þó strax hleypa nýju lífi í
sjávarþorpin.
Við viljum nýja nýtingarstefnu
fiskimiðanna þar sem sjávarauð-
lindin okkar er sameign þjóðarinn-
ar en ekki einkaeign fárra útvalinna
sægreifa eins og nú háttar til.
Inga Sæland
Höf. er alþingismaður og formaður
Flokks fólksins
Gefum sjávarbyggðunum
næringu í æð!
píratar vilja tryggja jafnt aðgengi
landsmanna að allri almennri heil-
brigðisþjónustu óháð búsetu og að sú
þjónusta sé alfarið gjaldfrjáls. auka
þarf réttindi sjúklinga og starfsfólks
og efla forvarnir, ekki hvað síst þegar
kemur að geðheilbrigðismálum.
Þrátt fyrir að núverandi ríkis-
stjórn hafi staðið sig vel í baráttunni
gegn kórónuveirunni hefur það álag
sem fylgdi faraldrinum afhjúpað
þann fjárskort sem heilbrigðiskerfið
býr við og óviðunandi starfsskilyrði
starfsfólks. Ákall hjúkrunarfræðinga,
sjúkraliða, lækna og annarra stétta
innan heilbrigðisgeirans, um umbæt-
ur er hávært og við því þarf að bregð-
ast án tafar.
Fyrir utan auknar fjárveitingar er
grunnurinn að góðu heilbrigðiskerfi
starfsfólkið sem starfar innan kerfis-
ins. Stjórnmálamenn eru duglegir
að hrósa starfsfólki á tyllidögum en
mættu vera duglegri að láta verkin
tala og svara ákalli starfsfólks. Verk
ganga alltaf orðum framar.
Í samtölum pírata við starfsfólk í
heilbrigðiskerfinu ber allt að sama
brunni en flestir nefna aukið fjár-
magn og að bæta þurfi starfsskilyrði.
Í fyrsta lagi þarf að hækka laun allra
starfsstétta í heilbrigðiskerfinu. Í
öðru lagi þarf að stytta vinnutíma og
tryggja að hann sé unninn á tíma sem
er fjölskylduvænn að því marki sem
hægt er. Í þriðja lagi verður starfsfólk
að geta haft bein áhrif á starfsum-
hverfi sitt. Ábendingar varðandi úr-
bætur koma iðulega frá starfsfólki og
það er hlutverk stjórnenda að bregð-
ast við slíkum ábendingum af ábyrgð,
festu og hraða. Þetta á við um tækja-
búnað, skipulagningu starfa og ann-
að sem getur leitt til betri þjónustu
við sjúklinga.
afleiðing óviðunandi starfsskil-
yrða í heilbrigðiskerfinu er skort-
ur á starfsfólki. Það vantar sárlega
fleiri sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga
og lækna til starfa, ekki síst á lands-
byggðinni. Því miður kemur starfs-
fólk, sem hefur menntað sig erlendis,
ekki til baka í þeim mæli sem æski-
legt væri. Það mun ekki breytast fyrr
en laun hækka, vinnutími styttist og
starfsfólki gefst raunverulegt tæki-
færi til að hafa áhrif á starfsumhverfi
sitt.
ef starfsskilyrði starfsfólks eru
aðlaðandi er auðveldara að tryggja
mönnun í byggðakjörnum um land
allt. allir íbúar landsins eiga skilyrð-
islausan rétt til fullnægjandi grunn-
þjónustu og þar skiptir heilbrigðis-
þjónusta lykilmáli og er í raun for-
senda byggðar í landinu.
kosningar til alþingis fara fram
þann 25. september næstkomandi.
Núverandi ríkisstjórn hefur haft
fjögur ár til þess að bæta stöðu heil-
brigðiskerfisins. ef kjósendur vilja
raunverulegar breytingar þarf að
gefa nýjum flokkum og nýju fólki
tækifæri. Þar kemur hreyfing pírata
sterklega til greina sem frjálslynt og
félagshyggjusinnað umbótaafl í ís-
lensku samfélagi. Hreyfingin hefur
starfað í tæpan áratug og unnið sér
traust landsmanna á því tímabili með
skeleggri þjóðfélagsumræðu og öfl-
ugri stjórnarandstöðu á alþingi. er-
indi pírata í stjórnmálum hefur aldrei
verið eins aðkallandi og nú er.
Setjum sjúklinga og starfsfólk í
heilbrigðiskerfinu í forgang strax í
upphafi næsta kjörtímabils. Starfs-
fólk í heilbrigðisgeiranum hugsar
vel um okkur þegar veikindi ber að
garði. Hlutverk stjórnmálamanna er
að meta störf þeirra að verðleikum
og svara ákalli um aukið fjármagn og
bætt starfsskilyrði. Verk ganga orð-
um framar.
Magnús D Norðdahl
Höf. er oddviti Pírata í Norðvest-
urkjördæmi.
