Skessuhorn - 15.09.2021, Page 32
MiðVikudaGuR 15. SepteMBeR 202132
Vísnahorn
Nú er réttatímabilið hafið með sín-
um sjarma, erfiðleikum og ánægju
og tilfallandi gleði og sorgum. Víða
selja viðkomandi kvenfélög veit-
ingar í réttum og gjarnan glaum-
ur nokkur þar um kring. Nú þurfa
samt blessaðar konurnar stundum
einhverja aðstoð eins og við vatns-
burð og fleira og getur þá verið til
bóta að grípa til karlkynsins. Jafnvel
fer svo að þeir sem áður voru ung-
ir og örir í gleðskapnum verða síð-
ar ráðsettir menn og leggja kven-
félaginu lið við hin ýmsustu verk-
efni. Stefán Sveinsson sem lengi var
vinnumaður hjá séra Gunnari Árna-
syni á Æsustöðum var virkur félagi í
heimilisiðnaðarfélagi sem þar starf-
aði. Þegar því var svo breytt í kven-
félag færðist Stefán sjálfkrafa með
og var enda félagsskapnum hinn
þarfasti liðsmaður en orti þó:
Áður var ég gáskagjarn
í glaumi réttardagsins.
Nú er ég orðinn besta barn
á brjóstum kvenfélagsins.
Jón Jónsson á eyvindarstöðum
bætti svo við:
Þarna muntu þroska fá
og þekkingar að afla.
Kannske seinna kemstu á
kvenfélagsins nafla.
En ég vil stinga því að þér
þó að líki miður
að út um þúfur friður fer
farirðu lengra niður.
að afloknum réttum kemur svo
hin óhjákvæmilega sláturtíð og slát-
ursala með öllu því sem þar fylgir
og tilheyrir. dV birti einhvern tím-
ann verðkönnun á ýmsum sláturaf-
urðum og varð það Böðvari Guð-
laugssyni tilefni til eftirfarandi:
Á Héraði gerist kvenþjóðin tæp
á taugum,
og telja má víst, að þar fækki til
muna þungunum,
því vitanlega vex henni mjög í
augum
verðlagið á Egilsstaðapung-
unum.
Húnvetnskri kvenþjóð hins
vegar standa til boða
hagkvæm viðskipti mitt í
dýrtíðarstandinu:
Á Blönduósi getur hún blátt
áfram fengið að moða
úr billegustu pungum, sem til
eru á landinu.
Áður en að réttum og sláturtíð
kemur fara menn í göngur enda
frumskilyrði þess að réttir geti farið
fram sómasamlega. Stundum hefur
verið haft á orði að nokkur gleð-
skapur fylgi leitum og Sigurður
Hansen orti um ástandið í Bugakofa
á eyvindarstaðaheiði:
Sumir virtust liggja lágt og
létust sofa,
það var ekki unnt að lofa
ástandið í Bugakofa.
Það var varla friður til að finna
á sér
því görg og púst menn gáfu frá
sér
svo grimmir hundar fóru hjá
sér.
Björn stóð einn við hitann eins
og Héðinn forðum,
þó gólf og veggir gengju úr
skorðum
gramdist honum ekki í orðum.
Hundar stóðu bísperrtir til
beggja handa,
þeir höfðu ekki þambað landa,
þess vegna tókst þeim að
standa.
Þessi mun hinsvegar vera ættuð af
afrétti Skaftártungumanna:
Víð þreytuvíli og þvælingum
þá er sæla í hvílingum.
Gott er skýli í Skælingum
skjól og hæli í Kýlingum.
Góður fjárhundur er að sjálfsögðu
mikilvægur hverjum smala þó auð-
vitað geti ungir og áhugasamir bæði
hundar og smalar lent í lítilsháttar
aðlögunarerfiðleikum. Bjarni páls-
son á Blönduósi átti allgóða tík og
lýsti sínum betrunaráhrifum á hana
með þessum orðum:
Tíkin mín fer nú lítt að lögum,
læknað gat ég þó margan
brestinn.
Ég setti´ana inn á sunnudögum
og sagði´enni að hlusta vel á
prestinn.
Og tvær koma hér eftir Jón í
Skollagróf:
Lokið er fjallafrelsinu,
fátt um spretti snjalla.
líður hausts að helsinu,
hljóðnuð gleðibjalla.
Haustið strengir hélubönd,
hleður snjó í fjöllin.
Senn eru að baki sumarlönd
sölna grös um völlinn.
Sveinn Gíslason á Frostastöðum
orti á leið í göngurnar:
Fram í reit þótt rökkva taki,
rommið veita skal ég þér.
Nú er sveitin senn að baki,
síga þreyta á hölda fer.
Gangnaævintýrin seiða gjarn-
an þá sem einu sinni hafa komist á
bragðið. Ætli Jón tryggvason hafi
ekki gert þessa síðsumars á ferð um
eyvindarstaðaheiði:
Þó að húmi og hausti senn
hitna fornar glóðir.
Þegar gamlir gangnamenn
ganga um þessar slóðir.
Stundum hefur viljað verða svo-
lítill gleðskapur fyrstu nótt í skála en
fjallkóngum er ekki vel við slíkt því
erfitt verk bíður að morgni. amma
mín fór oft með eftirfarandi vísu en
nú er ég bara ekki viss um hver orti
þó gamla konan hafi örugglega sagt
mér það. en sem sagt fjallkóngur
var að hasta á sína menn og segja
þeim að vera ekki með háreysti eftir
tólf. einn þeirra (sem ég man ekkert
hver var en vildi gjarna fræðast um)
tók upp úrið sitt sem vantaði fimm
mínútur í tólf og segir:
Ekki er klukkan orðin tólf,
ennþá má ég syngja.
