Skessuhorn - 15.09.2021, Qupperneq 33
MiðVikudaGuR 15. SepteMBeR 2021 33
bmvalla.is
Smellpassar þú í hópinn?
Framleiðslustörf -
Production workers
Umsóknir óskast rafrænt í gegnum Alfreð og er umsóknafrestur til og með 27.september.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf. á og rekur þrjú dótturfélög sem starfa við
öflun hráefna, framleiðslu, sölu og þjónustu á byggingarmarkaði og við
mannvirkjagerð á Íslandi. Fyrirtækin eru Björgun ehf., BM Vallá ehf. og
Sementsverksmiðjan ehf., og hafa þessi félög rótgróna sögu á Íslandi sem rekja
má allt aftur til fyrri hluta síðustu aldar. Hjá fyrirtækjunum starfa um 200 manns
á starfsstöðvum víða um land en skrifstofa Hornsteins ehf. er á Bíldshöfða 7.
Mannauðsstefna
Mikil áhersla er á faglega vinnu þar sem ferlar, árangur og stöðugar
úrbætur eru hafðar að leiðarljósi. Við tilheyrum liðsheild þar sem
metnaðarfullt starf er unnið af jákvæðu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis
og við viljum gera starfsfólki okkar kleift að samhæfa vinnu og
fjölskylduábyrgð.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Framleiðsla á forsteyptum einingum
• Járnabending og niðurlögn steypu
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Reynsla af byggingarvinnu er kostur
• Stundvísi, jákvæðni og framúrskarandi lipurð i samskiptum
• Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
• Íslensku og/eða enskukunnátta er kostur
• Á auðvelt með að starfa í hóp
BM Vallá leitar að öflugu og laghentu starfsfólki til að slást í samhentan hóp í Smellinn,
einingaframleiðslu BM Vallá á Akranesi. Vegna stækkunar verksmiðjunnar eru nokkur
stöðugildi í boði. Meginhlutverk starfsins er framleiðsla á forsteyptum einingum.
BM Vallá is looking for production workers to join their group in Smellinn,
their pre-cast production unit. The job involves the production of pre-cast units.
Jöfn tækifæri
Með jafnréttisstefnunni okkar tryggjum við að starfsfólk hafi jafna
möguleika óháð kyni, þjóðerni, kynþætti, kynhneigð, aldurs og fleiri
þátta.
Um er að ræða 100% framtíðarstarf með skilgreindum vinnutíma frá kl. 07:30-16:50.
Boðið er upp á starfsmannarútu frá Akranesi.
This is a full-time, future role with defined working hours from 07:30-16:50.
Lax-inn er ný fræðslumiðstöð fisk-
eldis sem opnuð var síðastliðinn
föstudag á Grandagarði í Reykja-
vík. Þar er nú hægt að kynna sér
starfsemi fiskeldis með beinteng-
ingu myndavéla bæði í land- og sjó-
eldi á landsbyggðinni ásamt ýmsu
öðru fræðsluefni um þessa atvinnu-
grein.
Í tilkynningu frá Lax-inn kemur
fram að lögð er áhersla á fræðslu
um hvernig fiskeldi við íslenskar
aðstæður fer fram, frá hrogni til
fisks og alla leið á disk neytenda.
„Heildarferli framleiðslunnar er
lýst, til dæmis hvernig jarðvarmi
og græn raforka eru nýttar og hag-
stæðar umhverfisaðstæður í land-
eldi einnig með gegnumstreymi og
hringrásarkerfi. Frætt er um áfram-
eldi í sjó, en það er gert við köld-
ustu aðstæður sem þekkjast í lax-
fiskaeldi í heiminum. Öllu fram-
leiðsluferlinu eru gerð ítarleg skil,
hvað einkennir gæði afurða og um-
hverfisáhrif framleiðslunnar rak-
in. Áhersla er lögð á kynningu á
eldistækni íslenskra fyrirtækja sem
eru mjög framarlega á heimsvísu í
tæknilausnum bæði í eldi og fram-
leiðslu.“
Íslendingar eru nú fremstir í
bleikjueldi og laxeldi á landi í heim-
inum en saga þess er löng hér á landi.
elstu rituðu heimildir um fiskeldi
hér við land ná aftur til landnáms-
aldar þegar laxfiskar voru fluttir
úr ám í tjarnir til þess að eiga mat
allt árið. Hvergi á heimsvísu er í ár
stundað jafn mikið eldi atlantshafs-
laxaseiða í tengslum við seiðaslepp-
ingar. Bleikjueldið er það stærsta á
heimsvísu og er mesta framleiðsla á
laxi í landeldi hér á landi. Þá hefur
hlutfallslegur vöxtur sjóeldis á laxi
verið mestur við Íslandsstrendur á
síðustu árum. Í fyrra varð lax næst
stærsta útflutningstegund sjávaraf-
urða á eftir þorski. Íslensk tækni-
fyrirtæki hafa náð mjög langt á
heimsvísu í tækni tengdu eldi eins
og Vaka ehf, sem og vinnslu eldisaf-
urða og nægir þar að nefna Marel,
Völku og Skaginn 3X.
Tengsl við
atvinnugreinina
Stofnandi fræðslumiðstöðvarinn-
ar Lax-inn er Sigurður pétursson
en hann hefur víðtæka menntun og
reynslu úr land- og sjóeldi laxfiska
og komið að ýmsum nýsköpunar-
verkefnum á sviði lagarræktunar.
Lax-inn er í samstarfi við fjölmarga
aðila sem munu kynna starfsemi
sína í þessu nýja fræðslu- og ný-
sköpunarsetri. Verkefnisstjóri Lax-
inn er katrín unnur Ólafsdótt-
ir, véla- og iðnaðarverkfræðing-
ur. „tilgangur fræðslumiðstöðvar-
innar er að „opna“ glugga að starf-
semi fiskeldis hér á landi, uppfræða
og vekja áhuga almennings á sjálf-
bærri matvælaframleiðslu atvinnu-
greinarinnar. enn fremur er mark-
miðið að miðla þekkingu um stöðu
og framþróun í tækni eldisferilsins
og gera upplýsingar um umhverf-
isþætti aðgengilega. að lokum er
markmiðið að gera tækifærin sem
byggja á mikilli tækniþróun og ný-
sköpun sýnileg.“ mm
Opna fræðslu-
miðstöð fisk-
eldis í Reykjavík