Heilbrigðis-
kerfi í þágu
þjóðar
Meginástæða þess að margar
byggðir og ekki síst hefðundnar
sjávarbyggðir eiga undir högg að
sækja er að þar skortir fjölbreytt at-
vinnutækifæri.
ef byggðirnar eiga að hafa ein-
hverja möguleika til að vera eftir-
sóknarverðir búsetukostir fyrir
ungt fólk verða þær að geta boðið
því fjölbreytt og áhugaverð störf.
ef þeim tekst það ekki munu þær
glata þeim mikla mannauð sem býr
í ungu fólki, atvinnulífið nýtur ekki
starfskrafta þess og samfélagið allt
fer á mis við þann kraft og sköpun
sem í því býr.
Fjölmörg dæmi eru um að út-
gerðarmenn, sem hafa fengið
einkarétt frá ríkinu til að nýta fisk-
veiðiauðlindina okkar og hafa gert
út skip og rekið fiskverkun í sjáv-
arbyggðum, selji kvótann hæst-
bjóðanda fyrir margar milljónir og
oft marga milljarða og kaupandinn
nýti kvótann til að gera út frá öðru
byggðarlagi. eigendur útgerðanna
geta líka hvenær sem þeim þókn-
ast og sjá í því gróðavon ákveðið
að fara með skipin, sem kvótinn er
bundinn við, burt úr byggðarlaginu
eða að landa aflanum og láta verka
hann einhvers staðar annars staðar.
Og fólkið sem hefur unnið við
að veiða fiskinn og verka hann
situr eftir slyppt og snautt, í full-
komnu óöryggi um framfærslu sína
og barna sinna og neyðist oft til að
flytjast burt úr byggðarlaginu til
að finna atvinnu. Það getur jafn-
vel ekki selt húsnæði sitt eða neyð-
ist til að selja það fyrir lítið því að
fáir vilja kaupa fasteignir í byggð
þar sem litla eða enga atvinnu er að
hafa.
Er þetta ekki í raun
eignaupptaka í boði
ríkisins?
ef ekkert verður að gert er mikil
hætta á að atvinnutækifærin í mörg-
um hefðbundnum sjávarbyggðum
verði enn þá færri og fábreyttari en
nú er. Maður þarf ekki annað en að
fara í næsta stórmarkað til að sjá og
finna að sjálfvirknivæðing starfa er
þegar farin að hafa mjög mikil áhrif
á störfin. Þeim fjölgar mjög hratt
sem ákveða að afgreiða sig sjálfir í
stað þess að láta starfsfólkið sjá um
það. Og svona er tækniþróunin á
mjög mörgum öðrum, sviðum, ekki
síst í sjávarútvegi. Sú þróun er mjög
hröð og mun verða það áfram.
eigendur og stjórnendur fyrir-
tækjanna sjálfvirknivæða störfin til
þess að draga úr launakostnaði og
auka þannig arð sinn af rekstrinum
og til að þurfa að deila enn minna
af honum en áður með starfsfólk-
inu. Þannig fer, ef ekkert er að gert,
meira og meira af gróðanum beint
í vasa eigenda og stjórnenda fyrir-
tækjanna.
Spurningarnar sem við verðum
öll að svara eru því þessar:
Ætlum við að sætta okkur við
þetta augljósa og ömurlega órétt-
læti og þann mikla ójöfnuð sem
þetta leiðir til og fylgjast aðgerða-
laus með þegar þeir ríku verða rík-
ari og valdameiri og þeir efnaminni
enn þá fátækari og valdlausari.
eða.
Ætlum við að gera það sem gera
þarf til að sá gríðarmikli arður, sem
fiskveiðiauðlind þjóðarinnar skilar,
verði nýttur til að gera fólki í sjáv-
arbyggðum kleift að gera atvinnulíf
í heimabyggðum sínum fjölbreytt-
ara og öflugra og tryggja þannig af-
komu sína og barna sinna og fram-
tíð byggðanna?
Og ætlum við að gera það sem
gera þarf til að tryggja að sá arður
sem sjálfvirknivæðing starfa get-
ur skapað lendi fyrst og fremst hjá
fólkinu í landinu og mest hjá því
fólki sem þarf svo bráðnauðsynlega
á honum að halda til að bregðast
við breytingum sem sjálfvirknivæð-
ingin mun valda á störfum þess.
ef þú vilt vera í liði með þeim
sem ætla ekki að fylgjast aðgerða-
laus með þessari þróun í átt til enn
þá meira óréttlætis og ójöfnuðar,
heldur berjast af alefli fyrri breyt-
ingum, réttlæti, frelsi og mann-
sæmandi framtíð fyrir þig og börn-
in þín getur þú gert það með mjög
einföldum og áhrifaríkum hætti:
kjóstu Sósíalistaflokkinn!
Árni Múli Jónasson
Höf. er í 2. sæti á framboðslista
Sósíalistaflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi
Fjölbreytt störf – Jöfn tæki-
færi, jöfnuður og réttlæti