Við erum fjórtán, fimm og tólf
fjallmenn Álfthreppinga.
en mikið væri nú gaman ef ein-
hver kannaðist við höfund að þess-
ari vísu.
Það styttist nú óðum í kosning-
arnar jafnt í fámennum sveitum
landsins sem í þeirri Babýlon vors
lands eins og blessunin hún krist-
rún í Hamravík hefði sagt. aðal-
steinn í Strandseljum orti:
Flokkatryggð ei fólkið heftir,
frambjóðenda stækkar skrá.
Bráðum verður enginn eftir
orðinn til að kjósa þá.
Blessaðir frambjóðendurnir spara
heldur ekki að minna okkur á allt
það sem þeir hafa gert fyrir okkur
síðastliðið kjörtímabil að ekki sé nú
talað um allt sem þeir ætla að gera
á því næsta en fyrir nokkrum árum
orti Gunnar Rögnvaldsson:
Nú er tími þeirra sem hreykja
sér og hrósa
og halda uppi merkinu fyrir þor
og dug.
Þeir vona að við staulumst í
klefann til að kjósa
og „krossfestum“ þá sömu og
liðinn áratug.
1995 mætti Framsókn í kosning-
arnar með nýtt slagorð. „Sóknin
hefst á miðjunni“ og varð Jóni atla
Játvarðarsyni tilefni til eftirfarandi:
Framsókn mun sitt fylgi laga,
fer það upp við breyttan sið.
Sóknin hefst á miðjum maga,
mjakast þaðan nið´rá við.
Þessi vísa kom upp úr kjörkassan-
um og var lesin upp með þeim af-
leiðingum að Framsókn þótti þetta
slagorð þar með fullnotað.
En bestu þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Sóknin hefst á miðjum maga - mjakast þaðan nið´rá við
Skólastjóra Grunnskóla Snæfellsbæjar
Dagur í lífi...
Nafn: Hilmar Már arason
Fjölskylduhagir/búseta: Giftur
katrínu a. Magnúsdóttur kenn-
ara og eigum við þrjú börn og tvö
barnabörn. Búum í engihlíð 18,
Ólafsvík.
Starfsheiti/fyrirtæki: Skólastjóri
Grunnskóla Snæfellsbæjar.
Áhugamál: Útivist, íþróttir, lest-
ur, frímerkjasöfnun og stjórnmál.
Dagurinn. Fimmtudagurinn 9.
sept 2021:
Klukkan hvað vaknaðirðu og hvað
var það fyrsta sem þú gerðir?
Vaknaði kl. 5:50 og fór í sturtu. er
dæmigerður a maður.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Hafragraut með berjasaft. drakk
vatnsglas og einn sopa af kefir, tók
inn lýsi og vítamín.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig?
Fékk mér góðan göngutúr í
dásamlegu veðri, fylgdist með sól-
inni koma upp og bátunum fara á
sjó. Lagði af stað að heiman um
kl. 6:30, plokkaði leiðina sem ég
gekk og mætti til vinnu kl. 7:00.
Fyrstu verk í vinnunni?
Gekk um skólann, opnaði glugga,
hellti upp á kaffi fyrir starfsfólkið,
samþykkti reikninga, fór yfir dag-
inn og svaraði póstum.
Hvað varstu að gera klukkan 10?
Sendi út fréttatilkynningu til for-
eldra þess efnis að leik- og grunn-
skólarnir, foreldrafélög þeirra,
Íþrótta- og æskulýðsnefnd Snæ-
fellsbæjar og Snæfellsbær standi
fyrir fjarfundi fyrir íbúa Snæfells-
bæjar um svefn og svefnvenjur.
daginn eftir verður örnámskeið
um leiðsagnarnám fyrir starfsfólk
skólans. Áhugavert mikilvægt efni
hvoru tveggja.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Var á leiðinni á fund að Hótel
Hamri, hjá Skólastjórnendafélagi
Vesturlands.
Hvað varstu að gera klukkan 14?
Var á mjög áhugaverðum og
skemmtilegum fundi með skóla-
stjórnendum á Vesturlandi. allt-
af hollt og gott að hitta kollegana,
í formlegum og óformlegum um-
ræðum. Ómetanlegt að eiga þetta
félag og aðgang að félagsskap ann-
arra skólastjórnenda.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni?
Fór heim rétt fyrir 18:00, fór yfir
skipulag næsta dags og svaraði
tölvupóstum.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Fór í berjamó í enninu, þriggja
mínútna ganga frá heimili okk-
ar. Mikið af góðum berjum. Búin
að safta og tína vel af aðal- og blá-
berjum, erum að verða vel birg
fyrir veturinn.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði?
kata eldaði matarmikla taco súpu
með ljúffengu brauði. Saðsamur
og góður kvöldverður.
Hvernig var kvöldið?
tók fram hjólið og hjólaði út á
Hellissand, í góða veðrinu. Skoð-
aði nýju viðbótina við göngu,-
hjóla- og hlaupastíginn sem er á
milli Ólafsvíkur og Hellissands.
Þvílík forréttindi að hafa þennan
stíg hér á milli byggðakjarnanna,
auðveldar fólki alla útivist.
Hvenær fórstu að sofa?
um 22.30.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta?
Gluggaði í bók um leiðsagnarnám.
Hvað stendur upp úr
eftir daginn?
Sterk náttúruupplifun, hvað
haustið er fallegur árstími með
öllum sínum litatilbrigðum og
birtu.
Eitthvað að lokum?
Hvað maður er lánssamur að eiga
góða og heilbrigða fjölskyldu, gott
samstarfs- og samferðafólk. Þetta
eru sönn forréttindi.